Leita í fréttum mbl.is

Nú er mál að vakna.

Alþingi Íslendinga varð sér rækilega til skammar þegar það viðurkenndi sjálfstæði og fullveldi Palestínu í lok nóvember síðastliðinn. Þar með var alþingi í raun að styðja stjórnvöld araba á Vesturbakkanum og á Gaza til þess að eyða Israel og drepa alla gyðinga sem þeir hafa heitið ítrekað að gera.

Alþingismenn geta ekki afsakað sig með þekkingarleysi á málefnum Mið-Austurlanda sem þessi viðurkenning er þó til marks um. Þegar alþingi gengur á svig við allan hinn vestræna heim með þessari viðurkenningu felst í því yfirlýsing að Íslendingar gætu haft forystu um lausn vandans við botn Miðjarðarhafs og að Íslendingar hafi betri yfirsýn um þennan vanda en vestrænar þjóðir almennt hafi. Þvílík bábilja!

Alþingismenn sem greiddu þessari tillögu sinni atkvæði hljóta því að þekkja til málflutnings leiðtoga Palestínumanna sem lýsa því ítrekað yfir að stefna þeirra sé að ná undir yfirráð múslíma öllu landinu á milli árinnar Jordan og hafs og gjöreyða öllum gyðingum á svæðinu. Styður Alþingi Íslendinga þessa stefnu? Eða vita þeir ekkert hvað þeir eru að gera?

Á afmælisfundi Al Fatah (stærsta stjórnmálaflokksins á Vesturbakkanum) í síðustu viku minnti trúarleiðtogi PA ( þjóðarráð Palestínu sem var stofnað eftir Oslósamkomulagið 1994) á að það væru örlög múslíma  í samræmi við trúarbækur Islam að drepa alla gyðinga. „Dagur upprisunnar mun ekki renna upp fyrr en barist hefur verið við gyðinga. Gyðingar munu fela sig bak við tré og steina. Þá munu tén og steinarnir hrópa. Ó múslími, þjónn Allah, gyðingur felur sig á bak við mig.  Komdu og dreptu hann.“ Trúarleiðtoginn var að hveta sína menn til dáða með því að minna þá á markmið Islam.

Fundarstjórinn á þessum 47.  afmælisdegi Al Fatah var heldur ekkert að skafa utan af því: “ Stríð okkar við afkomendur apa og svína ( svo kalla múslímar gyðinga) er heillagt trúarstríð.“

Hér er ekki um einangrað tilvik að ræða heldur marg endurtekning á  yfirlýsingum múslíma ekki aðeins á þessu svæði heldur um heim allan enda í samræmi við „heillög“  markmið um Jihad. Upphrópanir um gjöreyðingu Israel heyrast um allt hið svokallaða arabíska vor sem er afar barnaleg nafngift á hræringu í Mið- Austurlöndum þessi misserin og ætti frekar á kenna við „vetur“ og „hel“.

Al Fatah er af mörgum talinn hófsamur flokkur og þá sérstaklega í samanburði við Hamas sem ræður ríkjum á Gaza svæðinu en Hamas hefur á stefnukrá sinni útrýmingu allra gyðinga og eyðingu Israel og að allar friðarumræður séu tímaeyðsla. Stofnskráin er aðgengileg öllum á netinu  á ensku ( Hamas Charter). Það er því hægur vandinn fyrir alþingismenn og raunar hvern sem er að kynna sér þessi mál.

Menn ættu raunar að huga að því hvað fatah þýðir í raun, sem er opnun og er í þessu sambandi átt við opnun inn í land trúleysinganna( þ.e. þeirra sem ekki eru múslímar) með hernámi, sigri, yfirbugun. Þarna er verið að höfða til skyldu múslíma að ná heiminum undir Islam og sharía lög, þ.e. lög guðs eins og þau eru túlkuð í Kóraninum viðurkenndum hadíðubókum og Sirah (þ.e. opinberri sögu Múhammeðs). Það er barnalegur misskilningur að halda að sharía lög nái aðeins til lítils hluta réttarfarsins eins og fram kom hjá Magnúsi Þorkeli Bernharðssyni, svokölluðum Mið-Austurlandafræðingi í fyrirlestri í HÍ í síðustu viku. Samkvæmt sharíalögum mega engin lög fara í andstöðu við trúarbækur Islam sem mynda eins konar stjórnarskrá. Sharíalög eru ómanneskjulegur hryllingur aftan úr formyrkaðri forneskju.

Almennt ríkir hættulegt þekkingarleysi á Islam og á blóðugri sögu islamskra þjóð fyrr og nú. Vesturlandamenn eru furðu ginkeyptir fyrir afbökun sögunnar sem múslímar hafa staðið fyrir með dyggum stuðningi nytsamra sakleysinga. Áður en Alþingi verður sér frekar til minnkunar ættu flokkarnir að setja einhverja orku í það að koma upp þekkingu á Islam. Lágmarkið er að hlusta eftir því hvað leiðtogarnir segja við sitt eigið fólk en ekki hvað þeir segja við okkur trúleysinganna , kuffar, sem er argasta skammaryrði allra sannra múslíma.  Múslímskar lygar, kitman og taqiyya, eru viðurkennd tæki meðal múslíma til þess að blekkja óvininn, þ.e. okkur. Nú er mál að vakna!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Valdimar; jafnan, & þakka þér samskipti, liðinna ára !

Múhameðskir og Gyðingar (Ísraelsmenn); eru hvorutveggju, haldnir þeim annmarka, að Jehóvah og Allih; Guðir þeirra ósýnilegir og óáþreifanlegir með öllu, séu einhverjir Allsherjar lausnarar, þeirra vandkvæða.

Þess vegna; hafa þeir komið sér svo víða út úr húsi, með hinu skefjalausa ofstæki og einþykkni, sem þessar ágætu þjóðir, sem þessa drungalegu pjakka aðhyllast (áðurnefndar Guða fígúrur), sem raun ber vitni, Valdimar.

Því; hallast ég meir og meir að því, að ekkert réttlæti frekari samskipti við Ísraelsmenn, haldi fram sem horfir, í stjórnmálalegu tilliti, fremur en öðru, haldi þeir áfram viðhaldi skuggalegrar hugmyndafræði, sinnar.

Eftirtektarvert Valdimar; að í þeim löndum, sem sýnilegir Guðir og Gyðjur eru tignuð (á Indlandi, til dæmis), er ekki viðlíka ofstæki gegnumgangandi, eins og í Mið- Austurlöndum, síðuhafi góður.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /    

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 12:09

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þakka þér fyrir þessa góðu og skilmerkilegu grein Valdimar.

Það er sorglegt að utanríkisráðherra Íslands skuli hafa gengið fram með þeim hætti sem hann gerði er hann dró Alþingi á asnaeyrunum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 17.1.2012 kl. 13:21

3 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Óskar

Ég get alveg tekið undir með þér að öfgatrúarmenn meðal gyðinga eru skelfilega leiðinlegt fólk eins og öfgamenn eru jafnan. Ég er hins vegar ekki sammála því að unnt sé að leggja öfga í gyðingstrú að jöfnu við öfga í Islam. Himinn og haf aðskilur þá að. Almenningur í Israel þaggar niður í þessum kjánum og vill ekki af þeim vita en öfgamenn Islam eru taldir hinir einu sönnu boðberar Islam og enginn dirfist að þagga niður í þeim.

Öfgarnir í Israel eru til leiðinda og er sagt að halda sig á mottunni. Öfgarnir í Islam stjórna múslímskum samfélögum og sækja hratt fram um heim allan.  Öfgafullir gyðingar fremja ekki hermdarverk í nafni trúarinnar en múslímar hafa framið hátt í 19 þúsund mannskæð hermdarverk í nafni trúarinnar sem hafa verið skráð síðan ráðist var á turnanna tvo í New York 11. September 2001.

Gyðingar leggja heiminum endalaust gott til með dugnaði sínum og ráðsnilli meðan menning múslíma er andleg eyðimörk. Gyðingar sem eru 0.2 % af mannkyni hafa t.d. unnið 20% Nóbelsverðlauna meðan múslímar, sem eru um 20% af mannkyni, hafa aðeins unnið 4 alvöru Nóbelsverðlaun en auk þess hafa nokkrir múslímar fengið ómaklega friðarverðlaun Nóbels sem eru ein helstu grínverðlaun heimsins vegna vinnubragða norsku nefnarinnar sem sér um úthlutun þeirra. Þessi miklu munur stafar sennilega að langmestu leyti vegna þess að meðan menning gyðinga er farsæl fyrir heiminn er menning múslíma að sama skapi slök.

Múslímar eru þarna fórnarlömb sinnar eigin lélegrar menningar og þarf að hjálpa þeim að komast á hærra stig með því að segja sannleikann um Islam sem eru lágkúrulegustu og ömurlegust trúarbrögð heimsins.

Valdimar H Jóhannesson, 17.1.2012 kl. 14:14

4 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Tómas sæll

það er rétt að Össur dró þingheim á asnaeyrunum og gallinn sá að þeir voru allir þingmennirnar með samskonar eyru, - líka Sjálfstæðismennirnir sem létu það nægja að sitja hjá. 

Staðreyndin er sú að þingmenn almennt hafa enga þekkingu á þessu sviði, - þeir vita ekkert um Islam frekar en fjölmiðlafólk sem sér ekki við lævísum áróðri islamista sem er drifinn áfram af arabískum olíupeningum.

Valdimar H Jóhannesson, 17.1.2012 kl. 14:21

5 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Ég tek undir það með þér Valdimar, hér dugar engin hjáseta í eins alvarlegu máli og þetta er. 

Því miður hafa þingmenn og fjölmiðlar lokað augum og eyrum fyrir hinni raunverulegu vá sem steðjar ekki eingöngu að Ísrael heldur öllum hinum vestræna- "lýðræðis"heimi.

Tómas Ibsen Halldórsson, 17.1.2012 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband