Leita í fréttum mbl.is

Er andúð á nasisma útlendingahatur?

Svarið við spurningu hér að ofan er að sjálfsögðu neitandi og vandséð að nokkrum heilvita manni myndi detta til hugar að svara spurningunni játandi. Sömu sögu er að segja ef spurt hefði verið hvort andúð á kommúnisma bæri vott um útlendingahatur. Allir sjá hversu fráleitt það er að jafna þessar
hræðilegu alræðisstefnur við kynþætti eða þjóðir. 
 

Kommúnisminn og nasiminn skildu eftir dauða og eyðileggingu víða um heim á seinustu öld. Tölum um mannfall ber ekki saman en óhætt er aðfullyrða að 100-200 milljónum manna hafi verið fórnað á altari þessara alræðishugmynda sem fjöldinn allur af fólki hérlendis trúði á og trúir jafnvel ennþá á.    A.m.k. á kommúnistastjórnin á Kúbu ennþá formælendur hér eins og það hljómar nú ótrúlega. Þessar tvær alræðisstefnur eru náskyldar vinstristefnur en vinstri mönnum er þó gjarnt að kennar nazisma við hægri stefnu sem er alrangt. Hægri stefna í stjórnmálum leggja áherslu á fortaklausum réttindum einstaklingsins og rétti hans til athafna svo lengi en sá réttur hindrar ekki rétt annars einstaklings til athafna.
 

Nazismi eða öðru nafni nasjónal sósíalismi er auðvitað vinstri stefna þar sem virðing fyrir rétti einstaklingsins verður að víkja fyrir hagsmunum fjöldans.  Vegna virðingaleysis fyrir rétti  einstaklings
var hægur vandi fyrir leiðtoga þessarra hreyfinga að standa fyrir viðurstyggilegu blóðbaði á eigin þegnum eins og á þegnum annarra þjóða. Þarna vopru fremstir í flokki Stalín, Hitler, Maó, Pol Pott, Castro. Stalin og Mao eru taldir hafa drepið hvor um sig 70-80 milljónir eigin þegna fyrir utan þá
sem fórust í stríðum.
 

Heimurinn er ekki laus undan hættulegum alræðisstefnum þó að kommúnismi og nasismi hafi lagst í nokkurn dvala um hríð a.m.k. Islam er slík hugmyndafræði náskyld nasisma og kommúnisma en aðeins hættulegri því að trúarrugli er blandað inn í hryllinginn. Islam er ekki trúarbrögð til einkanota
fyrst og fremst heldur stjórnarfyrirkomulag fyrir heiminn og eftir það til ástundunar fyrir einstaklinga. Islam viðurkennir ekki rétt einstaklingsins og hafnar lýðræði. Réttur allra nema múslímskra karlmanna er fyrir borð borinn.
Stefna Islam er að kúga allan heiminn undir yfirráð Islam og Sharíalög sem eru hrein andstyggð í augum þeirra Vesturlandabúa sem hafa kynnt sér þau enda í andstöðu við almenn og sjálfsögð mannréttindi í okkar augum og afar ofbeldisfull. Rasismi er mjög áberandi í Islam.
 

Talið er að múslímar hafi drepið hátt í 300 milljónir manna þær 14 aldar síðan þessi fáránlega hugmyndafræði komst á flot. Ein blóðugasta sagan þar er hvernig menning Indlands var lögð í rúst og 80 milljónir hindúa voru myrtir. Islam hefur hvarvetna fært með sér dauða og eyðileggingu. Islam
hefur nýtt sér ríkidæmi þeirra landa sem það hefur lagt undir sig og stærir sig af afrekum þjóða sem það leggur undir sig. Fljótlega legst þó drungi og niðurlæging yfir þessi lönd enda er íslömsk menning afar snauð og frumstæð. Þar sem áður stóð vagga vestrænnar menningar fyrir botni Miðjarðarhafs hefur ríkt stöðnum og upplausn í margar aldir eins og við erum vitni að í fréttunum daglega. Þetta vesalings fólk sem býr við þennan fáránleika er innrætt með þá bábilju að vandi þeirra stafi af nýlendustefnu Vesturlanda. Staða þessara landa hefur þó farið síversandi eftir að nýlendutímabilinu lauk um miðja síðustu öld. 

Síðan vinstri menn og íslamistar tóku höndum saman um irönsku byltinguna sem færði ayatollhum völdin í Iran 1979 hefur jihad ( heillagt útþennslustríð Islam) farið vaxandi um heim allan í ýmsum myndum en olíuauður Saudi Arabíu hefur einnig verið ótæpilega notaður til að innræta islamskt trúaræði í unga múslíma um heim allan og þá ekki síst á Vesturlöndum í gegnum tugþúsundir af moskvum sem hafa verið reistar fyrir olíupeninga.  

Músalímar eru um 1.4 milljarðir. Flestir þeirra eru friðsamir en talið er að um 20% múslíma séu salafistar þ.e. vilja fylgja í einu og öllu hreinu Islam eins og það var stundað á 7. öld á tímum Múhammed og lærisveina hans. Sú saga er afar ofbeldisfull og alblóðug en Múhammed, hin
fullkomna fyrirmynd múslíma,  er hryllilegur maður eins og honum er lýst í hadíðum, Kóraninum og opinberri æfisögu hans. Samkvæmt þessu eru um 280 milljónir múslíma í heimunum sem telja
útbreiðslu  Islam  réttlæta blóðug illvirki enda eru framin að meðaltali 5 mannskæð fólskuverk á dag í nafni Islam eða um 19400 talsins síðan 11. september 2001.  

Sá sem hefur andúð á þessari hugmyndafræði, Islam, er ekki sekur um útlendingahatur frekar en sá sem hefur andúð á nasisma og kommúnisma. Sá sem hefur varann á sér gagnvart mönnum sem aðhyllast hryllinginn er ekki haldinn lágkúrulegu útlendingahatri né rasisma. Sá sem ekki gerir það er haldinn vanþekkingu eða heimsku.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það er hættulegt að stjórna heiminum með öfgatrúarbragða-stríði.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.8.2012 kl. 12:48

2 identicon

Snilldarlega vel sagt. Ég hef haldið þessu fram í mörg ár en verið þá kallaðu rasisti, sem hefur ákkurat ekkert með það að gera. Þeir sem vilja iðka þessi trúarbrögð geta bara gert það þar sem þau eru stunduð og látið okkar land í friði. Vandmálin í Danmörku og Svíþjóð eru slík að það ætti að vera okkur víti til varnaðar. Við hér á Íslandi þurfum ekki að reyna að finna upp hjólið. Það er löngu búið að því, en samt er hér fólk tilbúið að reyna það.

M.b.kv 

Sigurður Kristjan Hjaltested (IP-tala skráð) 4.8.2012 kl. 14:57

3 Smámynd: Björn Emilsson

Það er sannarlega gott að málfrelsi ríkir enn á Islandi. Skrif þín eru orð í tíma töluð. Fyrst var unnnin bugur á nasistanum, þá kommúninismanum og nú er það islamisminn sem tekist er á við. Friður á jörðu verður fyrst þegar vestræn menning hefur náð yfirhöndinni.

Björn Emilsson, 4.8.2012 kl. 15:12

4 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Mér hefur sýnst, mest, að andúð á nazisma sé hjá flestum byggð á misskilningi, þar sem vel 1/4 ef ekki fleiri íslendingar eru faktískt nazistar. Þeir bara fatta ekki að það er rétta orðið yfir skoðanir þeirra.

Kommúnsisminn lagðist heldur aldrei í dvala. get ég nefnt mörg dæmi. Þar með talið núverandi leiðtoga landsins (þó það séu vissulega mjög undarlegir kommar.)

Islam... eftir 400 ár verður sá söfnuður sennilega búinn að jafna sig. Við höfum tíma, við getum beðið.

Ásgrímur Hartmannsson, 4.8.2012 kl. 16:54

5 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Anna

ég þakka þér fyrir athugasemdina og skil ekki hvert þú ert að fara. Hver vill stjóra heiminum með slíku stríði?

Sigurður og Björn

þakka ykkur fyrir athugasemdirnar. Gott að fá stuðning í þessarri umræðu. Þeir eru margir sem vilja gera hróp að þeim sem leyfa sér að taka vandamál vegna Islam til umfjöllunar þó að slíkir hafi hagt hægt um sig núna.´En ég hef fengið ótrúlegar haturgusur úr þeirri átt.

Valdimar H Jóhannesson, 5.8.2012 kl. 22:16

6 Smámynd: Jens Guð

http://www.youtube.com/watch?v=wyjNRmSPVMM

Jens Guð, 19.8.2012 kl. 23:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 192246

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband