Leita í fréttum mbl.is

Vá fyrir dyrum

Ákvæði stjórnarsrár Íslands um trúfresli er ekki án skilyrða.  Í 63. gr. segir:
„Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu."  Þeir sem þekkja íslam vita, að íslam samræmist ekki góðu siðferði eða allsherjarreglu. Vandinn er sá að þekking á íslam er lítil á Íslandi, í stjórnsýslunni, í sveitarstjórnunum, hjá menntakerfinu, hjá kirkjunni, fjölmiðlum og hjá almenningi.

Ef við tökum okkur ekki á í þeim efnum er líklegt að skaðinn verði áður en við áttum okkur og við sitjum uppi með tröllaukin vandamál sem alls staðar hefur fylgt í kjölfarið á innrás íslam inn í hvað samfélag sem er. Nágrannalönd okkar glíma við vaxandi vandamál af hömlulausum innflutningi múslíma og vandséð hvernig þau leysa vandann.

Hér er áréttað að 80% múslíma er ekkert verri né betri en 80% t.d. nasista í Þýskalandi Hitlers, sem var ágætt fólk nema það hafði ekki döngun í sér til þess að standa gegn ómennunum sem réðu lögum og lofum í krafti ógnarstjórnar. Illskeyttasti hluti þeirra ræður ferðinni jafnt hjá múslímum sem nasistum á Hitlerstímanum.

Fyrri samfélög kristinna manna í Mið-Austurlöndum og á Balkanskaganum, samfélög Búddatrúarmanna í Austurlöndum (t.d. Afganistan), samfélög Hindúa á Indlandsskaganum, Zaraþústra dýrkanda í Persíu og samfélög gyðinga í Mið-Austurlöndum eru enn rústir einar eftir eyðileggjandi áhrif íslam. Íbúar þessara landa sem nú teljast flestir múslimar eru aumkunarverð fórnarlömb ofstækis sem einkennir íslam.Misskilningur er að halda að vandinn sé einskorðaður við róttækan islamisma.Íslam sjálft er vandinn og aðeins til marks um þekkingarleysi eða blekkingar ef slíkt fer fram hjá mönnum.

Fórnarlömbum íslam og almenningi í múslímskum löndum verður best hjálpað með því að leiða í ljós hvað íslam er í raun og veru, eins og Rússum er best hjálpað með því að upplýsa um hrylling komúnismans og Þjóðverjum um hið fjandsamlega eðli nasismans gegn heill og hamingju.

Það er ekki tilviljum að íslam, kommúnismi og fasismi eru nefnd í sömu andránni. Þetta eru allt náskyldar alræðisstefnur sem hafa að markmiði að kúga heiminn undir sig með hreinsunum og blóðfórnum og halda völdum með níðingsskap gagnvart minnihlutahópum. Flestum yfirsést að íslam er ekki fyrst og fremst trúarbrögð til einkanota heldur aðallega pólitískt stjórnkerfi sem nær til einkalífs fólks sem og opinberrar stjórnsýslu og til þess ætlað að ná heiminum öllum undir Allah, sem er hatursfullur guð og alls óskyldur guðsmynd annarra trúarbragða.

Heimurinn mun að endingu snúa baki við íslam sem þjónar alls ekki hagsmunum neinna nema  múslímskra karlmanna. Íslam þjónar herskáum þjóðum til að leggja undir sig önnur lönd. Þessi trúarbrögð voru búin til fyrir 14 öldum til þess að auðvelda arabískum ribböldum þess tíma að leggja til atlögu við nágranna sína til þess að ræna þá eigum og til þess að næra valdagræðgi og fullnægja kvalar- og kynlífslosta ribbaldanna. 

Heimurinn hefur liðið fyrir íslam í 14 aldir. Ekki sér fyrir endan á þeim hörmungum en hingað til hefur okkur Íslendingum lánast að vera að mestu lausir undan þessu oki vegna legu landsins ef frá er talið Tyrkjaránið á 17. öld. Mikið blóð mun áfram renna í heiminum næstu aldir vegna íslam og gerir á hverjum degi.

Nú ætla ólánsmenn að greiða götu þessa ofstækis til landsins með því að auðvelda yfirlýstum fjandmönnum okkar að vinna bug á samfélagi okkar með því að skemma það og sundra því innan frá. Bygging mosku er liður í markvissum hernaði íslam gegn samfélagi okkar. Allar moskur heimsins eru að fyrirmynd mosku Múhameðs sem múslímar kalla spámann.  Sú moska var fyrst og fremst stjórnsetur  í stríði gegn öllum sem ekki féllust á undirgefni undir hann og hugmyndafræði hans. Múmameð er í íslam sagður hinn fullkomni maður til fyrirmyndar fyrir múselmenn. Á mælikvarða hins vestræna samfélags er vandfundinn andstyggilegri maður.

Í stað þess að leyfa byggingu mosku ber að stöðva alla starfsemi tengda íslam hér á landi með tilvísun til stjórnarrkárinnar. Ef einhver skyldi vera svo grænn að sjá ekki að boðun íslam stríðir gegn góðum siðum og allsherjarreglu er þarft að rifja upp sitthvað sem íslam boðar:


Misrétti milli karlmanna og kvenna.

Misrétti milli múslíma og annarra trúarhópa.

Dauðarefsingar fyrir að ganga af íslamstrú

Dauðarefsingar fyrir samkynhneigð

Limlestingar fyrir t.d. þjófnað.

Dauðarefsingar fyrir að hallmæla íslam.

Bann á tjáningarfrelsi um íslam.

Dauðarefsingar fyrir að hallmæla Múhammeð.

Karlmönnum er leyft að eiga 4 konur.

Fullorðnir menn mega giftast stúlkubörnum og hafa við þær mök eins og Múhammeð gerði.

Við þennan lista má bæta við fleira hryllilegu eins og limlestingar á kynfærum stúlkna í mörgum löndum múslíma (yfir 90% kvenna í Egyptalandi eru umskornar), heiðursmorð (vansæmdarmorð er betra orð), grýtingar fyrir ótrúsemi, rétt karlmanna til lemja eiginkonur sínar til hlýðni, afhausingar, verndartolla (jizya sem kristnir og gyðingar greiða til að fá að halda í trúarbrögð sín um leið og þeir fallast á kúgun og 3. flokks borgararéttndi). Og margt annað miður fagurt.

Það er ekki ofstæki að banna þessi ósköp. Það er heimska og fáfræði að gera það ekki. Ég bið lesendur vinsamlegast að athuga að það er ekki ofstæki að segja frá ofstæki og við eigum ekki að halda í heiðri umburðarlyndi gagn umburðarleysi íslam. Ég læt mér í léttu rúmi liggja þó að illa upplýst fólk muni kalla mig rasista. Sá sem slíkt gerir afhjúpar sitt eigið þekkingar- og dómgreindarleysi enda ekki von á góðu þegar það er talið vottur um aðdáunarvert umburðarlyndi að vera fáfróður um eðli íslam og hörmungar af þess völdum í 14 aldir.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir þessa frábæru grein. Ég tek undir hvert orð sem í henni stendur.

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 13.7.2013 kl. 11:46

2 identicon

Já þetta er sko svo rétt hjá þér. Ef við tökum nágrannaþjóðir okkar td. þá er ástandið þannig að  í úthverfum Stokkhólms, þora innfæddir ekki að draga fána á hún á tyllidögum af ótta við aðsúg frá þessu fólki vegna krossins í fánanum. Í Gautaborg í fyrra marseruðu þeir um götur og kyrjuðu "Gautaborg fyrir Alla". Í Kaupmannahöfn fer lögreglan ekki inn í sum hverfin af ótta við fjöldauppþot. Í London leyfðu þessir bláeygðu þeim að koma  sér upp eigin dómstól þar sem dæmt er eftir Sharía lögum. Semsagt búnir að koma sínum lögum að þar. Hlusta á Gísla Martein vera að dásama þessa trú sem einhver falleg viðbót við menninguna heima. Islam er ekki menning. Islam aðlagast engvu þjóðfélagi eða trú. Islam er verri en kommunisti, fasismi og nasisti vegna þess að þar er búið að henda einhverju trúarbulli út í kokteilinn. Allstaðar þar sem Islam ræður ríkjum er örbyrgð, örvænting sultur og fátækt. Nema hjá þeim sem stjórna, enda Islam fundið upp fyrir þá. Islam hefur bara eitt á stefnuskrá eins og þú hefur talið upp. Allsherjarvald og ekkert annað. Eigum við að fagna þessu..?? Held ekki. Bara þau vandmál hjá nágrönnum okkar ættu að hringja öllum bjöllum. En því miður eru svo margir bláeygðir og eru endalaust að reyna að finna upp hjólið sem endar alltaf ferkantað. Eigum við endalaust að leyfa minnihluta að olnboga sig áfram í þögn meirihlutans..??? Hvað ef almenningur væri spurður hvað honum findist..?? Má það..?? Ábyggilega ekki því svarið gæti verið óþægilegt fyrir þá sem eru að greiða götu Islams á Íslandi.

Kv.

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 13.7.2013 kl. 12:46

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Tek undir þetta Valdimar, Múhameðs trú passar Íslendingum illa.  Þeir sem aðhyllast Múhameðstrú ættu þess vegna að far a þangað sem hún er vinsæl. 

Það fólk sem hér kom á miðöldum og byggði landið, voru ásatrúar eða einhverskonar kristnir með grunn í forni trú forfeðrasinna.  Ásatrúin hafði sveigjaleika sem kristnin hafði ekki.

En ósveigjanleiki kristninnar eða Maríu trúarinnar leiddi til margskonar undarlegrar sértrúar.  En svo kom Lúter og smíðaði eina sértrúar deildina í viðbót en með aðeins mannlegra umburðarlyndi

Hversu rétt sem þetta er sem ég hér segi, eða hvernig sem menn vilja túlka það, þá er sá munur á Kristinni og Múhameðstrú og svo hinsvegar Ásatrú, að ásatrúin er þróunar arfleið en Kristni og Múhameðstrú eru heimasmíðaðar af einhverjum körlum, með allskonar viðbótar óláni smíðuðu af valdamönnum viðkomandi trúar greinar í gegnum aldirnar.      

Hrólfur Þ Hraundal, 13.7.2013 kl. 13:15

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ef við ætlum að taka bókstaflega hvern einasta staf í Kórani og Biblíu er vandi á höndum. Öfgatrúarhópar innan beggja trúarbragðanna hafa fundið setningar í þessum trúarritum til að réttlæta hin verstu verk eins og hryðjuverk slíkra hópa innan múslimatrúar bera með sér.

Öfgatrúarhópar innan Kristninnar hafa fundið ákvæði sem banna til dæmis samkynhneigð, mismuna kynjunum og boða eilífa kvöl í vítiseldi til handa villutrúarmönnum o. s. frv.

Kristnir menn stóðu fyrir tveimur heimsstyrjöldum og Gyðingaofsóknir nærðust á hatri og hefndarhug í garð Gyðinga vegna aftöku Krists.

Það voru kristin stórveld sem stóðu fyrir því versta sem heimsveldastefnan ól af sér.

Ómar Ragnarsson, 13.7.2013 kl. 14:27

5 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Ómar

athugasewmd þín ber þess vitni að þú ert góður maður en það vissi ég svo sem vel áður. En hún ber þess einnig vitni að þú ert ekki vel að þér um íslam og einnig því að þú telur að nánast allir séum við eins inn við beinið og hugsum líkt og vilt engum manni illt. Þetta er ósköp fallegt en því miður óraunsætt. Enskir eiga orðfæri um slíkt:

Assumption is the mother of all fuck ups.

Valdimar H Jóhannesson, 13.7.2013 kl. 14:44

6 Smámynd: Linda

"Assumption is the mother of all fuck ups." snilldar orðfæri og viðeigandi. Ég vona að fólk vakni, taki á þeirri þjáningu sem öfga íslam veldur sínum eigin trúbræðrum sem og þeim sem búa við hatur og ofbeli sakir þess eins að vera ekki múlimar í löndum Íslams.

Linda, 13.7.2013 kl. 15:49

7 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Ég tek undir það sem Ómar segir hér.Ég er ekkert sérstaklega fylgjandi Múhameðstrú frekar en öðrum trúarbrögðum.En reyndar er þessi upptalning þin alröng, þar sem hún er ekki í gildi hjá venjulegu fólki sem aðhyllist múhameðstrú.Það þekki ég vegna þess að ég þekki marga muslima og hef rætt þessi mál við þá.Þið verðið að athuga að fólk fæðist með þessa siði og elst upp með þeim.Ég geri greinarmun á því fólki í öllum trúarsöfnuðum og fólki sem tekur upp "nýja" trú vegna þess að þar er eitthvað sem samrímist þeirra sóðalega hugsunarhætti.Af slíku er nóg til í Múhameðstrú,kristindómi og gyðingdómi.Ég held við ættum að hafa áhyggjur af uppgangi harðlínukristni sem fyrirfinnst í hvítasunnusöfnuðum ,Aðventistum og fleiri slíkum.Síðasta athugasemd er frá stúlku sem er full af hatri ofstópa ef eitthvað er að marka hennar eigin bloggfærslur.Ég veit ekki hverrar trúar hún er en þetta samrýmist engan veginn góðu siðferði og allsherjarreglu.Mér finnst að við eigum að hafa áhyggjur af slíku fólki ekkert síður en öfgamúslimum.

Jósef Smári Ásmundsson, 14.7.2013 kl. 05:34

8 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jósef Smári

Það virðist fara fram hjá þér að ég er að gagnrýna íslam en ekki múslíma heldur tel ég þvert á móti að þeir séu fórnarlömb þeirra dapurlega örlaga að vera fæddir inn í heim íslam. Ég tek það sérstaklega fram að mikill hluti múslíma sé vænt fólk en alveg eins og t.d. fóllk í Þýskalandi á Hitlertímanum  er þetta fólk kúgað undir hatursfullan og öfgafullan minnihluta sem skirrist ekki við að grípa til ofbeldisverka ef íslam er hallmælt. Almenn mannréttindi eru fótum troðinn og eins og þú eflaust veist hafa múslímsku ríkin neitað að skrifa undir mannréttindasáttmála Evrópu en styðjast í þess við Kairo yfirlýsinguna um að mannréttindi skulu hvíla á Sharíalögum en ég vísa til þeirra í upptalningu hér að ofan um boðskap íslam.

Staðhæfing þín um að jafna megin öfgafulla kristni, gyðingdóm og íslam er út í hött. Staðreyndir segja allt annað. Nú þegar 6 dagar eru liðnir af Ramadan, helgum mánuði í íslam, hafa verið skráð 42 mannskæð hryðjuverk með 237 látnum í nafni íslam. Á sama tíma eru engin skráð hryðjuverk í nafni neinnar annarar trúar í heiminum. Frá 11. September 2001 þegar heiminum átti að vera ljóst að jihadistar voru að árétta að þeir væru í stríði við hinn vestræna heim og hugmyndafræði hans hafa verið framin 21.200 , tuttuguogeittþúsundog tvöhundruð, hryðjuverk í nafni íslam. Hryðjuverk í nafni annarra trúarbragða á sama tíma er örfá. Þér leyfist að hafa rangar skoðanir og jafnvel eftirsóknarvert að þú viðrir þær svo að við getum tekist á um þær. Ég bendi þér á að ég hefur skrifað fleiri bloggfærslur um þessi efni og hvet þig til að lesa þær og vera mér sammála eða ósammála eftir atvikum.

Valdimar H Jóhannesson, 14.7.2013 kl. 09:45

9 Smámynd: Þórir Kjartansson

Sæll Valdimar og takk fyrir að reyna að koma vitinu fyrir þetta bláeyga fólk, sem heldur að það sé allt í lagi að rétta múslimum litla fingurinn. Það er þessi málsgrein í skrifunum þínum sem ég held að beri sérstaklega að vekja athygli á vegna þess að á þetta er sjaldan bent og lang flestir halda að íslam sé bara trúarbrögð. Þú segir: 

  ,,Flestum yfirsést að íslam er ekki fyrst og fremst trúarbrögð til einkanota heldur aðallega pólitískt stjórnkerfi sem nær til einkalífs fólks sem og opinberrar stjórnsýslu og til þess ætlað að ná heiminum öllum undir Allah, sem er hatursfullur guð og alls óskyldur guðsmynd annarra trúarbragða".    

 Ótrúlegt að upplýst og vel menntað nútíma fólk skuli vilja veita þessum stórhættulega miðalda hugsunarhætti brautargengi

Þórir Kjartansson, 14.7.2013 kl. 09:53

10 identicon

ER ÍSLAM JAFNFÆTIS KRISNIDÓMI?

Í umræðunni um svona efni rekst maður endalaust á setningar þar sem sett er samasemmerki á milli Kristnidóms og Íslam.

Allir sem hafa kynnt sér málin vita að slíkt gengur ekki upp. Ítalska ríkisstjórnin hefur svipt Múslímastofnanirnar öllum trúarlegum ríkisstyrkjum vegna þess að Íslam uppfyllir ekki skilyrði um ,,trú". Stærsta hindrunin er sú að Íslam býr ekki yfir hinni gullnu reglu sem flest önnur trúarbrögð hafa í einu eða öðru formi en hún er hin gullna regla, sem hljóðar svo: ,,Gjörið ekki öðrum það sem þið viljið ekki að aðrir geri ykkur". Hollenski þingmaðurinn Geert Wilders hefur sagt þetta um Íslam: ,,Íslam er stór hættuleg fasisk hugmyndafræði.“ Margir halda einnig að Íslam sé mismunandi eftir löndum, en Erdógan Tyrklandsforseti hefur sagt eftirfarandi: ,,Það er ekki til neitt ,,hófsamt“ Íslam, það er bara til eitt Íslam og þar með upp talið.“ Hins vegar eru til hófsamir múslímar til að minnsta kosti á meðan þeir eru í minnihluta í samfélögum. Faðir Zakaría Botros, hinn frægi koptíski og egypski prédikari hefur sagt eftirfarandi: ,,Múslímar breytast þegar þeir komast í meirihluta.“

Hér er slóð á samanburð á Kristnidóm og Íslam:

http://hrydjuverk.com/2010/11/12/mismunurinn-a-milli-frum-muslima-og-frum-kristinna-manna/

Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 14.7.2013 kl. 10:30

11 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þið sem vekjið athygli á hversu ómannúðleg trú islam getur verið ef farið er eftir boðskapnum éigið hrós skilið.

Spurningin er; kanski er þetta orðið of seint, stíflugarðurinn er brostinn og flóðbylgjan sem fylgir verður ekki stöðvuð.

Þakka samt fyrir að þið eruð að reina að koma vitinu fyrir þá sem hafa ekki spáð út í hver endirinn verður þegar 33% af kjósendum eru múslimar.

Kveðja frá Dubai.

Jóhann Kristinsson, 14.7.2013 kl. 12:28

13 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Valdi,ar -Ég veit ekki hvort þú samþykkir að nota fjölda myrtra í nafni hugsjóna sem mælikvaðra um hve djöfulleg einhver stefna er. En ef við gerum það, a.m.k til þess að hafa viðmið, þá er íslam ekki í efsta sæti.Kommúnistar og nasistar eru auðvitað ofarlega á lista afkastamorðingja, en þar eru einnig þjóðir s.s. Bretar og lýðræðiselskendurnir í USA hátt skrifaðir. Þú styður síonismann eins og fyrri skrif þín sýna. Þar er á ferðinni stefna sem er ekki fyrir kórdrengi. Ótti þinn við moskuna sem brátt rís í Reykjavík virðist ekki í samræmi við óttaleysi þitt við kirkjur. Kristnir menn hafa þó myrt mikið í nafni sinnar trúar. Nú verður þú að fara að hugsa rökrétt.

Hjálmtýr V Heiðdal, 14.7.2013 kl. 21:56

14 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Hjámtýr

Raunar hefur íslam vinninginn um fjölda myrta í sögulegum samhengi sem myndi þó ekki skipta höfuðmáli ef þeir hefðu komist yfir morðæði sitt og náð að þroskast eftir 14 alda moræði, En það er bara ekki svo gott.  Glöggir menn telja að 270 milljónir manna hafi verið myrtir í nafni Allah, en kommúnisminn vermir annað sætið með eitthvað á annað hundruð milljón. Nasistar stóðum þeim langt að baki í fjölda fórnarlamba en vöktu þó verðskuldaða athygli fyrir hvað þeir gengu rösklega til verka á þeim stutta tíma í heimsögunni sem þeir höfðu til umráða.

 Ætli ég verði ekki að samþykkja það hjá þér að ég flokki þessar þrjár alræðisstefnur í þessari sömu röð. Íslam er verst, þá kommúnisminn og loks nasisminn en allt er þetta sama tóbakið og flokkast í lægsta flokk mannlegrar hegðunar.

Ótti minn fyrir íslenskt þjóðfélag ef þessum öflum er sleppt hér lausum er algjörlega raunsær. Nú eftir fyrstu sjö daga á friðarhátíð múslíma, Ramadan, hafa verið framin 51 mannskæð hryðjuverk í nafni íslam með 277 dauðum fórnarlömbum. Á sama tíma hafa engin mannskæð hryðjuverk vrið skráð í nafni allra annarra trúarbragða heimsins sem ná þó til 80% heimsins. Vinsamlegast gættu svo að þér að koma ekki með gyðingahatur þitt á bloggsíðu mína. Næst mun ég loka á þig,

Valdimar H Jóhannesson, 15.7.2013 kl. 10:52

15 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sæll Vadlimar

Nú verð ég að vanda mig með brottvísunarhótun þína hangandi yfir mér. Eitt vil ég þó segja þér áður en dómur er upp kveðinn: Síonisti og gyðingur er ekki það sama og síonismi og gyðingdómur ekki heldur. Það er mjög mikilvægt að greina þarna á milli, því ekki eru allir gyðingar síonistar og ekki allir síonistar gyðingar. Reyndar er síonisminn and-gyðingleg stefna. Þetta vildi ég segja þér til aukins skilnings þér til handa. Og ekki síst til hjálpar málfrelsinu.

Nasistar drápu marga á stuttum tíma eins og þú bendir á. Margir kristnir menn, hvítir og glaðlegir að sjá, eru enn að við drápin og einnig margir fylgjendur spámannsins Múhammeðs. Ég skil ekki alveg þessa sértæku afstöðu þína til íslam, þeir eru ekki einir í syndaregistrinu - og þótt þú viljir (og vitnar í glögga menn - sem er alltaf gott) setja þá efsta á aftakaralistann. Ég held að það sé síonistaskrattinn sem í þér býr sem afvegaleiðir þig svona grimmt. Annars allt gott.

Hjálmtýr V Heiðdal, 15.7.2013 kl. 11:37

16 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Hjámtýr

 Þú þarft ekkert að kenna mér í þessum efnum en ég gæti hins vegar kennt þér ýmislegt ef þú leyfðir þér þann munað að hlusta eftir rökum.  Þú notar nafnið síónisti sem skammaryrði. Það geri ég ekki. Þú styður aðila sem hafa á stefnuskrá sinni að eyða Israelsríki og að hrekja hvern einasta gyðing fram í sjó. Raunar ganga þeir svo langt Hamas menn í Gaza sem þú hefur marglýst stuðningi við að hafa í stofnskrá sinni yfirlýsingu um æðsta markmið sitt sem er að drepa hvern einasta gyðing heimsins,- ekki bara hvern einasta gyðing í Ísrael. Er það furða þó að þú sért svo drjúgur með málsstaðinn sem þú berst fyrir.

Ég hins vegar styð Ísraelsríki allshugar. Ég hef enga aðra hagsmuni heldur en að halda með „góðu gæjunum“ og að vera á móti „vondu köllunum“. Ísraelsríki ber af eins og gull í sorpi í Mið-Auturlöndum með mannréttindum og lýðræði fyrir alla íbúa sína. Sá ekki sér þetta er blindur af heift og hatri sem ég ætla þér þó ekki því ég held þú sért vænsti maður sem hefur glapist inn í vitlausan málsstað og ratar ekki út aftur. Ég skal rétta þér hjálparhönd ef  þú vilt. Nú fer ég frá tölvunni og lýk hér þessari umræðu

Valdimar H Jóhannesson, 15.7.2013 kl. 12:04

17 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Vonandi fæ ég síðasta orðið að þessu sinni Valdimar.

Síonisti er ekki skammaryrði - þetta er pólitísk stefna eins og þeir vita sem hafa kynnt sér málin. Ég styð engan þann aðila sem vill eyða Ísraelsríki - hvað þá að drepa einhverja íbúa þess. Þvert á móti þá styð ég alla þá sem vilja bæta það ríki. Það verður auðvitað aðeins gert með því að viðurkenna misgjörðir síonista (sem hafa ráðið ríkinu frá upphafi) gegn frumbyggjum landsins. Ég er nú orðinn afhuga s.k. tveggja ríkja lausn og sé aðeins möguleika á að þarna verði stofnað eitt sameinað ríki á lýðræðislegum grunni. Ísrael ræður nú öllu landinu í raun og það ríki vill að við lítum á það sem lýðræðisríki. Það getum við ekki gert, hvorki þú eða ég, fyrr en það er búið að afnema öll þau lög sem mismuna landsmönnum eftir trú, uppruna og búsetu. Allshugar stuðningur þinn við Ísrael getur ekki byggst á þekkingu. Það mun ég upplýsa þig um seinna.

Takk fyrir umræðuna.

Hjálmtýr V Heiðdal, 15.7.2013 kl. 13:03

18 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Þeir sem halda því fram að bygging mosku hér á landi leiði eitthvað illt af sér þurfa að svara því af hverju það hefur ekkert illt stafað af því að hér hefur verið til moska í 16 ár. Hún hefur verið í skrifstofuhúsnæði. Hvernig getur það boðið hættunni heim að múslimar hér á landi fái hentugra húsnæði fyrir sína starfsemi þegar öll sú starfsemi sem í henni verður hefur þegar verið til staðar í 16 ár.

Hvað umskurð stúlkubarna varðar þá hefur sá siður ekkert með Islam að gera. Hann er ástundarður í nokkurm löndum þar sem Islam eru ríkjandi trúarbrögð en ekki öðrum. Í þeim löndum sem hann er stundaður er hann jafn algengur hjá öllum trúarhópum. Hér er Egyptaland tekið og þar segja opinberar tölur nákvæmlea það að þessi siður er alveg jafn algengur hjá Kristnum íbúum og hjá Múslimum. Það sama á við marga aðra ósiði sem verið er að kenna Islam um. Þetta eru einfaldlega siðir sem hafa verið landægir í ákvenum löndum og í flestum tilfellum frá því löngu áður en Islam festi þar rótum.

Sigurður M Grétarsson, 15.7.2013 kl. 22:11

19 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Hjálmtýr

 Þú fyrirgefur að ég svara þér ekkki strax. Þú tekur það vonandi ekki sem vanvirðingu en ég var ekki í bænum.

Nú er ég aldeilis í góðum málum. Þú ætlar sem sagt að upplýsa mig sitthvað um Ísrael og sögu þessa heimshluta. Ég ætla að afþakka boð þitt um einkakennslu. Ég treysti öðrum „fræðimönnum“ betur.

Þú ert ótrúlega kotroskinn og ert að vekja athygli mína á því gyðingar hafi ráðið ríkjum í Ísrael síðan ríkið var stofnað. Nema hvað.  Við Íslendingar tókum þátt í því með öðrum þjóðum að stofna ríki gyðinga 1948 sem hlaut þetta nafn. Á baki því lá löng og flókin saga sem við þyrftum sennilega nokkrar klukkustundir til þess að fjalla um svo að eitthvað vit væri í því öllu saman. Menn kann að greina á hvernu farsælt þetta allt reyndist en stofnun Israelsríki er staðreynd hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Klukkunni verður ekki snúið við heldur verður að gera eins gott úr því öllu saman eins og unnt er.

Lausnin þín er ávalt sú hin sama að afhenda múslímum völdin yfir Israel með einum eða öðrum hætti. Það liggur alveg ljóst fyrir hver verða örlög gyðinga þá. Þeim verður slátrað eða í besta falli sturtað niður í það að verða 3. flokks borgarar í landinu þegar múslímar ná þar yfirhöndinni sem yrði nær samstundis ef sú lausn næðist fram að ganga að opna Israel með Samaríu og Judeu (Vesturbakkann) fyrir öllum sem telja sig vera vera Palestínumenn. Gyðingar gætu allt eins vel séð sjálfir um að koma sér inn í gasklefanna. Það má deila um hversu viturleg uppstokkun Bretlands og Frakklands var á Mið-Austurlöndum eftir endalok Ottómana en staðreyndin er sú að gyðingar fengu þar miklu minna pláss en fjöldi þeirra í Mið-Austurlöndum hefði réttlætt. Staðreyndin er sú að löndin á þessu svæði eru tilbúin með áþekkum hætti og Israel. Í öllum þeim hamagangi urðu fleiri gyðingar fóttamenn en Palestínumennirnir svokölluðu. Raunar var aldrei til nein þjóð sem hér því nafni né neitt slíkt þjóðríki. Þeir sem kalla sig Palestínumenn eru því arabar af ýmsum uppruna. Sá frægæsti þeirra, illmennið Arafat, var raunar Egypti.

Þú virðist átelja gyðinga í Israel, sem þú kallar ávalt, síonista, fyrir að vera búnir að missa lyst á því að láta slátra sér mótspyrnulaust en þeir urðu afhuga slíkum lausnum þegar búið var að myrða um 40% af öllum gyðingum heimsins á árunum fyrir stofnun Israelsríkis með forgöngu nasista en dyggri hjálp múslíma á því svæði sem við erum nú að ræða. Þú ættir að kynna þér sögu muftans í Jerúsalem, Haj Amin al-Husseini, og hvað hann gékk rösklega til verka að aðstoða Hitler við útrýmingu gyðinga í Balkanlöndunum og hvað þeir félagar áformuðu um útrýmingu allra gyðinga í Mið-Austurlöndum þegar nasistar næðu markmiðum sínum. Þú þarft að opna eyrun fyrir heitingum Múslímska bræðralagsins um að ljúka verki Hitlers þegar þeim hefur tekist að stofna kalífatið, sem hvarf með hruni Óttómansveldisins og sem þeir hafa haft á stefnuskrá frá stofnun 1928 að endurvekja til þess síðan að leggja alla heiminn undir íslam.

Þó að þú sért að taka undir með þessu fólki þá held ég ekki að þú gerir það vegna þess að þú sért vondur maður, heldur af því að þú veist ekki betur en það stafar fyrst og fremst af því óláni þínu að vera ekki móttækilegur fyrir staðreyndum og rökum en þeim mun ginkeyptari fyrir áróðri svokallaðra Pallywood-manna sem eru líka svolítið að fikta í kvikmyndagerð eins og þú en eru mest í leiknum myndum, sem eiga lítið skylt við sannleikann.

Hér með lýkur samli okkar.

 

Valdimar H Jóhannesson, 16.7.2013 kl. 16:28

20 identicon

Takk fyrir vandað og gott blogg. Mjög gaman að sjá að það finnist íslendingur sem hefur þekkingu á bæði íslam og Ísrael, an það er því miður sjaldgæft. Ég er búinn að "stúdera" (sem leikmaður viðað að mér upplýsingum úr ólíkum áttum) íslam og ástandið í Mið-Austurlöndum í ca 20 ár komist að sömu niðurstöðum og þú. Íslendingar eru gott fólk og vilja öllum vel, en því miður frekar bláeygðir gagnvart þeim sem ekki eru sama sinnis og yrði hræðilegt að sjá íslam leggja land og þjóð undir sig, en það eru einmitt yfirlýst markmið íslamista að leggja allann heiminn undir íslam. Einnig fæ ég enga aðra niðurstöðu en að það er hreinlega siðferðislega rangt að styðja palestínumenn í samskiptum þeirra við Ísrael. Það er oftast byggt á gyðingahatri fremur en stuðningi við ríki palestínumanna, og sést greinilega nú þegar Egyptaland hefur byrjað hernað gegna hamas og þegar hafa nokkrir tugir palestínumanna fallið. Nú heyrist ekkert frá "stuðningsmönnum" palestínumanna þegar Ísrael á engann hlut í máli.

Bið þér Guðs blessunar í verki þínu.

Viktor.

Viktor Harðarson (IP-tala skráð) 16.7.2013 kl. 17:11

21 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sigurður

Þú ert sá síðasti sem ég helypi að ef athugasemdin kallars á svar. Ég nenni ekki að bullukollast endalaust við menn á einstaklingsgrunni en væri ávalt tilbúinn til opinberra umræðu, þar sem málið yrðu tekin á breiðum grunni.

Ég skal svara þér stuttlega:

Með byggingu moskvu mun múslímum fjölga á Íslandi enda er það tilgangurinn með henni. En auk þess hef ég vakið athygli á að starfsemi á vegum íslam samræmist ekki stjórnarskránni. Íslam hefur laumað sér inn í landið án þess að eftir því hafi verið tekið enda hafa Íslendingar talið það saklaust í einfeldningsskap sínum og fákunnáttu.

Meðan múslímar eru innan við 2% af þjóð eru þeir yfirleitt áiitnir friðsamur minnihluti  og ekki ógnandi gagnvart öðrum borgurum enda hafa þeir vart stöðu til þess.

Þegar þeim hefur fjölgað í 2-5% hefja þeir stíft trúboð gagnvart undirmálsfólki,  vesalingum á götunni og í fangelsum enda er þar best til fanga.

Eftir 5% áfangann hefja þér vaxandi kröfur um réttindi umfram íbúðarhlutfall sitt,  kröfu um halal mat á matsölustöðum, mötuneytum og verslunum, sér bænastaði og aðrar sérþarfir en hefja ógnanir ef kröfum þeirra er ekki fullnægt. Fljótlega koma kröfur um að þeir ráði eigin málum með Sharialögum fyrir þá í sérstöku hliðarsamfélagi þeirra.

Þegar þeir ná 10% markinu hverfur allt tillit til lagaumverfis gistilandsins  vegna kvartana um bágar aðstæður þeirra vegna vandamála sem þeir koma sjálfum sér vegna innbyggðrar fórnarlambamenningar en vandamál þeirra eru alltaf sögð á ábyrgð annarra,  - gyðinga, lýðræðisins, heimsvaldastefnu Vesturlanda eða hvaðeina. Stjórnlaus reiði vegna móðgana af öllu mögulegu tagi verður áberandi eins og fjöldi dæma eru um nú um stundir eins og verið hefur í 1400 ár.

Við 20% markið má búast við uppþotum af minnsta tilefni, jihad hópum til að heyja heillög varnar- og útbreiðslustríði ,tilfallandi morðum og krikju- og synagógubrunum .

Ég nenni nú ekki lengri upptalningu að sinni en ástandið fer stig versnandi, - íslamst brjálæði og heift fer vaxandi, þjóðarmorðum og endar með slíkri skelfingu fyrir aðra hópa að þeir sjá þann kostinn vænstan að gangast sjálfir brjálæðinu á hönd og verða sjálfir að heilþvegnum fáráðlingum eins og hefur verið að gerast með vaxandi þunga á 14 aldir og er yfirlýst markmið þessara gikkja og heimurinn sígur endanlega niður í skelfilegt svartnætti.

Saga Muhammeðs var eftir þessum línum. Meðan hann var í Mekka var hann til friðs enda hafði hann fáa áhangendur en þegar hann flutti til Medina jókst styrkur hans mjög sem herkonungar sem rændi, ruplaði, nauðgaði og myrti. Hann er algjör andstæða t.d. Jesús Krists og hann er hin fullkomna fyrirmynd allra múslíma samkvæmt öllum trúarbókum íslam, Kóraninum, hadíðunum og Sira.

Ég hvet þig Sigurður til þess að kynna þér sögu og eðli íslam. Það er ekki fyrirhafnarlaust en gefur ríkulega ástæðu til að súpa hveljur.

Ég nenni svo ekki að þrátta um kynfæramisþyrmingar á konum í múslímskum löndum  eða í löndum þar sem múslímar búa. Ég get alveg tekið undir það að slíkar misþyrmingar þekkjast í afar takmörkuðu mæli hjá öðrum en ég fullyrði að nánast allar slíkar misþyrmingum eru hjá múslímum þó að þeir séu aðeins 20% mannkyns. Það er punktur málsins en ekki einhver aukaatriði til að rugla umræðuna.

 

Valdimar H Jóhannesson, 16.7.2013 kl. 17:37

22 Smámynd: Halldór Jónsson

Valdimar, hafðu heilar þakkir mínar fyrir einarða afstöðu grundvallaða á mikilli þekkingu  á því máli sem þú um ræðir. Ég hlustaði á Spegilinn þar sem Ahmad múlli gaf mjög misvísandi upplýsingar um siði og venjur múslíma. Mér finnst að það eigi að taka þá í alvarlegt viðtal og að þú ættir að vera spyrjandinn svo þeir geti ekki komist upp með annað eins og hann Ahmad og Sverrir leyfðu sér í þessu viðtali.

Haltu áfram Valdimar og ég dáist að þér.Það þarf karlmennsku til að segja frá þessum fólki því það er hættulegt og til alls víst eins og dæmin sanna.

Halldór Jónsson, 21.7.2013 kl. 22:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 192240

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband