Leita í fréttum mbl.is

Lektor á villigötum

 

Eitt helsta einkennið á umræðu á Íslandi er hvað hún er oft glórulaus og að á henni finnst oft enginn haus né hali.  Nú er upphlaup vegna yfirlýsingar oddvita Framsóknar í í Reykjavík um að endurskoða beri  úthlutun borgarinnar á  lóð undir mosku í Sogamýrinni. Lektor í stjórnmálafræði kemur fram í Sjónvarpi og blandar í umræðuna mældan ótta tiltekins fjölda Íslendinga við mikinn fjölda innflytjenda. Hún forðast að nota orðið xenofóbía, útlendingahatur, en lætur að því liggja að það liggi að baki þessari yfirlýsingu meðan minni spámenn hrópa útlendingahatur, útlendingahatur.

 Ef lektorinn, sem  ætti að hafa stöðu til þess að ræða málin af þekkingu, fellur í þessa gryfju er ekki að undra þó að fávís lýðurinn vaði delluna upp fyrir axlir. Lektorinn gerir sem sagt ráð fyrir að íslam sé „útlendingur“ og að andstaða við að byggja mosku sé vegna þess að heimóttalegir Íslendingar í sauðalitum séu hræddir við útlendinga.

Staðreyndin er sú að þekking íslenska háskólasamfélagsins á íslam, sem er raunar hugmyndafræði en ekki kynþáttur, er afar takmörkuð svo ekki sé meira sagt og kannski það sem verra er: Hún er bókstaflega röng og því hættulegt fyrir þekkinguna í landinu hvert sinn sem álitsgjafar háskólasamfélagsins kjósa að tjá sig um málefnið. Unga, fallega konan, lektorinn sem kemur fram í nafni fræðanna er vorkun. Vankunnandi en hrokafullt háskólasamfélag ól hana upp og þar er enginn til að leiðrétta hana. Menn eins og ég, sem erum þó að reyna, erum afgreiddir sem ofstækismenn og þar með ómarktækir.

Þess vegna er erfitt fyrir almenning að átta sig á eðli þessa hættulega alræðiskerfins, sem er sambærilegt við kommúnisma og nasisma og hefur reynst mannkyni miklu skeinuhættara en alræðisstefnur 20. aldar.

Ég er ekki kjósandi í Reykjavík og get því ekki stutt Sveinbjörgu Birnu en lýsi yfir ánægju minni með að hún skuli hafa kjark og vit til þess að taka þetta mál á dagskrá. Hún hefur búið í Saudi-Arabíu og hún veit eins og allir sem þar hafa verið hvers konar hryllingur íslam er og hvað er í húfi til þess að halda þessari manneskjufjandsamlegu helstefnu frá landinu. Við sjáum vítin til að varast á hverjum einasta degi  í fréttum þó að frásagnir af hryllingsverkum í nafni íslam sé orðin slík síbylja að eyrun eru að lokast og aðeins örfáar fréttir af voðaverkum komist fyrir eyru almennings.

Ef einhverjir lesendur lesendur vilja fræðast um afstöðu mína til íslam bendi ég á eldri bloggfæræslur mínar  og í þessu sambandi færslu 4. ágúst 2012 : „Er andúð á nasisma útlendingahatur“

http://valdimarjohannesson.blog.is/blog/valdimarjohannesson/entry/1251864/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er svo innilega sammála hverju orði sem þú skrifar. Af öllu því skelfilega í þessari hugmyndafræði er að mínu mati barnaníðið. Eins og frumvarp til laga í Írak sem heimilar "giftingar" lítilla stúlkna aðeins 8,9 ára gamalla. Það fer hrollur um mig við tilhugsunina. Þjáningar þessara barna eru skelfilegar. Og svo er það meðferðin á konum og samkynhneigðu fólki. Ég segi nei takk við öllu sem viðkemur islam.

Arndis Hauksdottir (IP-tala skráð) 25.5.2014 kl. 12:54

2 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Opinber saga Múhammeðs í múslímska heiminum, Sirah Rasul Allah, og hadíðurnar, sem eru samantektir um orð og athafnir Múhammeðs, lýsa andstyggilegri manni en flestir kjósa að heyra um.

Hann er samt hin fullkomna fyrirmynd sem sönnum múslímum ber að fylgja í einu og öllu. Hann var barnaníðingur, nauðgari, svikari, morðingi og almennt einhvert argasta fúlmenni sögunnar, eins og múslímar sjálfir lýsa honum. Sumir vilja halda því fram að hann hafi ekki verið til þó að saga hans sé miklu betur kunn í smáatriðum en t.d. saga Jesú krists. Frá þessari fyrirmynd fá múslímskir menn hvatningu til alls þess hryllings sem þeir demba á hverjum degi yfir börn, konur og trúleysingja en það eru allir sem ekki tilheyra íslam og meira að segja einning þeir sem tilheyra þeim armi íslam sem þeir sjálfir tilheyra ekki.

 Í raun skiptir engu í nútímanum hvort hann var til eða ekki. Það sem skiptir máli að það eru til hundruðir milljóna manna sem trúa því að hann hafi verið til og að það varði sálarheill þeirra að fylgja fordæmi hans. Heilbrigð skynsemi kemst ekki að hjá fólki sem hefur verið heilaþvegið með þessa dellu frá frumbernsku og það getur varðað við líf þitt að efast um jafnvel smáatriði.

Fæstir virðast átta sig á því að Sirah og hadíðurnar eru ekki síður veigamiklar bækur íslam en kóraninn. Þaðan af síður vita menn nánast ekkert um hvernig lesa ber kóraninn. Kóraninn er dúalekktískur, þ.e. að tvær andstæðar staðhæfingar eru báðar sannar. Eitthvað er bæði svart og hvítt. Þetta er gott til að rugla þá í ríminum sem setja sig aldrei inn í nein mál.

Ég hef hitt mann sem hafði kennt um íslam í áratugi en vissi ekki einu sinni hvað Sirah eða hadíður eru. Hafði aldrei heyrt að það minnst hvað þá að skilja neitt í hinu dúalektísku eðli kóransins. Bar samt lærdómskuflinn af fullum hroka.

 

Valdimar H Jóhannesson, 25.5.2014 kl. 13:31

3 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Enn og aftur ert þú fylginn þér með allt sem varðar Islam. Takk fyrir alla þá elju og tíma sem þú reynir að upplýsa Íslendinga um hvað sé í raun á ferð. Því miður, eins og annars staðar í Evrópu, hafa þeir sem kallaðir eru "useful idiots" reynt að ná sér í atkvæði í kosningum hjá þessu fólki. Útkoman er slík, að í fyrsta sinn í Frakklandi lenda þessir hópar gegn hvor öðrum. Af hverju..??? Jú, vinstri sinnaðir þurftu að taka afstöðu með eða á móti samkynhneigðum hjónaböndum. Nú lýtur allt út fyrir það að það verði algjört hrun á vinstri vængnum vegna þess að þeir studdu hjónaböndin. Í örvæntingu er allt reynt til að ná til baka þeim atkvæðum og eitt trixið er, að frá og með 1.jan 2015, skal renna til múslimskra félaga 5 evrur af hverjum flugmiða keyptum í Frakklandi. Enn ein snilldin hjá þeim sem aðhyllast vinstri vængnum.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 25.5.2014 kl. 17:56

4 identicon

Já, það er óhætt að segja að þetta eru "nytsöm idiot" fyrir múslimana. Það heimskt er þetta fólk, að það sér þetta ekki sjálft.

Það er ógjörningur að skilja hvers vegna þetta fólk vill flytja inn fólk frá lang vanþróuðust samfélögm á jarðríki, þeim múslimsku. Það er vælt og gapað um fjölmenningu í tíma og ótíma eins og það sé einhver höfuðlausn á félagslegum vandamálum samfélaga.

Það er akkúrat þver öfugt og vandamálin hlaðast upp.

Það er hægt að telja á fingrum annarar handar blönduð sambönd einstaklinga og það hefur ekkert að gera með fjölmenningu.

Sígaunar umgangast sígauna, kínverjar kínverja, múslimar múslima. Í öllum samfélögum myndast "getto" full af óþjóðalýð samfélaginu til armæðu og tjóns. Múslimar eru vestir, því þeir eru aldir upp í fáfræði miðalda og sameinast ekki þróuðum samfélögum, sama hvað "nytsömu vinstrisinnuðu idiotin" segja.

Umræðan um moskuna í Reykjavík er staðfesting á því að Ísland er pakkfullt af illa upplýstum idiotum.

v.johannsson (IP-tala skráð) 25.5.2014 kl. 19:37

5 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sigurður  þú nefnir það réttilega að vinstri menn eru dómgreinarlausari hvað varðar íslam en aðrir. Enda staðreyndin sú að múslímar almennt kjósa til vinstri í nágrannalöndum. Það er ekki einasta að vinstri menn reyni að þóknast íslam og setji kíkinn fyrir blinda augað til að fá atkvæði múslíma heldur kann skýringin kannski ennþá frekar að liggja í því að vinstri menn finna til skyldleikans. Sumir segja að vinstri menn bókstaflega renni á blóðlyktina, - að blóðlyktin komi vinstra hjartanu til að slá örar. Kommúnistum á síðstu öld blöskraði ekki hreinsanir t.d. Stalíns. Nú er verið að hreinsa Mið-Austurlönd af kristnum mönnum og ansi langt komið. Næst kemur að Vesturlöndum.

Kommar töldu hérlendis nauðsynlegt að hreinsa til svo að framtíðarríki alheims kommúnismans kæmist á. Nauðsynlegt væri að ryðja öllum hindrunum úr vegi eins og gert var í kommúnistísku ríkjunum.  Alveg eins er hjá jihadistum, sem eru ráðandi öfl í múslímska heiminum, að þeir bjóða í raun aðeins þrjár kosti þar sem þeir ná yfirhöndinni. Gerast múslími, borga sérstakan verndarskatt og taka stöðu sem 3. flokks borgari eða loks í þriðja lagi að missa hausinn.

Valdimar H Jóhannesson, 25.5.2014 kl. 21:46

6 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

v.johannsson

í raun er mér á móti skapi að birta frá þér athugasemdir vegna þess að þú gerir ekki fullnægjandi grein fyrir þér. Ég hef ekkert á móti því að birta frá þér eða öðrum athugasemdir en tel að allir verði að koma fram undir nafni, sem er unnt að staðfesta.

Þannig að framvegis vinsamlegast gerðu grein fyrir því hver þú ert eða að minnsta kosti láttu mig vita með öðrum hætti ef þú ert í svo veikri stöðu að þú þarfnast verndar nafnleyndar. Umræðan missir mark með nafnleynd nema í sérstökum tilfellum.

Valdimar H Jóhannesson, 25.5.2014 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 192275

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband