Leita í fréttum mbl.is

Sannlega mega þeir súpa hel

Þessar vikurnar er verið að myrða tugi eða jafnvel hundruðir þúsunda manna í Mið-Austurlöndum og víðar í nafni íslam og hin „siðmenntaði“ heimur horfir á nánast aðgerðarlaus. Núna um helgina er sennilega verið að ganga endanlega frá kúrdískum íbúum Kobane alveg við landamæri Tyrkland. Fréttirnar þaðan eru hryllilegri en orð fá lýst eins og verið hefur undanfarin ár í Sýrlandi og Írak.  Öflugar NATO hersveitir Tyrklands standa aðgerðarlausir í sjónlínu við fjöldamorðin og Vesturlönd eru að bræða með sér hvort ástæða er til að grípa inn í atburðarrásina og hafa verið að því undanfarna mánuði og jafnvel ár. Á meðan er verið að nauðga konum, einnig stúlkubörnum og drepa þær síðan á hroðalegan hátt eða selja þær sem eiginkonur ómennanna, sem gætu jafnvel einhverjir verið héðan og sem ganga til liðs við Íslamska ríkið (IS, Isis eða Isil) eða  selja þær í annan þrældóm til kynlífs eða þrælkunar.

Lítt örlar á miskunnsama Samverjanum. Ráðmenn á Vesurlöndum spila golf eða gera eitthvað álíka þarft. Örvæntingafull hróp kristinna manna, Kúrda, Yezída, Armena, sjía-múslímar alawíta og jafnvel súnníta um hjálp ná ekki eyrum okkar þó að þau séu hávær og skír. Ekki aðeins hafast hersveitir Tyrkja ekkert að heldur hindra þær íbúa Kobane að flýja yfir landamærin undan sveitum íslömsku brjálæðinganna. Þær stuðla með því að fjöldamorðunum og þær hindra einnig Kúrda í Tyrklandi að fara yfir landamærin til að taka þátt í átökunum en hafa hleypt íslömskum vígamönnum með búnað sinn í gegnum landmærin. Og meðan blóðið rennur í stríðum straumi og verið er að eyða síðustu leyfum t.d. kristinna manna á svæðinu eru vestrænir ráðamenn að velta fyrir sér hvernig unnt sé að þjálfa m.a. Kúrda til virkari varnar eins og að ekkert liggi nú á!  - Þetta aðgerðarleysi verðskuldar einkunargjöfina „fyrirlitlegt“.

Atferli Tyrkja og vestrænna ríkja rifjar upp aðra ljóta blóði drifna sögu. Önnur borg  kemur í hug, - Smyrna (Izmir) í september 1922 þegar tyrkneskar hersveitir undir stjórn Atatürks myrtu  50-100 þúsund kristinna Grikkja og Armena en  m.a. hermenn Vesturlanda á 21 herskipi frá Bretlandi, Bandaríkjunum, Frakklandi og Ítalíu, sem lágu í höfninni í Smyrna, létu morðin afskiptalaus til þess að styggja ekki Tyrki! Og enn má ekki styggja Tyrki sem ætla sér ljóslega að láta íslömsku brjálæðingana drepa eins marga Kúrda og unnt er áður en áfram verður haldið. Er ekki kominn tími til þess að láta Tyrki standa reiknisskil fyrir voðaverk sín núna og í gegnum tíðina?

Hvenær ætlar heimurinn að láta þá svara fyrir dráp sín á 2.5-3.5 milljónum  grískra , armenska og assýrskra kristinna manna á fyrstu árum seinustu aldar þegar blóðug saga Ottoman veldisins var að renna sitt skeið?  Það var ekki að ástæðulausu sem þeir voru kallaðir Hundtyrkir. Eða voðaverkin á Balkanskaganum þar sem þeir fóru yfir rænandi og myrðandi í aldir? Hvenær ætla Vesturlandabúar almennt að horfast í augu við hroðalega sögu íslam í 14 aldir en einnig atferli múslíma í dag og hætta að láta eins og ekkert sé?

Ætlum við kannski að láta háðsádeilu Laxness rætast á okkur:

            Spurt hef ég tíu milljón manns

            sé myrtir í gamni utanlands;

            sannlega mega þeir súpa hel;

            ég syrgi þá ekki;fari þeir vel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Fínn pistill hjá þér, Valdimar.

Þakka þér fyrir að segja okkur sannleikann tæpitungulaust.

Jón Valur Jensson, 12.10.2014 kl. 20:11

2 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Vissulega er full ástæða til að taka hart á grimmdarverkum Ríkis Islam rétt eins og annarra sem fremja fjöldamorð eins og til dæmis hið grimme hernámsveldi Ísrael. Það þarf að taka á báðum þessum hópum blóðþyrstra villimanna af mikilli hörku og stöðva þá í voðaverkum sínum.

En við náum engum árangri með því að kenna trúarbrögðum þessara hópa um voðaverkin. Allir sem vilja beita ofbeldi og grimmd geta fundið réttlætingu fyrir því í sínum trúrtextum. Það mun því ekki skila neinum árangri í baráttunni gegn þessum voðaverkum að kenna trú gerndnanna að ósekju um að vera orsök ofbeldisins enda fáum við þá síður trúbæður þeirra í lið með okkur við að uppræta þessa hópa ofbeldismanna.

Hér má sjá upplýsingar þar sem tekið er á nokkrum mýtum um Islam.

https://www.youtube.com/watch?v=6ibKWVTFSak

http://www.visir.is/segir-ad-konum-stafi-ekki-meiri-ogn-af-muslimum-en-odrum-hopum/article/2014141019596

Sigurður M Grétarsson, 13.10.2014 kl. 23:03

3 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sigurður

Þér er frjálst að slá hausnum við steininn ef það er það sem þù vilt. Ég nenni ekki að leiðrétta þig! En þér finnst við hæfi að bera saman barbarisma og sannan og flottan menningarheim. Þú átt langt í land. Ég mun ekki svara þér aftur.

Valdimar H Jóhannesson, 14.10.2014 kl. 14:17

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þó að einhver segi á Vísir.is, að "konum stafi ekki meiri ógn af múslimum en öðrum hópum," þá verður það ekki þar með satt, og hér er raunar hrikalega afhjúpandi frétt á sama Visir.is í gær: Stæra sig af þrælahaldi, og á það við um morðsamtökin "Ríki islams" sem beita Jesídakonur skipulögðum nauðgunum og kynlífsþrælkun og selja þær liðsmönnum glæpahersins að kvonfangi eða leikfangi. SMG er sem oftar á villugötum.

Jón Valur Jensson, 14.10.2014 kl. 16:27

5 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Jón Valur. Það er alveg rétt að það þó einhver segi eitthvað þá er það ekki þar með sannleikur málsins. Það á ekki hvað síst við um orð þeirra sem bera út hatursáróður gegn múslimum eins og þig og Valdimar.

Hvað varðar greinina sem þú vitnar í þá er það ekki bara fullyrðing einhvers á visi.is heldur niðurstaða faglegrar rannsóknar á málefninu. Hvað getur þú bent á margar farlegar rannsóknir sem sýna hið gagnstæða? Staðreyndin er sú að það eina sem ég hef séð þig og þína skoðanabræður vitna í eru áróðurssíður gegn múslimum en aldrei í faglegar rannsóknir sem sýna Islam verri trúarbrjögð en önnur enda efast ég um að neitt slíkt sé til staðar til að vitna í.

Hvað varðar Ríki Islams þá er langur verug frá því að það séu dæmigerðir múslimar og því segir það ekki neitt um Islam hvernig þeir haga sér. Þetta eru bara illmenni og það eru til alveg jafn mikil illmenni meðal fólks sem játar önnur trúarbrögð. Það eru til dæmis til mörg kristin hryðjuverkasamtök í Afríku sem eru ekkert skárri en Ríki Islams en hafa bara ekki sama herstyrk og þau. Gott dæmi um slíkt eru Lord´s Resistance Army í Uganda.

http://en.wikipedia.org/wiki/Lord%27s_Resistance_Army

Ef við notuðum þessi samtök sem viðmið fyrir kristna þá kæmi Kristni ekki vel út. En það væri jafn fáránlegt að taka þessi samtök sem viðmið fyrir Kristni eins og að taka Ríki Islams sem viðmið fyrir Islam.

Sigurður M Grétarsson, 15.10.2014 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 192259

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband