Leita í fréttum mbl.is

Lágkúra sjónvarpsstöðvanna

Lágkúran í íslenskri fjölmiðlun sannaðist enn eina ferðina í þættinum „Ísland í dag“ á Stöð 2 í gær og svo aftur í fréttatíma sjónvarpsins í kvöld þegar þessir áhrifamiklu fjölmiðlar lögðust í einhliða hatursáróður gegn Israel með viðtali við og umfjöllun um norska lækninn Mads Gilbert. Gilbert var kynntur til sögunnar sem fórnfús mannvinur sem hafi ítrekað  lagt lið sárþjáðum fórnarlömbum hernáms og blóðugra árása Israels á saklausa borgara á Gaza. Hið sanna er hins vegar að Mads Gilbert er alræmdur öfgamaður, sótsvartur marxisti, áróðursmaður gegn Ísrael og stuðningsmaður múslímskra hermdarverkamanna.

Hann stóð með Mao, sem myrti 80 milljónir landa sinna. Hann hefur orðið vís að því að hagræða staðreyndum, láta vera að segja sannleikann um afar mikilvæg atriði og sagður taka þátt í Pallywood með því að sviðsetja skelfingu fyrir myndatöku og fréttaflutning eins og tíðkast hjá Hamas og raunar einnig hjá Fatah. Hann hefur gengið ómennsku Hamas á hönd  og gott ef hann stóð ekki með Pol Pott, þeim snyrtilega fjöldamorðingja.

Fjölmiðlar hafa ítrekað verið varaðir við sjónarmiðum Gilberts, sem aðrir læknar hafa ásakað fyrir að brjóta Hippokratesar eiðinn  með því að styðja hermdarverk, standa með Hamas og kynda undir í átökum í Mið-Austurlöndum. Hann er ásakaður fyrir að nota læknisstörf til framdráttar einstrengingslegri pólitískri baráttu. Fyrir nokkru mótmæltu 9 virtir fulltrúar læknisfræðinnar í ýmsum löndum málflutningi hans og þeirri ómaklegu viðurkenningu, sem hann hefði hlotið fyrir störf sín á Gaza.

Það var raunar félagsskapurinn Ísland- Palestína undir stjórn Sveins Rúnars læknis, sem fékk þennan mann hingað til lands til að bera lyginni vitni eins og ljóst var með því að horfa á útsendinu beggja sjónvarpsstöðva landsins. Hvílík forsmán!

Gilbert hefur gengið svo langt í ofstæki sínu að réttlæta árásir á tvíburaturnana í New York 11. sept 2001 og morð þrjú þúsund saklausra borgara í viðtali við norskt dagblað. Al-Shifa sjúkrahúsið á Gaza þar sem hann starfaði hýsti herstjórn Hamas og gott ef ekki vopnabúr eins og skóli SÞ á Gaza gerði og fleiri hús í þjónustu almennra borgara. Hann horfði á  Hamas-liða skjóta eldflugum sínum að almenningi í Israel nánast stefnulaust og hitta fyrir einnig almenning á Gaza. Það mannfall var skrifað á reikning Iraela þó að allir á Gaza vissu það sanna. Hann horfði á Hamas nota almenna borgara og jafnvel börn sem skjöld fyrir skotpalla sína og hermenn án þess að gera athugasemdir, - athæfi sem er ekki einasta stríðsglæpur heldur fyrirlitlegt á hvaða mælikvarða sem er.

Við þurfum ekki menn eins og Mads Gilbert til að lýsa einu eða neinu fyrir okkur. Slíkir menn eru margfalt verri en enginn. Þeir kynda undir djöfulskap þegar heimurinn þarf umfram allt að setja niður deilur. þeir afvegaleiða sannleikann. Þessir menn eru verstu níðingar sem hugsast getur þrátt fyrir að þeir slái sér á brjóst. Sennilega er Mads Gilbert siðblindur sósíópat sem trúir sínu eigin bulli eða telur tilganginn helga meðalið.

Það ætti að vera lágmarkskrafa  okkar sem erum ofurseldir fjölmiðlun að þeir standi í lappirnar og kanni bakgrunn þeirra sem birtast okkur gagnrýnislaust. Fæstir hafa forsendur til þess að sjá í gegnum svona fréttaflutning og eru því berskjaldaðir fyrir því að mynda hjá sér kolranga heimsmynd þar sem staðreyndum er snúið á hvolf. Kolrangar heimsmyndir eru hættulegar eins og sagan ber vitni um.

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

æknirinn afsløra'ur ;)

https://www.youtube.com/watch?v=1Dp7fanDrfI

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 10.4.2015 kl. 00:13

2 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Það hafa verið þættir í sjónvarpinu undanfarið sem heita Múslimar- gyðingar þar sem farið er yfir söguna um samskipti milli þessara tveggja trúarhópa. Hefði ekki ekki verið gott fyrir þig að horfa á þessa þætti og auk þess kynna þér málið  í stað þess að koma með hleypidóma í algjörri fáfræði?

Jósef Smári Ásmundsson, 10.4.2015 kl. 07:37

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það var svolítið merkilegt að HVORUG STÓRA SJÓNVARPSSTÖÐIN  fjallaði um það  að það hafði orðið uppvíst um það að HAMAS hafði skotið eldflaugum frá stöðum þar sem almenningur leitaði skjóls, vegna loftárásanna síðastliðið sumar.  Þeir geymdu vopn á þessum stöðum og mörg dæmi voru um að þeir skutu eldflaugum frá þessum stöðum, þar sem fólk hélt að það væri öruggt. Og einnig var eitt tilfelli um eldflaug sem hafði mistekist að skjóta yfir til Ísrael en sprakk þess í stað á sjúkrahúsi.  Þeir kenndu Ísraelsmönnum um þá árás en nú er sannleikurinn kominn í ljós en Íslensku sjónvarpsstöðvarnar hafa engan áhuga á því.......

Jóhann Elíasson, 10.4.2015 kl. 07:56

4 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Jósef Smári

Ég horfði á þessa þætti sem ég var fyrst og fremst ósammála vegna þess sem ekki var sagt. Í þessar tæpu 14 aldir síðan Múhammeð hóf að ofsækja gyðinga, drepa þá eða hneppa í fjötra dhimmi-stöðu eins og kristna menn hafa auðvitað komið einhverjir kaflar sem eru ekki alveg eins djöfullegir eins og sagan er almennt. Sama má segja um kommúnisman eða nasismann. Þar leyndust á milli ærlegir menn sem reyndu að láta gott af sér leiða en það breytir ekki heildardómi okkur um þessar hræðilegu alræðisstefnur sem steyptu skelfingu yfir heiminn eins og íslam hefur gert. Ég mótmæli þeim orðum þínum að ég sé hleypidómafullur og sé fáfróður um þessa alræðishyggja eða sögu íslam í 14 aldir. Ég hef kynnt mér þessa sögu þó að nýir hlutir séu sífellt að koma mér á óvart og þá yfirleitt vegna hryllings. Passa þú þig á helypidómum um mig og mína líka.

Valdimar H Jóhannesson, 10.4.2015 kl. 09:54

5 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jóhann sæll

Það er alveg í takti við almennan fréttaflutning á RÚV. Þar ríkir almennt Israels/gyðingahatur og endalaust hallað réttu máli. Stundum er eins og Hamas hafi þar sinn fulltrúa. Manni dettur í hug að fréttamenn þar séu hreinlega á mála kannski ekki með beinum peningagreiðslum heldur öðrum notalegheitum sem voru alkunnug á minni blaðamennskutíð og vörðuðu t.d. flottar utanlandsferðir með mikilli risnu og spennandi upplifunum.  Það væri alveg ástæða til að hvessa mjög augun á þessa menn til þess að átta sig á hvaða hvata þeir hafa fyrir fréttaflutningi með þessum hætti.

Valdimar H Jóhannesson, 10.4.2015 kl. 10:02

6 Smámynd: Jón Þórhallsson

Í stað þess að vera alltaf að sýna allt það sem fólk vil ekki; ætti rúv þá ekki að vera að leita að hinu eina sanna rétta leiðarljósi INN Í FRAMTÍÐINA?

Hvar skín VONARLÓSIÐ SKÆRAST?

=HVER HEFUR SVÖRIN SEM AÐ ALMENNIGUR ER AÐ LEITA AÐ TENGT STÓRU LÍFSGÁTUNNI?

Er biskup íslands og rúv nógu dugleg að spyrja hvort annað einhverrra spurninga opinberlega?

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1678435/

Jón Þórhallsson, 10.4.2015 kl. 10:33

7 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þakka þér Valdimar fyrir greinargóð skrif þín varðandi þennan málaflokk.  Skrif þín eru brýn og ættu fjölmiðlar að taka mark á þeim. 

RÚV hefur í gegnum tíðina flutt Gyðingahaturs áróður og hyglað hryðjuverkasamtökunum athugasemdalaust.  Þess vegna meðal annars er ég löngu hættur að hlusta eða horfa á hljóð- og sjónvarp, mér ofbýður fréttaflutningurinn.  Samt er ég neyddur til að halda þessu óþurftar apparati uppi.

Jón Þórhallsson, hið eina sanna leiðarljós er sá sem gefur okkur lífið.  Hann er vegurinn, sannleikurinn og lífið, nafn hans er Jesús sem er Kristur, Messías, sá sem koma mun.  Hann mun dæma lifendur og dauða.  Ekki eftir lögum dauðlegra manna heldur eftir lögum eilífs Guðs, en Orð Hans og lög breytast ekki, því Hann er ávalt sá sami og Hann var frá upphafi og til eilífðar nóns.

Tómas Ibsen Halldórsson, 10.4.2015 kl. 14:04

8 Smámynd: Jón Þórhallsson

Gæti biskup íslands gert eitthvað betur en hann/hún gerir í dag?

Gæti það ekki alveg eins verið ráð að gefa þjóðkkirkjunni einhverjar 20 mínútur í sjónvarpi rúv (frjálsar hendur) til að leysa lífsgátuna í hverri viku frekar en að sýna einhvern vitleysisgang?

Jón Þórhallsson, 10.4.2015 kl. 14:40

9 identicon

Ég vil benda þeim sem hafa áhuga á Islam og heimi múslima að lesa bækur egyptans Hamed Abdel-Samad. Hann er sonur imams frá Gísa, var meðlimur í bræðralagi múslima, en er nú búsettur í Þýskalandi. Hann hefur komið fram í mörgum sjónvarpsþáttum og hefur einnig verið mjög iðinn við bloggið, skrifað þar fjölmarga pistla á þýsku, ensku og að sjálfsögðu á arabísku.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 10.4.2015 kl. 15:26

10 Smámynd: Jón Valur Jensson

Við hverju bjóstu, Valdimar? Treystirðu 365 fjölmiðlum?!

En ég þakka þér upplýsandi pistilinn. Hér sem í mörgum skrifum þínum sýnirðu, að þú skyggnist undir yfirborðið og á bak við tjöld sýndarmennskunnar, vinnur heimavinnuna þína í heimildaöflun, ólíkt mörgum "fréttamanninum".

Jón Valur Jensson, 10.4.2015 kl. 18:57

11 Smámynd: Jón Valur Jensson

Og ég er sammála þér um frönsku múslimaþættina. Þeir voru mjög áróðurskenndir og meðvirkir með múslimum og m.a. ýmsu logið með þögninni.

Jón Valur Jensson, 10.4.2015 kl. 18:59

12 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Hér ferð  þú Valdimar í þann gír sem stuðningsmenn Ísraela gera mikið af sem er að rægja þá niður sem gagnrýna hið grimma hernámeldi Ísrael. Það er gert til að gera þá tortryggingega því það er erfiðara að hafa betur gegn þeim málefnanlega þegar verið er að verja jafn slæman málstað eins og málstað hins grimma hernámsveldis Ísrael. Þarna lepur þú upp áróðurinn frá einu af lygaráróðursritum Ísraela sem heitir Honest reporting.

Staðreyndin er sú að Mads Gilbert hefur hlotið viðurkenningar fyrir mannúðarstörf sín og eru nokkrar þeirra nefndar hér.  

 http://en.wikipedia.org/wiki/Mads_Gilbert

Og Mads Gilbert er ekki að flytja hatursáróiður gegn Ísrael heldur er hann að segja sannleikann um Ísrael. Ísrael er mjög grimmilegt hernámsveldi sem fer um með grimmilegum fjöldamorðum og kúgum. Þeir afsaka gjörðir sínar með því að Hamas nota óbreytta borgara sem mannlega skyldi og lepur Jóhann Einarsson upp lygaráróur þeirra í því efn hér í athugasemdum. Staðreyndin er sú að það liggja engar sannanir fyrir um að Hamas hafi notað mannlega skyldi. Vissulega fundust vopn í skólabyggingum í sumar en það var á meðan sumarfrí voru í skólunum og voru því engin börn eða starfsmenn í þeim á þeim tíma. Þeir voru því ekki að nota mannlega skyldi með þessu háttarlagi. 

Bæði Sameinuðu þjóðirnar og Amnesty international eru með menn á Gasa og bæði þessi samtök hafa rannsakað ásakanur um að Hamas hafi notað mannlega skyldi án þess að finna nein dæmi um það.

Vissulega er möguleiki að einhver dæmi séu til um að Hamas hafi notað mennlega skyldi og óbreyttir borgarar fallið af þeim sökum. En það er alveg á tæru að það eru þá fágætar undantekningar. Megnið af þeim óbreyttu borgurum ásamt skólum, sjúkrahúsum, rafveitum og öðrum innviðum Gasa sem Ísraelar hafa sprengt í loft upp voru hvergi nærri neinum Hamas liðum. Það er því alveg á tæru að þessir óbreyttu borgarar, skólar, sjúkrahús og rafveitur voru einfaldlega skotmörk Ísraela.

Þessar aðgerðir Ísraela voru því ekkert annað en vísvitandi fjöldamorð á óbreyttum borgurum ásamt vísvitandi eyðileggingu skóla, sjúkrahúsa, rafveitna og annarra innviða Gasa. Ísraelar hafa margítrekað staðið fyrri fjöldamroðum á óbreyttum borgurum ásamt eyðkleggingu innviða Palestínumanna frá stofnun ríkis síns og hryðjuverkasveitir Síonista það er stofnenda Ísraelsríkis stunduðu það fyrir stofnun ríkisins.

Ísraelar og stuðningsmenn þeirra eins og þú Valdimar og Jónann hafa verið duglegir við að breiða út lygaáróður þeirra og hafa þeir mjög öglua áróðursvél til þeirra verka. Það er þess svegna sem menn eins og Mads Gilbert eru nauðsynlegir til að leiðrétta lygaáróðurinn og koma sannleikanum að. Það sama á við um félagið Ísland Palestína.

Ekki deili ég skoðunum Mads Gilbert á lögmæti árásanna á tvíburaturnana en ég er þó alveg sammála honum með það að það er engin munur á þeim fjöldamorðum sem þar voru framin á óbreyttum borgurum og þeim fjöldamorðum sem Ísraelar hafa verið að faramkvæma með dyggum stuðningi Bandaríkjamamanna á óbreyttum borgurum á Gasa.

Og þó Mads Gilbert sé kommúnisti þá breytir það ekki þeirri staðreynd að gagnrýni hann á hið grimma hernámsveldi Ísrael er verðskulduð og sannleikanum samkvæmt.

Flestir fjölmiðlar hér á landi eru nokkuð hlutlausir gagnvart deilu Ísraela og Palestínumanna. Það er þó einn ljósvakamiðlill sem sker sig úr hvað það varðar og flytur linnulausan lygaráróður um þessa deilu og það er sjónvarpstöðin Omega. 

Hvað varðar gyðingahatur þá hafa Kristnir í gegnum tíðina verið allra trúarhópa verstir hvað það varðar. Múslimar og Gyðingar lifðu saman að mestu í sátt og samlyndi frá upphafi Islam og þangað til fyrir um 150 árum en á sama tíma þurftu Gyðingar að þola linnulausar ofsóknir af hálfu kristinna manna. Það var svo ekki fyrr en áhrif Kristinna Evrópumanna uxu í miðausturlöndum sem gyðingahatur fór að vaxa þar. Það var síðan uppgangur Síonista  og ofsóknir þeirra gagnvart múslimum sem enn bættu í gyðingahatur múslima. Gyðingahatur múslima er því innflutt frá kristnum Evrópubúum og afleiðing af raískri stefnu Síonista sem sögðust tala fyrir alla Gyðinga og ýmsir Múslimar trúðu því.

Það eru fjölmörg dæmi sem sýna þetta. Þetta má meðal annars sjá á því að í gegnum tíðina voru alls konar trúarbörð í þeim löndum sem Múslimar réðu og lifðu bæði Gyðingar og Kristnir oftast í sátt og samlyndi við þá. En í Kristnum löndum Evrópu voru aðrir trúarhópar ofsóttir og þrifust þeir því illa þar þó Gyðingar hafi þraukað en undir stöðugum ofsóknum.

Martin Lútar sem var stofnandi þeirrar trúarhreyfingar sem íslensks þjóðkirkjan tileyrir var til dæmis mikill gyðingahatari. Það má meðal annars sjá hér.

http://en.wikipedia.org/wiki/Martin_Luther_and_antisemitism

Hér er dæmi um skrif hans.

„In 1543 Luther published On the Jews and Their Lies in which he says that the Jews are a "base, whoring people, that is, no people of God, and their boast of lineage, circumcision, and law must be accounted as filth."[13] They are full of the "devil's feces ... which they wallow in like swine."[14] The synagogue was a "defiled bride, yes, an incorrigible whore and an evil slut ..."[15] He argues that their synagogues and schools be set on fire, their prayer books destroyed,rabbis forbidden to preach, homes razed, and property and money confiscated. They should be shown no mercy or kindness,[16] afforded no legal protection,[17] and these "poisonous envenomed worms" should be drafted into forced labor or expelled for all time.[18] He also seems to advocate their murder, writing "[w]e are at fault in not slaying them".[19] Luther calls prophet Jeremiah a heretic: "Jeremiah, you wretched heretic, you seducer and false prophet". He claims that Jewish history was "assailed by much heresy", and that Christ the logos swept away the Jewish heresy and goes on to do so, "as it still does daily before our eyes." He stigmatizes Jewish Prayer as being "blasphemous" (sic) and a lie, and vilifies Jews in general as being spiritually "blind" and "surely possessed by all devils." Luther has a special spiritual problem with Jewish circumcision.[20][21]““

Með þessum skrifum sínum breiddi Luther út gyðingahatur meðal kristinna manna og þá ekki hvað síst í heimalandi sínu Þýskalandi. Enda var það svo að í nánast hverju einasta riti sem Nasistar dreifðu með gyðingahatri var vitnað í Luther til að réttlæta hatrið.

Gott dæmi um mismunin á umburðalyndi Múslima samanborði við Kristna má benda á að á meðan Múslimar réðu Spáni fengu Kristnir menn og Gyðingar að vera þar í friði. En þegar kristnir menn náðu þar völdum voru bæði Múslimar og Gyðingar hraktir frá landinu yfir til Afríku.

Einnig má nefna að þegar Kristnir menn hertóku Jerúsalem á sínum tíma þá myrtu þeir alla Múslima og Gyðinga sem þeir náðu til ásamt því að brenna allar moskru og syngónur í borginni. En þegar Múalimar náðu borginni aftur um 90 árum síðar þá þyrmdu þeir öllum Kristnum mönnum þar og brenndu engar kirkjur. 

Bæði þessi dæmi sýna skýrt munin á umburðalyndi Kristinna manna og Múslima í gegnum tíðina. Umburðalyndi fyrir öðrum trúarbrögðum í meðal kristinna Evrópubúa er nýlegt fyrirbrigði. Múslimar hafa ekki tærnar þar sem Krostnir hafa hælana í ofsóknum gagnvart öðrum trúarhópum og fjöldamorðum í nafni trúar. Þar vantar mikið upp á.

Sigurður M Grétarsson, 10.4.2015 kl. 19:29

13 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Hörður

Ef marka má afar góðan fyrirlestur Hamed Abdel Samad  um íslamskan fasisma efast ég ekki um að skrif hans um íslam eru prýðileg þó að ég hafi ekki lesið eftir hann neitt en hlustað á þennan fyrirlesltur sem ég mæli með:

https://www.youtube.com/watch?v=zkJGD4bMw8o

Valdimar H Jóhannesson, 10.4.2015 kl. 21:32

14 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Sigurður

Þrátt fyrir allar rangfærslur þínar leyfi ég að langhundur frá þér birtist hér sem athugasemd en þú getur ekki ætlast til þess að ég nenni að svara þessu. Ég gerði ekki annað nú um hríð því hver athugasemd þín kallar á langt svar. En af því að þú ert fyrir langhunda bendi ég þér á þessa grein mína sem er í lengra laginu og svarar einhverju sem þú ert að halda fram.

http://valdimarjohannesson.blog.is/blog/valdimarjohannesson/entry/1443655/

Valdimar H Jóhannesson, 10.4.2015 kl. 21:47

15 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Jón Valur

Þakka þér fyrir þínar athugasemdir. Það er rétt hjá þér að 365 miðlar eru á afar lágu plani í fjölmiðlun og slá jafnvel sjálfu RÚV við sem bóða þó upp á Þorvald Friðriksson, einn af landsinn heitustu fjandmönnum Israels og gyðinga.  

Valdimar H Jóhannesson, 10.4.2015 kl. 21:56

17 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sigurður M

Þú tönnlast hér enn og aftur, eins og þinna Hildiríðarsona bræðra er siður, á sömu möntrunni sem er ekki annað en áróður og rangfærslur og búið er að svara þér með áður. Þú hefur ekki skoðað þetta um þennan áróðurslækni þar sem hann er tekinn í landhelgi :

https://www.youtube.com/watch?v=1Dp7fanDrfI

Sömuleiðis er Valdimar að svara þér vel og síðan um þennan áróður um góðu Hamas mennina er auðvitað alrangt eins og þú getur séð :

Hvað hafa egyptar að segja um Hamas ?

.

https://www.youtube.com/watch?v=7VtENBF_yjo

.

.

 

Líttu á þetta :

https://www.youtube.com/watch?v=6DCuRzzsKnk

.

iVðurkenna að Hamas hafi gert göng til þess að ræna ísraelskum hermönnum

https://www.youtube.com/watch?v=s58aGaQ2OXU



ummæli araba sjálfra um að þeir beiti börmnum fyrir sig sem skildi :

https://www.youtube.com/watch?v=htRpQ4kUX2A

.

https://www.youtube.com/watch?v=SoYmuH3NOv8

.

https://www.youtube.com/watch?v=SoYmuH3NOv8

.

.

Á þessum myndböndum má sjá lýsandi dæmi um það hversu skítt "Palestínumenn" á Gaza hafa það.  Á fyrra myndbandinu bregður fyrir kunnuglegum andlitum.

.

http://www.youtube.com/watch?v=yM7_R8Oih-k 

.

http://www.youtube.com/watch?v=6f21_mj8fz0

.

.



Tíu goðsagnir og staðreyndir um Gaza stríðið

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 10.4.2015 kl. 23:10

18 identicon

 Valdimar komdu nú með almennilegar sannanir geng Mads Gilbert, hver einn og einasti linkur sem þú birtir er linkur á ísrelska stuðningssíðu fulla af Ísraelsku hasbara. Þessi maður hefur fengið fjölda verðlauna fyrir störf sín, og satt að segja er hann miklu trúverðugri en þú, þar sem þú leggst það lágt að kalla ALLA sem fordæma ólöglegt hernmám Ísraels sem gyðingahatara! Sem er vikrilega alvarlegt og raunverulegt vandamál í þessum heimi, og þú ert að gera lítið úr þessu vandamáli og gyðingum með því að kalla alla sem opna á sér munninn til að gangrýna Ísrael gyðingahata. Það er lágkúra af verstu sort!

Agnes Ósk Þorgrímsdóttir (IP-tala skráð) 11.4.2015 kl. 11:13

19 Smámynd: Óskar

Alltaf skal sannleikurinn í þessu máli uppnefndur sem "Gyðingahatur".  Sannleikurinn er sá að hinir raunverulegu hryðjuverkamenn á þessu svæði eru Ísraelsstjórn og Ísraelsher.  Þeir hafa drepið tugi þúsunda Palestínumanna undanfarna áratugi, langflesta óbreytta borgara.  Þeir stela stöðugt meira landi af Palestinumönnum, múra þá inni í gettói, skerða ferðafrelsi heillar þjóðar, sprengja sjúkrahús, skóla og aðra samfélagsinnviði reglulega og halda tugum þúsunda Palestinumanna í fangelsum án dóms og laga.  Meðferðin sem Palestínumenn hafa þurft að þola frá kúgurum sínum er miklu verri en þekktist á tímum apartheit stefnunnar í S.Afríku.  Ef ekki væri fyrir stuðning Bandaríkjanna við þessi ógeð þá væri löngu búið að boycotta Ísraela útúr öllum alþjóðlegum viðskiptum.

ÞETTA ER NEFNILEGA SANNLEIKURINN OG ÞAÐ VITA ALLIR, SUMIR ÞOLA BARA EKKI AÐ HEYRA HANN.

Óskar, 12.4.2015 kl. 06:25

20 Smámynd: Jónatan Karlsson

Það kaldhæðnislega við sívaxandi andúð og fyrirlitningu heimsbygðarinnar á framferði gyðinga í Ísrael byggist ekki einungis á hernámi og stríðsglæpum brynsveita þeirra á varnarlausum fólkinu í "flóttamannabúðunum" en að mínu mati ekki síður á málsbótum og útskýringum meðreiðasveina þeirra, líkt og hér heyrast.

Hvort heldur sem þessi þróun öll er einungis liður í uppfyllingu spádómana um heimsendi í kjölfar stórstyrjaldar og vítisloga og þeir sem styðja sem ákafast og standa vörð um bálköstinn, einungis handbendi illra anda, þá leyfi ég mér að fullyrða að meirihluta okkar hinna taka heilshugar undir með sjónarmiðum norska skurðlækninisins, Mads Gilbert.

Jónatan Karlsson, 12.4.2015 kl. 09:44

21 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Óskar

grein mín stendur en þér er frjálst að hafa þínar skoðanir jafnvel þó að þær séu lítilsvirði að mínu mati. Þér og sanleikanum væri þó örugglega holt ef þú kynntir þér málin betur og sparaðir gífuryrðin. Þau geta komið leiðinlega í bakið á þér seinna.

Valdimar H Jóhannesson, 12.4.2015 kl. 10:09

22 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jónatan

svar til Óskar á einnig við þig. Þér er frjálst að leiða staðreyndir málsins hjá þér og berja hausnum við steininn ef þú lítur ekki á mig sem steininn sem þú þarft endalaust að berja hausnum við.

Valdimar H Jóhannesson, 12.4.2015 kl. 10:53

23 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Agnes

þær eru sérkennilega fullyrðingar þínar að allar upplýsingar sem ég gæti komið með um Mads Gilbert séu frá stuðningsaðilum Israel. Ég vísa í 11 aðila með umsagnir um norska marxistann, Maóistan og Pol Pott aðdáandann Mads Gilbert. Ef þeim eru 6 norskir, 2 bandarískir, 1 danskur og 2 frá Ísrael. Samkvæmt þér eru annað hvort tveir meirihlutinn í hópi ellefu eða að allir sem gætu komið með upplýsingar til staðfestu orðum mínum eru samkvæmt þinni skilgreiningu strengjabrúður "vondra" zionista. Ég stend við orð mín. Getur þú staðið við orð þín?

Valdimar H Jóhannesson, 12.4.2015 kl. 11:00

24 Smámynd: Jónatan Karlsson

Valdimar,

Hótanir þínar um að "gífuryrði" Óskars og mín líka, muni koma í bakið á okkur, þó síðar verði, koma mér alls ekki á óvart og segja í raun og veru meira um þig og málstað þinn en þú sjálfur gerir þér grein fyrir.

Jónatan Karlsson, 12.4.2015 kl. 12:43

25 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jónatan

ég held okkur sé báðum fyrir bestu að að vera ekkert á skiptast á skoðunum. Þú skilur ekki það sem ég segi og leggur það út á versta veg. Svar mitt var engin hótun heldur ráðlegging og ég skil engan veginn heimsenda vangaveltur þínar eða að hverjum þær ættu að beinast. Vinsamlegast hættu að senda mér athugasemdir þínar. Þær leiða einungis til aukins flækjustigs sem ég nenni engan veginn að fara inn í. Vertu með umræður á þinum eigin bloggi um þau mál sem eru þér hugleikinn. Ég er viss um að þú færð þar einhvern til þess að ræða við þig um heimsendahugmyndir í anda íslam.

Valdimar H Jóhannesson, 12.4.2015 kl. 13:11

26 Smámynd: Jónatan Karlsson

Valdimar,

"If you can't stand the heat, get out of the kitchen"

Jónatan Karlsson, 12.4.2015 kl. 16:52

27 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

 Jónatan

mér finnst þið sumir alltaf vera með sama grautinn í sömu skál.Með öðrum orðum: Þetta er of grautarlegt fyrir minn smekk. Það er sem sagt ekki hitinn heldur bragðið af hrærigrautnum sem fellur mér ekki í geð. Grauturinn er ekki lystugur jafnvel þegar hann er farinn að kólna.

Þetta verða síðustu orðin mín. Framhaldið þitt verður að vera á þinu eigin bloggi.

Valdimar H Jóhannesson, 12.4.2015 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 192246

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband