Leita í fréttum mbl.is

Hver siglir á fíflaskipinu?

Árni Matthíasson blaðamaður Mbl vitnar í skemmtilega allegóríu um fíflaskipið sem ýmsir hafa notað í gegnum tíðina til að lýsa kjánum sem eru að ana út í einhverja vitleysu eða gá ekki að sér oft vegna gáfna- og þekkingarskorts eða málefnalegrar forstokkunar og ofstækis. Oft er skipinu ekki valin neinn áfangastaður. En af því að Árni er tæknilega sinnaður nútímamaður vill hann setja okkur fíflin, sem hann vill þagga niður í, upp í fíflarútu sem æki með okkur út í buskann og endaði úti í móa þar sem við ættum heima. Rútan þarf ekki að vera stór segir Árni af því að við erum ekki stór hópur. Honum er líka léttir í því að hugsa til þess að við séum komnir af léttasta skeiði svo að dauðinn muni fljótlega þagga niður í okkur.

Árni segir það réttilega að fíflaskipið hefur verið látið ná til ýmissa hópa alveg frá tímum Plato sem fyrstur er sagður hafa notað þessa líkingarsögu. Sagan er sérlega gagnleg til aða þagga niður í andstæðingum ef rökin vantar. Þeir eru sagðir vera í fíflaskipinu. Þarf frekari rök? Ef svarið er já þá eru önnur til sem Árni notar einnig fimlega í grein sinn, - að hengja merkimiða á andstæðinginn og ætla honum ýmsar kenndir sem koma þó ekkert því málefni við sem til umfjöllunar er. Þannig segir hann okkur öfgamennina, sem höfum farið „hamförum vegna moskunnar á vegum Íslands í Feneyjum og æsum okkur yfir múslímum“, einnig á móti „nýjungum í listsköpun, á móti réttindum samkynhneigðra og kynfrelsi kvenna“. Hann segir okkar keppast við að skrifa vanstilltar bloggfærslur og „klappa hver öðrum á bakið fyrir að hafa nú aldeilis sýnt múslimum / hommum / femínistum / listamönnum í tvo heimana í einskonar haturshópefli”.

Ég get ekki svarað fyrir allan hópinn en þessir merkimiðar eiga ekki við mig, - engir þeirra.Og þó einhver merkimiðinn ætti við skipti það bara engu máli um umfjöllunarefnið. Merkimiðinn að vera á móti múslímum sem er þó annar aðal útgangspunktur Árna á ekki einu sinni við um mig. Ég er á móti sumum múslímum alveg eins og ég er á móti sumum kristnum mönnum. Árni ræður greinilega ekki við það frekar en margur að skilja á milli íslam og múslíma. Múslímar eru alls konar fólk, gott og vont eins og gengur og gerist með allt fólk jarðarainnar. Íslam er hugmyndafræði. Múslímar eru fólk sem var svo óheppið að fæðast inn í samfélag þar sem íslam drottnar af miskunnleysi yfir mannfólkinu í öllum sínum hrikalega ljótleika. Ég er 100 % andvígur íslam en flestir múslímar eiga alla mina samúð því að hlutskipti þeirra er sannarlega ömurlegt.

Svo er alltaf spurninginn hver er á fleyi hinna andlegu heilu og hver er á fíflaskipinu á leið sinni í fíflaparadís? Eru það Árni, Goddur og undansláttar- og bætiflákamennirnir eða einhverjir aðrir? Ég veit hvert svar mitt er án þess að þurfa að grípa til merkimiða. Merkimiðar liggja þó á lausu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi grein hans Árna er nú tvíeggjuð svo ekki sé nú meira sagt.  Ég get nú ekki betur séð en að áhöfn fíflaskipsins sé skipuð Rétttrúnaðarliðinu og hvort Árni er þar háseti eða eitthvað annað er ljóst að hann skilur ekki þá skömm sem rétttrúnaðarliðið hefur kallað yfir land og þjóð, með þessari vitleysisuppákomu í Feneyjum.

Jóhann Elíasson, 13.5.2015 kl. 16:08

2 identicon

Vel orðað Valdimar. Eins og augljóst er af þessum uppnefningum og útúrsnúningum Árna og hans líka þá er þetta verulegur greindarskortur og óþol gagnvart málflutning sem ekki er í formi klappkórs og viðhlægjenda. Þetta er sýnist mér fólk sem alið er upp við engan aga og ábyrgð og hefur því aldrei náð andlegum þroska hærri en kenjótts barns. 

Karl Löve (IP-tala skráð) 13.5.2015 kl. 17:58

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Eigum við að kýkja um borð í það skip þar sem að Árni er í áhöfn: X-D-skipið?  Hvernig mun framtíðin verða í því skipi?

Enginn til að spyrna við fótum?

http://www.mbl.is/frettir/taekni/2014/07/11/hiv_smitum_fjolgar_medal_samkynhneigdra/

Stefnan?

http://www.t24.is/?p=5993

Hugmyndafræðin?

http://hrydjuverk.com/kvennakugun-i-islam/

Jón Þórhallsson, 13.5.2015 kl. 18:02

4 identicon

Satt segir þú, Valdimar. Ég skildi ekki þessa grein hans Árna almennilega og vissi eiginlega ekki, hvert hann var að fara með henni. Ég furðaði mig líka á orðbragðinu, ef hann var að meina, að við, sem erum andstæð þessum gjörningi þarna suðurfrá, værum fífl að syngja honum ekki lof og prís, eins og hann, Goddur og fleiri. Þegar ég talaði um fífl í athugasemd, sem ég sendi til Velvakanda, þá var ég beðin um að gæta hófs í orðavali, því að svon orðbragð gætu þeir ekki birt. Þess vegna var mér spurn í morgun, þegar ég leit yfir þessa grein hans Árna, hvort slíkt ætti  bara við um okkur, fólkið útí bæ, sem erum að skrifa í blaðið,en ekki blaðamennina sjálfa. Það þætti mér nefnilega einkennilegt, því að ég hélt nú, að blaðamenn ættu ekki síður að vera kurteisir í skrifum sínum heldur en við hin. Mér finnst það líka fáránlegt, svo ekki sé meira sagt, að kalla okkur andstæðinga þessarrar svokölluðu "listar" þarna suðurfrá, fífl fyrir að lýsa yfir andúð okkar á þessu arna, sem er fjarri því að vera okkur til sóma, og er hreinasta hneyksli, finnst mér, hvað sem hver segir.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 13.5.2015 kl. 18:39

5 Smámynd: Jón Magnússon

 Skelfing finnst mér leiðinlegt að sjá svona tilraun til þöggunar frá blaðamanni Morgunblaðsins. En það er ákveðin leið til að reyna að gera lítið úr skoðunum annarra að hengja á þá merkimiða sem þeir eiga ekki skilið og bregða þeim um þekkingar- eða greindarskort. Ekkert af þessu vantar hjá þessum blaðamanni.

Jón Magnússon, 14.5.2015 kl. 12:41

6 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Jón

það er ekki aðeins leiðinlelgt heldur beinlínis hættulegt að reyna svona í sífellu að þagga niður í mönnum sem hafa burði til að segja sannleikann um hvaða hætta okkur er búinn af völdum íslam. Afleiðing af þöggun á þeim sem reyndu að vara við upphafi nasismans í Þýzkalandi kostaði 55 milljónir nabba lífið. Það er skiptimynt í þeim fórnum sem mannkynið mun þarf að þola af völdum íslam ef ekki verður unnt að stoppa jihad og hjálpa múslímska heiminum undan þessari hryllilegu kúgun og vesöld sem íslam skapar þeim. Þetta eru ekki ýkjur.

Valdimar H Jóhannesson, 14.5.2015 kl. 13:12

7 identicon

Trúarbrögð eru bara til vandræða. Af þeim sprettur oft á tíðum ofstæki og yfirgangur, og fáfræði.

Bjarki (IP-tala skráð) 15.5.2015 kl. 13:01

8 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Bjarki

Ég er ekkert endilega sammála þér um trúarbrögð almennt þó að ég sé ekki trúmaður. Ég hef þó skilgreint mig sem kristinn guðleysingja, þ.e. maður sem er þakklátur fyrir kristnina þó að ég eigi erfitt með að trúa á „draugasöguna“ eins og einhver fyndinn maður sagði. Ég vil búa í kristnu samfélagi og á auðvelt með að taka þátt í krikjulegu athöfnum. Ég tel að Vesturlönd eigi kristninni að þakka að þeim hefur tekist að mynda bestu samfélög manna sem heimurinn hefur nokkurn tímann átt þó að enn megi þau batna og munu gera ef þau fá frið til þess fyrir froðufellandi íslam sem sækir með vandamál sín og frumstætt alræðiskerfi inn í heim okkar.

Ýmis trúarbrögð heimsins hafa fagrar hliðar enda kemur okkur ekki við hverju fólk vill trúa svo lengi sem það krefst þess ekki að trú þeirra og hugmyndafræði gildi einnig fyrir hina sem ekki tilheyra hópnum. Því miður telja áhangendur íslam sér skylt að neyða alla inn í hóp sinn og það með blóðsúthellingum ef önnur ráð duga ekki. Fullkomin höfnun þeirra á almennum mannréttindum gerir íslam einnig ófært um sambúð við siðað fólk. 

Það er rangt að setja öll trúarbrögð undir sama hatt. Með því er verið að gefa íslam „leyfi“  fyrir allan sinn takmarkalausa skepnuskap. Heimurinn þarf að einsetja sér að hjálpa múslímum að koma út þeirri geggjun sem íslam hefur sett þá í með hörmulegum afleiðingum eins og alls staðar blasir við í hinum múslímska heimi sem bannar fólki að sækja fram til betra lífs. Múslímar eru ekkert síðri en annað fólk að upplagi og lönd þeirra gætu aftur orðið merkustu menningarsvæði landsins eins og þau voru í eina tíð ef helsið er tekið af þeim.

Valdimar H Jóhannesson, 15.5.2015 kl. 13:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband