Leita í fréttum mbl.is

Moska er víghreiður

Nú hafa líkindi þess að moska rísi í Sogamýri aukist mjög. Bæði liggur nú fyrir að hún hefur verið teiknuð og fjármögnun hennar hefur verið tryggð með fjármunum frá Saudi Arabíu og eflaust fleirum ríkjum múslíma. Enginn ætti að efast t.d. um að forseti Íslands segir sannleikann um yfirlýsingar sendiherra Saudi Arabíu um að þarlend stjornvöld muni reiða fram 130 milljónir króna til að byggja moskuna. Útúrsnúningur talsmanna múslíma er ómarktækur.

Þeir segja nú að peningarnir frá Saudum hafi farið í kaup á Ýmishúsinu árið 2012 eins og það sé ekki nógu alvarlegt. Yfirlýsing sendiherrans var hins vegar á þessu ári og því ljóst að fjármmunir til að byggja moskuna í Sogamýrinni er til viðbótar fyrra fjárframlagi. Lýsing Salmanns Tamimi um að söfnuðurinn muni greiða fyrir moskuna er eins og fleira úr munni hans. Fráleit. Almenningur á kröfu til þess að fjármögnun salafista á Íslandi sé upplýst að fullu.

En hvernig hús er moska? Margir líkja moskum við tilbeiðsluhús kristinna manna, gyðinga, hindúa eða búddista án þess að skilja, að moska þjónar ekki aðeins tilbeiðsluþörf múslíma heldur er hún stjórnstöð fyrir allt veraldlegt og andlegt líf múslíma. Íslam gerir ekki greinarmun á veraldlegum og trúarlegum þáttum lífsins. Samkvæmt íslam er lífið sjálft aðeins hluti trúarlífsins en önnur trúarbrögð líta svo á að trúin sé hluti lífsins. Frelsi einstaklings er víðsfjarri eðli íslams. Reglur íslams ráða yfir öllu lífi og hegðun manna. Skyldan til undirgefni við Allah er skilyrðislaus.

Moskan er skóli, dómstóll, æfingastöð, samkomuhús en ekki eingöngu tilbeiðslustaður. Allar moskur heimsins eru að fyrirmynd fyrstu moskunnar, mosku Múhameðs í Medína. Þar kvað Múhameð upp dóma, hverja skyldi lífláta, hvernig haga skyldi árásum og stríði. Moskan var geymslustaður vopna, æfingastöð fyrir stríðsmenn Múhameðs og bardagasveitirnir voru sendar þaðan til að ræna, rupla, drepa og hneppa í þrældóm, kúga heiminn undir Allah og Múhameð, - undir yfirráð íslams.

Allar moskur gegna sama hlutverki sem moska Múhameðs í Medína. Alkunna er að ýmislegt fer fram innan moskanna sem brýtur gróflega gegn þeim samfélögum sem hafa leyft starfsemi þeirra. Vopn hafa iðulega fundist í moskum. Þar eru lögð á ráðin til að kúga löndin undir alræðið og kannanir sýna að í 80% af moskum í Vesturlöndum er boðað jihad, hatur, dauði og tortíming manna af öðrum trúarbrögðum eins og boðað er í helstu trúarritum múslíma, kóraninum, hadíðum og sirah.

Engum kom á óvart að sprengjuverksmiðja Hamas fannst í mosku á Gaza. Hins vegar vakti meiri athygli þegar vopn fundust í moskunni í Finnsburys Park í London. Imaminn þar, Abu Hamza, þjálfaði hermdarverkamenn og geymdi vopn í moskunni. Hann sá ekkert athugavert við þessa hegðan enda í samræmi við handbækur íslams. Aðrir imamar styðjast við sömu bækur, sama stýriverk.

Moska er merki um yfirráð íslams jafnvel í landi þar sem múslímar eru í minnihluta og ákall til þeirra að endurheimta landið undir yfirráð Allah og sharíalög. Múhameð sagði Gabríel erkiengil hafa fært honum þau skilaboð Allah að allur heimurinn væri ein allsherjar moska. Þeir sem neita þessu hafi brotið af sér gegn Allah. Múslímum er ætlað að endurvekja yfirráð Allah yfir svæðum sem hafi verið tekið frá Allah með rangindum. Þeir sem verjast þessari „göfugu“ ætlun séu því í raun árásaraðilar gegn Allah og því er jihad ekki árás múslima á „kuffar“ (skammaryrði múslima fyrir alla þá sem ekki eru múslimar) heldur varnaraðgerðir gegn rangindum sem kuffar hafa í frammi gegn Allah og Múhameð (sem nú hefur legið dauður í ómerktri gröf í 1383 ár).

Hér er ástæða til að rifja upp orð, sem Erdogan, forseti Tyrklands gerði að sínum:. „Moskurnar eru herskálar okkar, hvelfingarnar hjálmar okkar, bænaturnarnir byssustingir og hinir trúræknu hermenn okkar.“ Það eru því ekki mín orð að moska sé vígi óvinarins í landi okkar heldur orð íslamistans. Erdogan hefur sama skilning sem ég og fjölda margir aðrir hafa, að moska er eins konar víghreiður múslíma inni á landi óvinanna til að ná þeim undir sitt vald. Í þessu tilviki erum við Íslendingar óvinirnar sem þarf að ná undir vald Allah og sharíalaga með öllum tiltækum ráðum. Ef ekki með fortölum þá „með sverðinu“ þ.e. með „sverðinu“ sem er skreytir fána múslíma í ýmsum myndum. Íslam skiptir heiminum í tvennt. Dar el harb (hús stríðsins) og Dar el Islam (hús íslam). Ísland er í húsi stríðsins, þ.e. er í þeim hluta heimsins sem íslam á í stríði við.

Einn helsti tilgangur með mosku er að vinna að „hijra“ einstaklinga og með því að íslamísera samfélagið þar til íslam er ráðandi og getur kúgað samfélagið undir sína stjórn og þá auðvitað sérsaklega hina „skítugu trúleysingja“ (kuffar). Hijra hét flutningur Múhameðs frá Mekka til Medína þegar staða hans breyttist frá því að vera heldur illa þokkaður götuprédikari í voldugan og grimman herkonung. Það felst í hijra að taka upp múslimska háttu t.d. fyrir konur að klæðast í slæður yfir hár og jafnvel fyrir andlit og láta hvergi sjást í hold nema kannski á höndum og á andliti. Sérstaklega jafngildir þetta að flytjast frá »jahiliyyah« (fáfræði fyrir daga íslams) til fullrar íslamiseringar, þar með talin innleiðing sharíalaga.

Trúfrelsisákvæði stjónarskrárinnar eiga ekki við um íslam vegna þess að íslam stenst ekki skilyrðin sem stjórnarskráin setur fyrir iðkun hennar hérlendis. Hér er vísað í 63. grein stjórnarskráinnar: »Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu.«

Þeir, sem þekkja íslam, vita að íslam samræmist ekki góðu siðferði eða allsherjarreglu. Flestir sem ekki þekkja íslam ættu að hafa hugboð um þetta sama. Hvað boðar íslam sem ekki samræmist allsherjarreglu? Hér koma nokkur atriði:

Misrétti milli karlmanna og kvenna. Misrétti milli múslíma og annarra trúarhópa. Dauðarefsingar fyrir að ganga af íslamstrú. Dauðarefsingar fyrir samkynhneigð. Limlestingar fyrir t.d. þjófnað. Dauðarefsingar fyrir að hallmæla íslam eða Múhameð. Bann á tjáningarfrelsi um íslam. Karlmönnum er leyft að eiga fjórar konur. Margt fleira ljótt má tína til.

Fari svo að moskan í Sogamýri rísi fyrir peninga frá arabískum salafistum, sem hafa verið að styrkja ISIS og Al Kaída, ber lögreglunni að stöðva boðun íslams í húsinu. Sama á við um starfsemi beggja félaga múslíma á Íslandi, nema þessi félög lýsi yfir andstöðu við þau ákvæði í trúarritum sínum sem stríða gegn allsherjarreglu (þ.e. öll íslensk lög) og góðu siðferði eins og við skilgreinum það.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Valdimar jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Þetta er svo geigvænleg þróun: að líkja má helzt við hápunkta mannfórna Aztekanna vestanhafs, hér fyrr á tíð, síðuhafi góður - og er þá, all nokkuð mikið sagt.

Það ískyggilegasta er - fagurgali og undirferli hinna Múhameðsku, og hversu þeim er lagið að spila á tilteknar samúðartaugar á Vesturlöndum: ekki bara Íslendinga / sem og allt of víða, í Suðurlöndum, ekki síður.

Ég hygg Valdimar: að við getum kvatt þann Siðmenningarvott, sem ennþá örlar þó á hérlendis, verði þessi byggingaráform Mekku fylgjendanna að veruleika: algjörlega.

Með beztu kveðjum - sem endranær, af Suðurlandi /

 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.11.2015 kl. 20:16

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Sæll Valdimar,andstæðingur gjafakvótans og því skilgreindur sem sannur Íslendingur. Óskar Helgi! Við Strákarnir sjáum til þess að byggingin muni ekki standa á þessum stað. Þetta vita þeir sem vilja. Og mættu fleiri læra um áform Íslamista í Skandinavíu og aðferðafræðina í Noregi sérstaklega.

Eyjólfur Jónsson, 28.11.2015 kl. 00:06

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 28.11.2015 kl. 07:36

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Í Frakklandi eru í gildi neyðarlög sem gefa lögreglu þar býsna mikið vald. Hvers vegna hefur franska lögreglan ekki ráðist inn í allar moskur þar, gert vopnabúrin upptæk og fangelsað hina brotlegu?

Ómar Ragnarsson, 28.11.2015 kl. 10:19

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ef að fólk vil verja landi; þá verður það að mæla með stjórnmálaflokkum á ALÞINGI sem að eru VARNARSTEFNU Í SINNI STEFNUSKRÁ:

http://www.petitions24.com/stunings-yfirlysing_vi_kristilega_-mijuflokkinn

-------------------------------------------------------

Hvað kennir Þjóðkirkjan? "Ég er Drottinn GUÐ þinn; þú skalt ekki aðra guði hafa"! Úrskurðurinn hans Þorgeirs Ljósvetningagoða gæti í raun alveg eins átt við ástandið í heiminum í dag eins og á Íslandi fyrir 1000 árum!

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/2159725/

Jón Þórhallsson, 28.11.2015 kl. 10:26

6 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Ómar

veist þú nokkuð um hvað franskalögreglan er að aðhafast. Ætli hún hafi ekki yfrið nóg á sinni könnu. Það þarf 30-60 lögreglumenn til að fylgjast með hverjum grunsamlegum að mati lögregluyfirvald í ýmsum löndum. Múslímar eru um 6 milljónir í Frans. 

Valdimar H Jóhannesson, 28.11.2015 kl. 13:48

7 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jon Valur

þakka fyrir góð orð

Valdimar H Jóhannesson, 28.11.2015 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 192156

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband