Leita í fréttum mbl.is

Hættuleg vankunnátta á örlagatímum

Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Mbl gerir spurningu þingmanns Græningja í Þýskalandi, Franzisku Brantner, að sinni vegna hryðjuverkanna í Brussel: „Hvers vegna hata þau okkur svona mikið?“ Svar Styrmis við þessari spurningu er alveg fráleitt og byggist á hættulegri vankunnáttu. Miklu varðar að þjóðin skilji að svona svör kalla á röng viðbrögð.

Styrmir á það svo sem alveg skilið að fá að hafa á röngu að standa eins og öðrum sem leyfist að tjá sig. Hann stóð fyrir því í ritstjóratíð sinni að halda Morgunblaðinu opnum fyrir alls kyns skoðunum þó að þær gengju gegn ritstjórnarstefnu blaðsins og sýndi með því gott fordæmi. Hann er eflaust því sammála að mér beri að svara honum ef ég tel hagsmuni þjóðarinnar vera í húfi.

Styrmir leitar skýringa á hryðjuverkunum í Brussel til nýlendutíma Belga í Kongó sérstaklega en einnig til nýlendutíma Evrópuþjóða almennt og grípur til tilvitnunar í bók sem sýnir litla hófstillingu í lýsingum á grimd nýlenduþjóða Vesturlanda. Því er lýst m.a. að „fólk var hýtt miskunarlaust, limlest fyrir minnstu sakir og jafnvel myrt í hópum. Heilu þorpin voru brennd til grunna. Stundum var vopnuðum sveitum nýlenduherranna gert að skila inn afskornum útlim fyrir hverja byssukúlu, sem þær höfðu notað“.

Það er hneykslunartónn í grein Styrmis vegna spurningar þýsku þingkonunnar í ljósi ofangreindrar lýsingar því að hann ályktar að framferði fulltrúa evrópsku menningarþjóðanna í Mið-Austurlöndum hafi verið áþekkt. Hann vekur athygli á því að seinni heimsstyrjöld hafi brotist út vegna þess að Þjóðverjar voru látnir borga svo miklar stríðsbætur eftir fyrri heimsstyrjöld og kemst svo að að þeirri stórfurðulegu niðurstöðu að þess vegna eigi þær Evrópuþjóðir, sem hlut eiga að máli, að greiða fyrrverandi nýlendum sínum bætur fyrir meðferðina á fólkinu og stuld á auðlindum þessara þjóða eins og að þarna sé eitthvað samasem merki á milli !

„Það er skollið á eins konar stríð í Evrópu og því mun ekki linna fyrr en nýlenduþjóðirnar horfast í augu við eigin sögu og afleiðingar hennar“, skrifar Styrmir. Fyrsti hluti setningarinnar er jafn sannur eins og seinni hlutinn er fráleitur. Hann á það sameiginlegt með mörgum sem spyrja í ráðleysi sömu spurningarinnar að honum dettur ekki hug hið augljósa svar: Þeir hata okkur því að við erum ekki múslímar og eru ekki reiðubúnir til að gefast upp fyrir íslam.

Þetta svar hefur legið ljóst fyrir í nær 14 aldir. Þetta hatur blasir við í Kóraninum og sunnah (fordæmi Múhameðs eins og það birtist í hadíðum, þ.e. frásögnum af gerðum og orðum Múhameðs og nánustu liðsmanna og sirat, sem er opinberlega viðurkennd æfisaga hans). Börnum múslíma er mörgum innrætt þetta hatur með móðurmjólkinni og því er viðhaldið í mörgum moskum. Til þess að þetta sé ljóst verður auðvitað að kynna sér íslam og sögu þess. Án þess er ályktað út í bláinn.

Þeir hata okkur af því að við erum kuffar, fyrirlitlegir trúleysingar, sem lútum ekki ennþá íslam með því að gerast múslímar eða með því að taka stöðu dhimma og borgum múslímum fyrir að fá að halda lífi með sérstökum skatti, jizya og viðurkennum lægri þjóðfélagsstöðu okkar, sem okkur leyfist ef við erum fólk bókarinnar (þ.e. kristnir eða gyðingar). Annars eru aðeins möguleg trúskipti, brottflutningur eða dauði samkvæmt bókinni.

Múslímar stunda hryðjuverk út um allan heim. Styrmir þarf að svara því hvaða nýlenduglæpi þurfi að svara fyrir í Nígeríu, Mali, Burkino Faso, Kamerún, Súdan, Kenýa, Indlandi, Filippseyjum, Tælandi, Myanmar, Pakistan, Bali, svo nokkur lönd séu nefnd þar sem hryðjuverk múslíma eru afar tíð í nútímanum. Talið er að múslímar hafi drepið hátt í 300 milljónir manna í 14 aldir af öðrum trúarbrögðum vegna jihad, útþennslustefnu í því sem þeir kalla Dar al harb ( hús stríðsins þar sem íslam ríkir ekki). Nýlendusaga Vesturlanda og múslímskra landa er eins frábrugðin og barnasaga er forhertri glæpasögu.

Það kann ekki góðri lukku að stýra að hafa að engu harðar staðreyndir um íslam, eðli þess og sögu. Undansláttur að hætti Styrmis er þjóðinni hættulegur á örlagatímum eins og nú eru uppi á Vesturlöndum og ætti að vera öllum ljós sem vilja kynna sér staðreyndir, jafnvel þó þær séu óþægilegar. Af því að mér er hlýtt til Styrmis Gunnarssonar vil ég gjarnan verða til þess að leiða hann út úr myrkrinu í þessum efnum.

 

P.S. Þessi grein birtist í Mbl nú um helgina og er svar við grein Styrmis frá síðustu helgi.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Góð grein hjá þér og ég setti strax up spurningamerki vegna Styrmis. Hann hefi kannski ekki insýn í sögu Íslams og vinnuaðferðir þeirra ISIS manna og presta þeirra sem hafa alið upp aðra og þriðju kynslóð Múslíma. Önnur kynslóð er byrjuð á sínum hernaði þ.e. að hafa áhrif á útlendingastofnun til að safna trúbræður beint af stríðssvæðunum. 

Valdimar Samúelsson, 3.4.2016 kl. 21:11

2 identicon

Sannleikan er sá að nýlendafólk for ansi illa með það fólk sem þeir voru að kúga, stela landið frá og gull og demanta, og drepa. Það er ekki hægt að neita því. Og svo voru það krossferðir. Ég er alveg á moti Múslimum og hef kynnt mér sögu þeirra. En Evropabúa foru einnig til Amerika og drápu meira en 15 MILLJÓNIR Indíáner þar til aðeins 800 000 voru eftir. Drottinn hefur ekki gleymt voðarverk þeirra og nú kemur að skuldadögum í 21.aldur, Matteus 24 !!!

Sonja R.Haralds (IP-tala skráð) 4.4.2016 kl. 01:49

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Ég hlusta og trúi þegar fólk með víðtæka þekkingu á viðfangsefninu tjáir sig,eins og síðuhafi gerir.En get mér annars til, burt séð frá hvaða trúar boðorðum mönnum ber að hlýta,að einhverjir hafi mikla löngun og þá þörf til að fulnægja öfgaráðríki sínu með ofbeldi.Í kristnum þjóðríkjum eru viðurlög við því,en í Islam er léttur leikur að seðja það óeðli.Þá hvarflar hugurinn að því ótrúlega,ef allur heimur verður Islam,glatar megnið af körlum sínu lífselexerí,engan til að hata,bara að flengja konur og karlmennskan þróast í geldinga.Það væri svo eftir því að konur sem eru allra manna hugdjarfastar,tækju völdin af afstyrmunum!! Einhvarstaðar einhverntíma voru til þvílík samfélög,eða er það gömul lesin skáldsaga!!    

Helga Kristjánsdóttir, 4.4.2016 kl. 04:50

4 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll nafni

auðvitað verður þróunin hér á landi nákvæmlega sú sama og hefur orðið annars staðar þar sem múslímar vinna að yfirtöku landa. Við höfum vítin til að varast en sennilega mun okkur ekki nýtast þau vegna "velviljaðra" undansláttarmanna eins og Styrmis Gunnarssonar og hans líkra.

Valdimar H Jóhannesson, 4.4.2016 kl. 10:12

5 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sonja

saga mannkyns er blóði drifin frá fyrstu tíð. Það hefur aldrei verið neinn tími friðar í mannheimum. Það eru einungis síðustu áratugir á Vesturlöndum sem nálgast það að geta kallast friðartímar. Villimaðurinn fyrir tíma siðmenningar í heiminum var verri en nokkur annar. Á skrifuðum tíma siðmenningar er þó engin kafli jafn skelfilegur og 14 aldir íslam. Þessi saga er því miður nær alveg ókunn fólki á Vesturlöndum.Og ofbeldistími íslam er ekki lokið. Þar liggur vandinn.

Valdimar H Jóhannesson, 4.4.2016 kl. 10:21

6 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæl Helga

fylgjendur íslam ætla þessari hugmyndafræði heimsyfirráð eins og kyrjað er stöðugt í öllum múslímskum löndum. Þetta er boðað í öllum moskum og bænahúsum múslíma. Við þurfum að hugleiða vel hvernig það gerðist að hinn gríska og kristna menning Mið-Austurlanda vék fyrir íslam, því að sama formúlan er notuð hvarvetna þar sem íslam ryðst fram. Anatolía eða þar sem nú heitir Tyrkland var vagga kristninnar. Þar ríkti áður hin glæsta menning Grikkja með upplýsingu og rökhugsun. Nú hvolfist svartnættið þar yfir með 99.8 % íbúanna múslímar.

Valdimar H Jóhannesson, 4.4.2016 kl. 10:29

7 Smámynd: Sigurður Rósant

Já, Styrmir ásamt mörgum öðrum á sveif með múslimum sem flestir eru islamistar, jihadistar eða í öðru öfgagrhreyfingum þeirra, þyrftu að lesa aðeins nokkrar blaðsíður í Kóraninum, Hadíðunum eða Sunnah, til þess að átta sig á því að úr þessum ritum kemur hatrið gegn okkur vesturlandabúum. Ekki vegna einhverra fyrri verka nýlenduríkja eða vegna olíuauðlinda fyrir botni Miðjarðarhafs.

Sigurður Rósant, 6.4.2016 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband