Leita í fréttum mbl.is

Hvað má það kosta?

Nú þegar ásetningur yfirvalda virðist vera að opna flóðgáttir fyrir svokallaða flóttamenn inn í landið væri lágmarkskrafan að skoðað væri hvað það muni kosta íslenskt samfélag í fjármunum og ýmsum neikvæðum hliðarverkunum. Hvað mun það kosta í beinum fjárútlátum, hvað mun það kosta í verra þjóðlífi, hvað mun það kosta í minni þjóðartekjum á mann og breyttu samfélagi?

Reynslan er hvarvetna sú, að atvinnuþátttaka múslímskra flóttamanna á Vesturlöndum er afar lág um leið og afbrotatíðni er miklu hærri en hjá öllum öðrum þjóðfélagshópum hvort sem það eru innfæddir eða aðrir innflytjendur. Auk þess þarf enginn að efast um að löndin með mörgum múslímskum innflytjendum breytast til hins verra með auknu öryggisleysi almennra þegna, auknum glæpum, aukinni spennu og versnandi afkomu svo ekki sé talað um hryðjuverkin sem fylgja múslímskum innflytjendum.

Lítum til reynslu Dana. Árið 2010 tosaðist atvinnuþátttaka hjá flóttamönnum, sem eru yfirgnæfandi múslímar, í 8% eftir árið. Þetta var áður en flóðbylgjan stóra skall á Vestur-Evrópu 2015. Tölur um atvinnuþátttöku flóttamanna hafa síðan enn versnað. Núna segja tölur frá Dönum 2016 að atvinnuþátttaka flóttamanna er um 2% eftir árið þrátt fyrir að stjórnvöld hafi lagt sig fram um að hjálpa flóttamönnum að komast á vinnumarkaðinn með námsskeiðum og með því að greiða atvinnurekendum til þess að aðlaga flóttamenn að störfum með lærlingsstöðum. Velferðarkerfið verður að halda uppi 98% af flóttamönnum eftir árs aðlögun og reynslan kennir að langstærsti hluti þeirra verður alltaf þurfalingar og komandi kynslóðir þeirra einnig.

Sama reynslan og Danir hafa liggur fyrir hvarvetna fyrir þar sem tölur eru aðgengilegar t.d. í Þýskalandi. Þetta er ekki eina sameiginlega reynslan heldur önnur og verri: Ógnvænleg aukning í alls kyns glæpum, sérstaklega ofbeldisglæpum svo sem nauðgunum, líkamsmeiðingum og manndrápum. Tölur um glæpatíðni flóttamanna eru óskemmtilegar að svo miklu leyti sem þær eru aðgengilegar en mikillar tilhneigingar gætir til þess að fela þessar tölur.

Glæpatíðnin heldur svo áfram að vera mjög há hjá múslímskum innflytjendum kynslóð eftir kynslóð. Múslímar eru t.d. um 70% af öllum föngum í Frakklandi þó að þeir séu aðeins um 10% þjóðarinnar. Það vill segja að múslímar í Frakklandi eru 21 sinnum líklegri til að gerast sekir um alvarlega glæpi, sérstaklega ofbeldisglæpi, en aðrir þjóðfélagshópar að meðaltali að sögn þessara talna. Allar tiltækar tölur um glæpatíðni á Vesturlöndum benda í sömu átt. Þannig eru t.d. sagt að um 80% nauðgana í Svíþjóð a.m.k. stafi frá múslímskum karlmönnum sem eru rúm 2% af íbúum.

Þeirrar hugsunar virðist gæta hér að Íslendingar séu miklu færari að taka við erlendum fóttamönnum en aðrar þjóðir eru. Hörmuleg reynsla annars staðar muni því ekki endurtaka sig hér. Við ættum ekki að þurfa að velkjast í vafa um þetta atriði. Alkunna er að Akranesingar tóku afar vel á móti 28 ríkisfangslausum arabískum flóttamönnum fyrir tæpum áratug. Einkaaðilar og sveitafélagið sinntu verkefninu af alhug. Nú skyldi sýna efasemdamönnum í tvo heimana og aðlaga þá að fullu inn í íslenskt samfélag. Engar upplýsingar fást um árangur þó að eftir því sé leitað. Skagamenn hrissta bara hausinn og segjast ekki vita deili á neinum árangri. Þeir og við, sem borgum brúsann, fáum engar upplýsingar. Hér hefði mátt reikna með betri árangri en almennt væri vegna þess hve þetta voru fáir einstaklingar sem væri unnt að sinna betur og hefðu fáa aðra að reiða sig á en vinalega nágranna.

En það er enn meira í húfi. Hvaða áhrif munu mannskæð hryðjuverk hafa á þjóðlíf og ferðamannaþjónustu hérlendis? Þau verða ekki síður í löndum sem leggja sig fram um góðar móttökur eins og Kanadamenn hafa nú fengið að reyna og Evrópuþjóðir hafa mátt þola undanfarin ár með hörmulegum afleiðingum.

Hvaða áhrif mun ásetningur stórs hluta múslíma hafa að ná Íslandi undir íslam og sharialög með jihad, - hvort sem það yrði með orðum eða sverðinu? Samkvæmt rannsóknum Humbolt háskólans í Berlín eru um 45% múslíma í Evrópu bókstafstrúarmenn, fúndamentalistar og trúa því að fara beri eftir kóraninum og sunnah þ.e. ekki aðeins að fylgja fyrirmælum kóransins heldur einnig fordæmi Múhameðs í einu og öllu en hann var hræðilegur maður samkvæmt lýsingum múslíma sjálfra. Það er raunar uppspretta sífelldrar undrunar að sómakærir múslímar skuli ekki fyrir löngu hafa losað þjóðir sínar undan þessum þunga klafa.

Hefur íslenska þjóðin verið spurð hvort hún sé tilbúin til að taka þátt í glannaskap ráðamanna og greiða þetta háa gjald?

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Þakka þér góða grein þína, enn sem áður fyrr og þær upplýsingar sem fjölmiðlar og stjórnvöld gera sem mest í að fela.

Það er okkur nauðsyn að vita við hvað er að eiga og hvað óvönduð vinnubrögð stjórnvalda gætu kostað okkur og ég tala nú ekki um afkomendur okkar til lengri tíma litið.

Íslensk stjórnvöld virðast taka Obama á þetta og leyfa eingöngu múslímskum "flóttamönnum" að koma inn í landið, en kristnum og jesitum úthýst, einmitt fólkið sem helst gæti aðlagast okkur með góðu móti.

Við erum ekki þekkt fyrir að læra af mistökum annarra og jafnvel ekki okkar eigin. Það verður sennilega ekki fyrr en við áttum okkur á því að allt er komið í bál og brand, en þá verður of seint í rassinn gripið.

Tómas Ibsen Halldórsson, 1.2.2017 kl. 16:41

2 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Tómas

það ere einmitt punkturinn sem ég vildi komast að. Það verður of seint að iðrast þegar okkur friðsæla og góða samfélagi hefur verið spillt sakir skammsýni og kjarkleysi við að standa í lappirnar þegar á ríður.  Það er svo skelfilega auðvelt að vera "góður" og ganga í augunum á vinstri hugsandi fólki, - fólkinu sem alltaf bregst dómgreindin þegar eitthvað liggur við.

Valdimar H Jóhannesson, 1.2.2017 kl. 17:21

3 identicon

Valdimar, hvar finn ég tölur eins og þær sem þú nefnir?

Er búið að sanna að sá sem framdi árásina í Kanada sé hægrisinnaður öfgamaður eða eitthvað annað?

Hans Gunnarsson (IP-tala skráð) 1.2.2017 kl. 19:46

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Tek undir með félaga mínum Tómasi, og ekki skortir þig þorið, Valdimar, að fjalla svo opinskátt um þessi feimnismál og það í Morgunblaðsgrein (eða var hún í lengra formi?).

Enn sterkari sýnist mér þín fræðsla geta orðið, ef þú bætir inn í þetta sviganúmerum með tilvísunum í heimildir neðan máls. En heilar þakkir, Valdimar.

Jón Valur Jensson, 1.2.2017 kl. 21:54

5 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Hans

Í fyrstu var talið að þeir væru tveir sem hefðu staðið að árásinni í moskunni og annar þeirra Marokkomaður. Skiptir engu máli í þessu sambandi. Árásin er til marks um spennu í samfélaginu sem er ástand sem vekur upp öfga á báða bóga. Hvar rannsókn á þessu máli er á vegi stödd veit ég ekki núna.

Valdimar H Jóhannesson, 1.2.2017 kl. 22:58

6 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Jón Valur

Ég hef tölurnar aðallega úr dönsku blaði en þar var ekki getið frumheimilda. Ég skal reyna að muna þetta næst. Þessar tölur eru hins vegar alltaf að koma fram með ýmsum hætti og ættu ekki að vera umdeildar enda aldrei véfengnar með tölum og tilvísunum.

Valdimar H Jóhannesson, 1.2.2017 kl. 23:01

7 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

Það má alveg skoða þann þátt sem er erfiður hjalli í þessari fjölgun fólks umfram venjulega mannfjölgun Innlendra- að þarna skellur á vanburða sjúkrastofnunum- fangelsum og mörgum öðrum þáttum samfelagsins fólksfjöldi sem er ekki almennt að skila neinu til samfelags sem elur þá

 Islendingar virðast hafa nóg með að sjá fyrir Rikisbatteriunu og ekki geta seð sómasamlega um að hafa sjúkraþjónustu í lagi fyrir landsmenn innfædda.

Erla Magna Alexandersdóttir, 2.2.2017 kl. 11:54

8 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Uaðvitað þarf að upplýsa þjóðina um þessa hluti, en það er eins og það meigi bara ekki í þessu tiltekna máli.Við hljótum að eiga heimtingu á því.Þetta eru jú okkar peningar sem verið er að eyða!!!!!!!!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 4.2.2017 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 192246

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband