Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2012

RÚV og Össur með endemum


Fréttaflutningur Ríkisútvarpsins undanfarna daga um átök Israel og Hamas hefur verið öldungis forkastanlegur eins og málflutningur Össurar utanríkisráðherra. Staðreyndum er rækilega snúið á haus og afleiðingar taldar orsök og orsök afleiðingar. Þannig hefur RÚV klifað á því aftur og aftur að hegðan Israelshers sé upphaf að  alblóðugum átökum þessara aðila núna eins og RÚV gerir jafnan og er engu líkara en Hamas hafi sérstakan fulltrúa sinn starfandi á fréttastofunni og sá sé trúr þeim islömskum hefðum að segja helst aldrei satt orð.

Allar fréttir RÚV draga upp þá mynd að Israelsmenn hafi ráðist með sprengjum á Gaza svæðið og Hamas bregðist við með því að senda
flugskeyti á suðurhluta Israels þegar staðreyndin er þver öfug. Þorvaldur Friðriksson fréttamaður flytur öfgafyllstu fréttirnar og hikar aldrei við að halla réttu máli þegar Israel á hlut að máli. Fréttafalsanir araba eiga greiðan aðgang í fréttir ríkisútvarpsins sem eru ekki leiðréttar jafnvel þó að sýnt hafi verið fram á lygarnar sem ná jafnframt til fréttamyndskeiða sem eru oft á tíðum  hreinn leikinn tilbúningur framleiddur undir merkjum Pallywood.

Staðreyndir tala sína máli ef þær fá tækifæri til að komast að. Hamas er greinilega í mun að æsa nú til átaka við Israela og á það sínar skýringar í pólitískum átökum meðal Palestínumanna. Þeir hófu að skjóta eldflaugum á suðurhluta Israel af miklum krafti um síðustu helgi en Israelsmenn sátu á sér í nokkra daga enda hafa þeir búið við eldflaugaárásir frá Gazasvæðinu alveg frá árinu 2001. Þær eru núna orðnar nær þrettán þúsund en flestar þeirra hafa þó orðið eftir að Israelsmenn létu aröbum eftir Gaza ströndina 2005. Tugir Israelsmanna hafa farist í þessu árásum jafnvel þó að reist hafi verið sprengjuheld skýli víðast hvar.

Eins og áður sagði sátu Israelsmenn á sér fyrstu dagana en
gátu að sjálfsögðu ekki liðið þessu öfgaliði að halda áfram að láta eldflaugunum rigna yfir suðurhluta Israels þar sem um milljón manna búa og hafa búið við stöðuga ógn nú í áratug.  Hamas menn ráðast fyrst og fremst á almenna borgara en skýla sér sjálfir bak við konur og börn og telja málstað sínum best borgið þegar þeir, sem þeir nota sem skjöld fyrir sig, falla í átökum.

Össur varð sér rækilega til skammar og skaðar íslenska hagsmuni með því að fordæma Israelsmenn fyrir að verjast árásum Hamas manna og segja ósatt um orsök og afleiðingu í þessu máli. Hann hefur haft forystu um það einn utanríkisráðherra Evrópu og hallast á sveif með hryðjuverkasamtökunum Hamas á Gaza. Össur heldur greinilega að hann gangi í augum á prófkjörskjósendum Samfylkingarinnar en vinstri menn hafa mikla tilhneigingu til þess að hallast á sveif með öfga- og hryðjuverkamönnum eins og dæmin sanna, - Stalín, Mao, Castro, Guevara, Pol Pot, Arafat,Kohmeini o.s.fr.

Stjórnvöld í Israel eru í fullum rétti við að verja borgarana fyrir árásum ofgafullra múslíma. Iranir hafa skaffað Hamas og Hezbollah í Líbanon eldflaugar til að vinna á gyðingum í Ísrael. Allir þessir aðilar hafa heitið því að þurrka Israel af landakortinu og jafnfram hafa
forsvarsmenn þeirra marglýst þvi að þeir stefni að því að drepa hvern einasta gyðing.

Meðal þessara eldflauga eru Fajr-5 flaugar sem draga 75 km eða til Tel Aviv sem er álíka langt og frá Hellu til höfuðborgarsvæðisins. Hryðjuverkamennirnir kalla þessar eldflaugar Khaybar sem er lýsandi fyrir hugarfar þeirra.

Með þessarri nafngift er vísað til ofbeldisfullrar árásar Múhammeðs á gyðingasamfélagið í Khaybar fyrir nær 14 öldum. Þá vann hann endalegan sigur á
gyðingum á Arabíuskaganum en líf þessarar fyrirmyndar allra múslíma er þvílík ofbeldis- og hryllingssaga að sá sem segir frá öllum þeim ósköpum er jafnan vændur um ofstæki af illa lesnum, fáfróðum multikulturistum, fjölmenningarsinnum sem telja sér það til tekna að hafa jafnan það sem ósannara reynist.





Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband