Framlagning Steingríms J Sigfússonar á frumvarpi um stjórn fiskveiða og fiskvinnslu er tilræði við efnahag Íslendinga til næstu áratuga og á því að flokkast sem landráð. Þeir þingmenn sem samþykkja þetta dæmalausa frumvarp gerast sekir um landráð. Landráð er stórt orð en hvað á að kalla það ef þingmenn sem þjóðin hefur kosið til að annast hagsmuni sína svíkur þjóðina þannig að helsta lífsbjörgin er tekin frá henni í fjóra áratugi?
Saga kvótastýrðra fiskveiða á Íslandi er hörmungarsaga. Í stað þess að veiða 400-500 þúsund tonn af þorski á ári hefur þorskveiðin aðeins numið um þriðjungi þess afla.  Afli af öðrum botnfisktegundum hefur skerst með sama hætti. Við höfum verið að fara á mis við útflutningstekjur sem samsvara öllum tekjum af orku- og áliðnaðinum undanfarna áratugi. Vegna meiri margfeldisáhrifa af vinnslu sjávarafurða en áls myndi munurinn fyrir þjóðartekjur okkar verða enn meiri.
Hér er stórkostlegir hagsmunir þjóðarinnar á ferðinni. Ef Alþingi gæti borið gæfu til þess að afnema kvótastýringu á fiskveiðum gæti velferð aukist hér afar hratt.  Þó að ég hafi engra hagsmuna að gæta umfram alla aðra Íslendinga hef ég reynt að vekja athygli á þessu ítrekað í mörg undanfarin ár eins og nokkrir menn aðrir.  Máflutningur okkur hefur ekki haft nein árhif á ráðandi stéttir landsins en almenningur er því miður algjörlega sljór fyrir stórum hagsmunamálum sínum. Enski fótboltinn skiptir meira máli!
Hér apar hver eftir öðrum slagorð eins og þessi: „Þó að kvótakerfið feli kannski í sér mikið þjóðfélagslegt óréttlæti er því ekki að neita að það skilar þjóðfélagslegum hagnaði fyrir þjóðina í heild" !!!!    Um þessa setningu er það að segja að fyrri hlutinn er sannleikanum samkvæmur en seinni hlutinn er fáránleikinn uppmálaður.
Gjafakvótakerfið er óhafandi með öllu. Það stríðir gegn stjórnarskrá landsins (65. og 75. grein ) eins og Hæstiréttur komst að með dómi sínum í desember 1998 og það stríðir gegn Mannréttindasáttmála SÞ eins og Mannréttindanefnd SÞ komst að niðurstöðu um í október 2007. Og kvótakerfið hefur rýrt mjög þann arð sem þjóðin hefði getað haft af auðlind sinni. Uppsafnað tap af kvótakerfinu nemur
feiknalegum upphæðum. Það tap verður aldrei bætt.
Ég eins og fleiri hafa lengi borið þá von í brjósti að nægjanlegir vitmenn með óskerta siðferðisvitund settust á Alþingi til þess að átta sig á þessu stóra hagsmunamáli. Lítill vandi er að breyta fiskveiðistjórnarlögum þannig að kvótastýring yrði felld úr gildi en fjölda margar vænlegar leiðir eru
til þess að stýra fiskveiðum. Alþingi sem nú situr væri sæmra að snúa sér að því verkefni að semja lög um stjórn fiskiveiða sem virðir stjórnarskrá landsins og mannréttindakröfur sem við höfum fallist á að hlýta heldur en að festa óréttlætið í sessi um áratugi. Þetta mundi vera þeim mun ánægjulegra verk sem hagur þjóðarinnar mundi snaraukast um leið og Alþingi gæti kannski aftur rétt úr kútnum og hlotið þann virðingarsess sem þjóðin vill að Alþingi hafi.
Steingrímur J Sigfússon leikur ljótan leik í þeim tilgangi að rugla þjóðina í ríminu. Hann leggur fram tvö frumvarp en auk þessa sem hér hefur verið fjallað um er frumvarp um auðlindagjald. Þar eru settar
fram hugmyndir um umtalsverðar greiðslur sem kvótagreifar eiga að greiða fyrir að nýta auðlindina. Öll áherslan er lögð á að fjalla um miklar tekjur af auðlindagjaldi og umræðurnar látnar snúast um þær. LÍÚ valdið tekur þátt í leikfléttunni með stjórnarflokkunum ( eða er það kannski öfugt) og hefur uppi
háværan málflutning um skelfingar fyrir land og lýð ef útgerðarfyrirtækin færu á hausinn vegna  auðlindagjaldsins. LÍÚ og Steingrímur vita hins vegar mætavel að lög um auðlindagjaldið er unnt að breyta á augabragði á þingi. Nýjum lögum um stjórn fiskveiða verður hins vegar ekki breytt  nema með greiðslu hárra skaðabóta.
Alþingi Íslendinga varð sér rækilega til skammar
þegar það viðurkenndi sjálfstæði og fullveldi Palestínu í lok nóvember síðastliðinn.
Þar með var alþingi í raun að styðja stjórnvöld araba á Vesturbakkanum og á
Gaza til þess að eyða Israel og drepa alla gyðinga sem þeir hafa heitið ítrekað
að gera.
Alþingismenn geta ekki afsakað sig með þekkingarleysi
á málefnum Mið-Austurlanda sem þessi viðurkenning er þó til marks um. Þegar
alþingi gengur á svig við allan hinn vestræna heim með þessari viðurkenningu
felst í því yfirlýsing að Íslendingar gætu haft forystu um lausn vandans við
botn Miðjarðarhafs og að Íslendingar hafi betri yfirsýn um þennan vanda en vestrænar
þjóðir almennt hafi. Þvílík bábilja!
Alþingismenn sem greiddu þessari tillögu sinni
atkvæði hljóta því að þekkja til málflutnings leiðtoga Palestínumanna sem lýsa
því ítrekað yfir að stefna þeirra sé að ná undir yfirráð múslíma öllu landinu á
milli árinnar Jordan og hafs og gjöreyða öllum gyðingum á svæðinu. Styður
Alþingi Íslendinga þessa stefnu? Eða vita þeir ekkert hvað þeir eru að gera?
Á afmælisfundi Al Fatah (stærsta stjórnmálaflokksins
á Vesturbakkanum) í síðustu viku minnti trúarleiðtogi PA ( þjóðarráð Palestínu
sem var stofnað eftir Oslósamkomulagið 1994) á að það væru örlög múslíma  í samræmi við trúarbækur Islam að drepa alla
gyðinga. „Dagur upprisunnar mun ekki renna upp fyrr en barist hefur verið við
gyðinga. Gyðingar munu fela sig bak við tré og steina. Þá munu tén og steinarnir
hrópa. Ó múslími, þjónn Allah, gyðingur felur sig á bak við mig.  Komdu og dreptu hann.“ Trúarleiðtoginn var að
hveta sína menn til dáða með því að minna þá á markmið Islam.
Fundarstjórinn á þessum 47.  afmælisdegi Al Fatah var heldur ekkert að
skafa utan af því: “ Stríð okkar við afkomendur apa og svína ( svo kalla
múslímar gyðinga) er heillagt trúarstríð.“
Hér er ekki um einangrað tilvik að ræða heldur marg
endurtekning á  yfirlýsingum múslíma ekki
aðeins á þessu svæði heldur um heim allan enda í samræmi við „heillög“  markmið um Jihad. Upphrópanir um gjöreyðingu
Israel heyrast um allt hið svokallaða arabíska vor sem er afar barnaleg nafngift
á hræringu í Mið- Austurlöndum þessi misserin og ætti frekar á kenna við „vetur“
og „hel“.
Al Fatah er af mörgum talinn hófsamur flokkur og þá
sérstaklega í samanburði við Hamas sem ræður ríkjum á Gaza svæðinu en Hamas
hefur á stefnukrá sinni útrýmingu allra gyðinga og eyðingu Israel og að allar
friðarumræður séu tímaeyðsla. Stofnskráin er aðgengileg öllum á netinu  á ensku ( Hamas Charter). Það er því hægur
vandinn fyrir alþingismenn og raunar hvern sem er að kynna sér þessi mál.
Menn ættu raunar að huga að því hvað fatah þýðir í
raun, sem er opnun og er í þessu sambandi átt við opnun inn í land trúleysinganna(
þ.e. þeirra sem ekki eru múslímar) með hernámi, sigri, yfirbugun. Þarna er
verið að höfða til skyldu múslíma að ná heiminum undir Islam og sharía lög,
þ.e. lög guðs eins og þau eru túlkuð í Kóraninum viðurkenndum hadíðubókum og
Sirah (þ.e. opinberri sögu Múhammeðs). Það er barnalegur misskilningur að halda
að sharía lög nái aðeins til lítils hluta réttarfarsins eins og fram kom hjá
Magnúsi Þorkeli Bernharðssyni, svokölluðum Mið-Austurlandafræðingi í
fyrirlestri í HÍ í síðustu viku. Samkvæmt sharíalögum mega engin lög fara í
andstöðu við trúarbækur Islam sem mynda eins konar stjórnarskrá. Sharíalög eru
ómanneskjulegur hryllingur aftan úr formyrkaðri forneskju.
Almennt ríkir hættulegt þekkingarleysi á Islam og á
blóðugri sögu islamskra þjóð fyrr og nú. Vesturlandamenn eru furðu ginkeyptir
fyrir afbökun sögunnar sem múslímar hafa staðið fyrir með dyggum stuðningi nytsamra
sakleysinga. Áður en Alþingi verður sér frekar til minnkunar ættu flokkarnir að
setja einhverja orku í það að koma upp þekkingu á Islam. Lágmarkið er að hlusta
eftir því hvað leiðtogarnir segja við sitt eigið fólk en ekki hvað þeir segja
við okkur trúleysinganna , kuffar, sem er argasta skammaryrði allra sannra
múslíma.  Múslímskar lygar, kitman og
taqiyya, eru viðurkennd tæki meðal múslíma til þess að blekkja óvininn, þ.e. okkur.
Nú er mál að vakna!
Þegar Þorgeir Ljósvetningagoði hafði heimt fé sitt af fjalli um haustið árið 1000 sá hann að hin nýju goð höfðu reynst vel. Féð var vænt og nánast engin afföll. Hann sem hafði verið foringi heiðinna manna en jafnframt lögsögumaður og  æðsti foringi þjóðarinnar gladdist yfir því hve deilur kristinna manna og ásatrúarmanna leystust vel .
Fljótlega barst honum notalegt þakkarbréf frá Sylvester II páfa í Róm. Með því var auglýsingabæklingur frá páfastóli sem upplýsti hverjar væru skyldur en einnig réttindi við aðild að heildarsamtökum kristinna . Páfastóll réði til að mynda yfir banka sem allir kristnir menn væru hvattir til að skipta við. Samkvæmt biblíunni væru greiddar rentur á innistæður en boðað væri að menn ættu að „renta sínar talentur“ .
Þó að Þorgeir væri kominn á sjötugsaldurinn vildi hann taka þátt í nýmælum. Hann lagði því eitt lamb inn á reikning í Vatikan bankanum sem bauð 5% fasta vexti án uppsagnarákvæða. Þorgeir þekkti ekki verðmæti mynta á suðrænum slóðum svo hann samdi við bankann um að innstæðan yrði ávalt reiknuð í lömbum. Án þess að gera sér grein fyrir því sjálfur hafði hann fundið upp verðtryggð bankaviðskipti þúsund árum á undan íslenskum hagfræðingum.
Nokkrum árum seinna þegar Þorgeir andaðist týndist vitneskjan um ininistæðureikninginn í Róm. Lambið hans Þorgeir hafði sem sagt legið á vöxtum í 1011 ár þegar ég fann innleggsnótuna í gömlu bréfasafni afa míns en ég er erfingi Þorgeirs og nú handhafi bréfsins . Viðbrögð Vatikansins þegar ég vildi loka reikningnum og fá hann greiddan út urðu ótrúleg. Fyrst neituðu þeir því að reikningurinn væri til. Þegar það dugði ekki hótuðu þeir mér eilífri útskúfum frá himnaríki.  Ég sagði þeim að þeir hefðu misst umboðið til að bannfæra mig eftir siðaskiptin. Siðan hafa þeir ýmist reynt að bera fyrir sig 36. gr samningalaga eða höfða til miskunsemi minnar. Benedikt XVI, sjálfur páfinn, liggur í símanum til mín kvölds, morgna og miðjan dag!
Það kemur sem sagt í ljós að allt sauðfé heimsins dugar hvergi til að greiða mér út innistæðuna en lambið hans Þorgeirs hefur heldur betur safnað á sig. Samkvæmt reiknitölvu minni er innistæðan nú pr. 1. nóvember sl  2,644,730,110,000,000,000,000 lömb eða til þess að segja þetta í mæltu máli:Rúmlega TVÖÞÚSUND  SEXHUNDRUÐ OG FJÖRTUTÍU MILLJARÐIR MILLJARÐA lamba,  sem svarar til 377 milljarða lamba á hvern jarðarbúa.
Fljótlega eftir að Þorgeir hafði lagt inn lambið sá Vatikanið að verðtrygging í sambland við vexti er óframkvæmanleg og stenst ekki heilbrigða skynsemi.  Með því að skoða innlánsreikning Þorgeirs í 1-2 aldir varð ljóst að vextir mættu í mesta lagi halda í við verðbólgu. Fyrir mörgum öldum fór verðmæti lambsins fram úr samanlögðum auðæfum heimsins.  Enginn bóndi eða afkomendur hans gætu haldið utan um hjörð sem yxi með þessum hætti yfir langan tíma. Eftir tvær aldir væri hjörðin 17500 fjár og óviðráðanleg fyrir eitt bú en um siðskiptin hefði hjörðin afkomenda Þorgeirs verið komin í 450 milljarða fjár og allt beitiland í Evrópu löngu nagað niður í grjót.
Upplýstir menn hafa vitað um aldir að ekkert efnahagskerfi stenst það að vextir séu settir ofan á verðtryggingu. Slík viðkoma fjármuna gleypir öll heimsins verðmæti á skömmum tíma.  Tímans tönn nagar allar eignir; - fjármuni, fasteignir og jafnvel jarðir. Hús ganga úr sér á nokkrum áratugum. Verðmæti lands hækkar eða lækkar eftir ytri aðstæðum. Land sekkur í sæ. Eldsumbrot eyðileggja land. Ísöldin mun snúa aftur, flóð eða eyðimörkin eyða landi og loftsteinar granda landsvæðum.
Verðtryggða íslenska krónan er fáránleg hugmynd. Hún var réttlætanleg stutt tímabili en hefur fyrir löngu gengið sér til húðar. Engin mynt sögunnar hefur haldið verðgildi sínu frekar en aðrar eignir. Tilbúna sagan um Þorgeir Ljósvetningagoða ætti kannski að gera mönnum ljóst þvílík vitfirring sambland vaxta og verðtryggingar er. Í raun ætti ég að vera þakklátur fyrir að geta sótt lambið hans Þorgeirs til Vatikansins án þess að þurfa að greiða fyrir uppihaldið.
Valdimar H Jóhannesson
Það er hvorki Samfylkingarmönnum né Ómari til sóma að flytja eða hlægja að níðvísunni sem var flutt á skemmtikvöldi Samfylkingarinnar. Hún er smekklaus. Hún er ósanngjörn. Ef þjóðin vill  halda í sjálfvirðingu sína á hún ekki að þola að æðsta embætti þjóðarinnar sé sýnd slík óvirðing.
Það er sitthvað hvað mönnum dettur í hug að böggla saman til að kasta fram í dárskap við þröngan hóp manna eða að standa upp á fjölmennri opinberri samkomu til að flytja níð með þessum hætti um mann sem hvergi var nærri.
Samfylkingarmenn kunna forseta Íslands engar þakkir fyrir að hafa í tvígang vísað til þjóðarinnar afgreiðslu þeirra á Icesave sem hefði leitt yfir þjóðina drápsklyfjar. Fáum blandast lengur hugur um að  þetta var hárétt ákvörðum af því að þjóðinni bar gæfu til þess að vera ósammála meiri hluta alþingis með Samfylkinguna og VG við stjórnvölinn. Þær standa nú upp hver um aðra þvera erlendar stjörnur í alþjóða fjármálum til að hrósa þjóðinni fyrir að hafa borið gæfu til þess að hafna Icesvae samningunum.
Reiði Samfylkingarmanna minnir á reiði Þorgeirs Hávarsonar í Gerplu  þegar Þormóður Kolbrúnarskálds dró hann upp fyrir bjargbrúnina þar sem hann hafði hangið lengi dags á hvönninni á hengifluginu. Þorgeir vissi vel að Þórmóður hafði borgið lífi hans en bjöguð hugmynd hans um heiður beið afhroð. Fyrir Samfylkinguna er heiður flokksins ofar hag þjóðarinnar. Flutningur níðvísunnar og móttökur sanna það.
Þegar menn láta til sín taka á stjórnmálasviðinu, eins og Ómar hefur verið að gera með setu á þingi flokksins um síðustu helgi og með setu í stjórnlagaráði svo ekki sé talað um baráttu fyrir náttúruvernd, eru menn ekki lengur í stöðu dárans sem leyfist allt.
Út að við þykjast þeir stefna að friði við Israel en þeim er allt annað efst í huga. Abbas Zaki, sem á sæti í miðstjórn Al Fatah, sagði þannig í viðtali við Al Jazeera í Qatar fyrir þremur dögum, að ríki Palestínu ætti að miðast við landmærin fyrir Sex daga stríðið 1967 en að allir vissu að ekki væri unnt að ná meira fram að sinni. Allir vita hins vegar að ef Israel dregur sig út úr Austur-Jerúsalem, flytur 650 þúsund gyðinga frá Judeu og Samaríu og tekur niður múrana (sem voru reistir til að verjast hryðjuverkamönnum) muni það þýða endalok Israel , sagði Abbas Zaki við sitt fólk í þessu sama viðtali.
Átökin um Israel snúast ekki um land enda er Israel aðeins 20 þúsund ferkílómetrar eða um 0.13% af því sem kallast miðausturlönd. Átökin stafa af þeim ásetningi múslíma að hreinsa þessi lönd af trúarvillingum (kufar) eins og þeir kalla alla þá sem ekki aðhyllast Islam.  Klerkastjórnin í Iran stendur fast við bakið á Hamas á Gaza og Hezbollah í Lebanon. Ahmadinejad forseti Iran hefur marglýst ásetningi þeirra að þurrka Israel af kortinu.
Þegar gyðinugm hefur verið útrýmt kemur næst að kristnum mönnum og öðrum trúarvillingum og er raunar þjarmað stöðugt að kristnum mönnum í þessum löndum, þeir drepnir, flæmdir á brott eða neyddir til að ganga Islam á hönd þannig að þeir eru aðeins örfáir eftir. Austur rómverska keisaradæmið, Byzantium, sem var kristið, náði yfir en öll þessi lönd þar sem m.a. vagga kristninnar stóð. Israel er eina lýðræðisríkið í miðausturlöndum. Lýðræði er andstætt hugmyndaheimi Islam.
Irönsk stjórnvöld lýstu yfir stríði gegn vestrænum lýðræðisríkjum árið 1979 og þar á meðal okkur og alveg sérstaklega Israel. Iranir hafa ekki dregið þessa yfirlýsingu til baka. Þeir keppast nú við að koma sér upp kjarnorkusprengju. Netanyahu forsætisráðherra Israel segir fullum fetum að Iranir muni ekki hika við að nota sprengjuna og verði fyrstu sprengjunni varpað á Israel og síðan fái Bandaríkin og V-Evrópa sömu trakteringu.. Talsmenn Iranstjórnar hafa nýlega lýst því yfir að nú sé að renna upp stóra stundin þegar 12. imaminn (Mehdi) birtist til þess að leiða rétttrúða muslima (Shia-múslíma) í lokastríðinu um heimsyfirráð. Þess vegna sé nú kominn tími á útflutning irönsku byltingarinmnar og nú verði að hefja stríð út um allan heim að hætti múslíma og nefna sérstaklega hjarta Evrópu til þess að frelsa múslíma undan villutrúarmönnum. Þetta hljómar eins og snargeggjaðir menn séu að tala en þeim er fúlasta alvara.
Ályktun íslenskra stjórnvalda að styðja einhliða yfirlýsingu Palestínumanna um stofnun Palestínu verður að skoða í þessu ljósi. Við getum ekki látið vinstri blaðurskjóður draga okkur út í slíkt fen og tilræði við hinn frjálsa heim. Þetta er sama fólkið sem studdi Stalín, Mao, Pol Pott, Castro, Che Guevara og yfirleitt öll verstu ómenni sem hafa komið fram í heiminum. Þetta eru sömu öflin sem stuðluðu að því að klerkastjórnin komst að í Iran. Ég ætla þessu fólki ekki illan vilja en dómgreinarleysi af þessu tagi er ólæknanlegt að mun ævinlega verða því fótakefli. Manni eins og Össuri ætti að halda sem lengst frá öllu þar sem almennrar skynsemi, kunnáttu og dómgreindar er þörf.
Allir Íslendingar vilja nú sýna Norðmönnum allan þann samhug og samúð, sem unnt er að veita. Hörmungarnar í Noregi þar, sem hundruð manna, flest ungt fólk, hafa verið myrtir af hræðilegu miskunnarleysi, eru svo ofar öllum skilningi, að við erum vart búnir að meðtaka hryllinginn að fullu.
Afleiðingar þessa vorðaverks eiga eflaust lengi eftir að koma að fullu í ljós. Hér hefur verið ráðist að grunnstoðum hins opna og frjálsa norræna samfélags, þar sem einstaklingurinn hefur verið frjálsari til orða og afhafna en víðast um heiminn. Þó að við gagnrýnum samfélag okkur erum við samt þakklát fyrir það. Gagnrýnin er jákvæð,- til þess að halda í það sem hefur áunnist og til þess að stefna að betra samfálagi. Tjáningarfrelsið og málfrelsið eru mikilvægustu tólin til þess.
Á sorgartímanum er þó rétt að geyma alla deilur. Norðmenn og við sjálf, sem hluti af norrænu samfélagi, eigum öll skilið að fá frið til þess að vinna úr sorginni. Sorginni fylgir oft reiði en við verðum að gæta að því hvert reiðin leiðir okkur.
Nú er ljóst orðið að mér urðu á mistök í gær þegar ég ályktaði að sprengingin í Oslo væri af völdum íslamskra skæruliða.
Þegar ég skrifaði færsluna virtist af fréttum sem ekki hefði oðið neitt mannfall og enn hafði ekki verið ráðist á unga fólkið á Utøya. Að vísu fullyrti ég ekki að þarna væri íslamskir öfgamenn á ferð heldur að mestar líkur væru á því að svo væri.
Ég hafði á röngu að standa. En ég var ekki einn um það. Heimspressan var á sömu skoðun meira eða minna og sumir bloggararnir fundu afsakanir fyrir islamska hryðjuverkamenn til þess að ráðast á Norðmenn!
Þessi ályktun mín var klaufaleg í ljósi þess sem seinna kom í  ljós en hefði ekki átt að valda miklu fjaðrafoki. Viðbrögðin á netinu voru hins vegar með miklum ólíkindum og margt andstyggilega sagt þar vegna fljótfærni minnar. Ég kaus því að loka þessarri færslu.
Erfitt er að átta sig á því þessa dagana hverjir eru dapurlegri á alþingi Íslendinga, stjórnarþingmenn eða stjórnarandstaðan. Hvorugur hópurinn virðist átta sig á þeirri einföldu staðreynd að gjafakvótakerfið stenst hvorki stjórnarskrá landsins né Mannréttindayfirlýsingu SÞ sem íslensk stjórnvöld hafa staðfest og eru því siðferðilega skuldbundin til þess að framfylgja.
Umræður á alþingi ættu því ekki að snúast um hvort gera ætti óverulegar breytingar á kerfinu eða að láta það standa óbreytt. Umræðan á alþingi ætti að fjalla um hvernig unnt sé að koma á fiskveiðistjórnarkerfi sem virðir að fullu stjórnarskrá Íslands og Mannréttindayfirlýsingu SÞ.
Þetta ætti að vera ánægjuefni fyrir eðlilega og vitsmunalega menn þar sem löngu er orðið sýnt að kvótastýring á fiskveiðum er afar óhagkvæm aðferð til að nýta fiskimiðin með heildarhagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Bara sú staðreynd ein að við erum nú að veiða aðeins um þriðjung af þorskaflanum eins og hann var áratugum saman fyrir daga kvótakerfisins ætti að vera miklu meira en næg vísbending um hvað kvótastýringin hefur reynst þjóðinni illa. Það er eftir mikla að slægjast fyrir endurreisn landsins að nýta fiskimiðin betur og stórauka tekjur þjóðarinnar. Íslendingar gætu aftur orðið ein tekjuhæsta þjóð heimsins ef við hleypum skynseminni að í þessum efnum og stjórnmálastétt landsins áttar sig á því að henni er ætlað að þjóna almennum hagsmunum þjóðarinnar en ekki sérhagsmunaöflunum.
Því miður hefur vitsmunaleg umræða um fiskveiðistefnu ekki átt neina möguleika vegna þess að umræðan er jafnan leidd út um víðan völl og rugluð af hagsmunaaðilum. Þingmenn og fjölmiðlamenn hafa ekki reynst vanda sínum vaxnir og eru ævinlega fúsir til að fórna hagsmunum þjóðarinnar fyrir sinn persónulegan hag. Sennilega þýðir ekkert að brýna þessa menn til betri verka. Það hefur verið gert svo oft án árangurs.
Vandinn liggur kannski í því að þjóðin hefur aldrei komið augu á neinn valkost við fjórflokkinn. Þeir sem hafa boðið sig fram gegn fjórflokknum hafa aldrei öðlast traust hennar nema í of litlum mæli enda hefur fjórflokkurinn ávalt gætt þess að gert sé lítið úr slíkum einstaklingum með dyggri aðstoð Gróu úr Leiti.
Fyrir ca 12 dögum setti ég færslu á bloggið sem ég nefndi "Þursaflokkurinn" þar sem ég gagnrýndi alla stjórnmálaflokka fyrir svik við hagsmuni þjóðarinnar. Ég valdi fjórflokknum þetta nafn vegna frammistöðu sinnar í þessu máli. Ég fékk nokkrar velviljaðar athugasemdir við færslu mína. Af einhverjum tæknilegum ástæðum birtist athugasemd frá Lúðvík Emil Kaaber ekki fyrr en í morgun þegar engum dettur lengur til hugar að lesa bloggið. Mér finnst athugasemd Lúðvíks verðskulda að athygli sé vakinn á henni og birti hana því hér með en einnig má sjá hana undir bloggfærslunni sem heitir "Þursaflokkurinn"
Athugasemd:
Valdimar segir um dóminn í máli hans frá 1998, að "vandinn gat aðeins legið í pólitískum ítökum í Hæstarétti".
Þetta er alveg rétt. En ég vil gera eftirfarandi athugasemdir:
Í máli Valdimars sinntu dómararnir skyldum sínum og dæmdu eftir lögum. Eftir á að hyggja fann maður það nokkuð vel meðan á málinu stóð, að rétturinn vildi láta lítið á því bera. Fulltrúa ríkislögmanns, sem var varnarmegin (gegn Valdimari) virðist hafa láðst að láta ráðherra vita af málinu og vara þá við. Afleiðingin var sú að rétturinn lýsti grundvöll fiskveiðistjórnekrfisins löglausan. Síðar hef ég fengið staðfest að mér var neitað um málið sem prófmál til málflutningsréttinda fyrir Hæstarétti vegna þess að rétturinn vildi láta sem minnst á því bera. Orð Davíðs Oddssonar í fjölmiðlum eftir að dómurinn ver kveðinn upp eru í ágætu samræmi við það. Þar sagði hann meðal annars að dómur réttarins hefði litla sem enga þýðingu, sem sæist hvað bezt á því að málið hefði ekki verið talið tækt sem prófmál. Hann hundskammaði einnig réttinn, tiltæki sem sýnir betur en flest annað status og sjálfstæði réttarins, og þar með um leið eðli þess lýðveldis sem svo miklar vonir þjóðarinnar hafa  verið bundnar við fram á síðustu tíma.
Mikillar reiði gætti hjá Davíð þessum í garð réttarins. Ég man að eftir Vatneyrardóminn árið 2000, þegar Hæstiréttur sneri við blaðinu og dæmdi eins og stjórnmálaskúmum LÍÚ þóknaðist, ritaði Ragnar Aðalsteinsson grein í Moggann (það var áður en Mogginn var keyptur fyrir þýfi úr fiskveiðistjórnkerfinu og gerður að málgagni LÍÚ) og sagði að rétturinn hefði komið í veg fyrir "stjórnskipulega krísu" með því að segja kerfið löglegt nokkrum mánuðum síðar. Það held ég því miður að sé rétt. En ömurlegt er til þess að vita að dómarar í Hæstarétti séu, þegar á reynir, ekki meiri bógar en raun ber vitni.
Mál Valdimars sýndi að dómaragreyin vildu gjarnan fara að lögum. Þeir bara treystu sér ekki til þess þegar á það reyndi alvarlega nokkrum mánuðum síðar, í máli sem öll þjóðin fylgdist með í ofvæni. Kannske hefur þá ekki órað fyrir afleiðingum þess, enda eru dómarar víst stundum skipaðir í Hæstarétt eftir öðrum viðmiðunum en víðsýni. Afleiðingarnar eru, meðal annars, að þeir eiga tveggja kosta völ. Annað hvort verða þeir að gefa sig til kynna sem pólitískar hlaupatíkur, eða dæma áfram gegn stjórnskipunarlögum og alþjóðlegum mannréttindalögum. Það er ekki öfundsverð staða. Auðvitað eiga þeir alla samúð skilda, en í þessa stöðu hafa þeir sjálfir komið sér. Kannske er hún þægilegri en að hafa komist upp á kant við Davíð Oddsson árið 1999 eða 2000.
Þeir hafa þegar valið milli þessara tveggja kosta - eins og hið pólitíska kerfi í heild sinni virðist hafa gert. Það sést hvað best á því að enginn stjórnmálaforingi, ekki einu sinni kratar, sem þó ættu að standa næst því að vita hvaða grundvallarreglur einkenna lýðfrjáls samfélög, haf mannað sig upp í að segja berum orðum það sem satt er, að fiskveiðstjórnkerfið er ekki aðeins brot á alþjóðlegum mannréttindalögum, heldur einig, auðvitað, brot á íslenskum stjórnskipunarlögum. Rökræn afleiðing af því er einfaldlega sú, að íslenskum borgurum er óskylt að virða það. Í Háskóla Íslands verða lögfræðingar, að hluta til launaðir af LÍÚ til "lögfræðilegara rannsóknarstarfa" að grafa upp rök og tína til réttlætingar á lögleysu og stjórnarskrárbrotum,sem síðan er dælt yfir þjóðina með góðri hjálp sérhagsmunasamtaka og fjölmiðla. Hæstiréttur verður áfram að láta eins og mannréttindareglur stjórnarskrárinnar séu þar ekki. Það hefur honum haldist uppi fram að þessu í krafti áróðurs- og p!
enngamáttar þeirra sem hann hefur kosið að þjóna. Herrar hans stjórna að vísu ekki alþjóðlegum mannréttindastofnunum, en hins vegar er það á valdi íslenska ríkisins að fara að dæmi harðstjóra í löndum sem íslendingar hafa til skamms tíma ekki talið þörf á að bera sig saman við, og leiða álit slíkra stofnana hjá sér.
Auðvitað er spilling og lögleysa fiskveiðistjórnkerfisins, sem er sennilega ekki síður undanfari bankahrunsins en einkavæðing bankanna - þó að hin marglofaða hrunskýrsla minnist ekki á það aukateknu orði - eitt helzta tilefni þess að talið er nauðsynlegt að reyna að fá íslenska stjórnskipun á hreint. Ég lít svo á að sjálfstæði ofannefndrar stofnunar sér eitt af því sem liggur þeim helst á sinni, sem hafa áhyggjur af velferð og framtíð lands okkar - kannske næst á eftir þeirri meðferð,sem fiskveiðiauðlindin hefur sætt af hálfu stjórnmálastéttarinnar. Ógilding Hæstaréttar á kosningunum til Stjórnlagaþings er engin tilviiljun.
Enginn með smásnefil af sómatilfinningu og snert af almennu viti getur efast um það að kvótakerfið íslenska stenst ekki almenn siðferðisviðmið. Þegar almennur réttur Íslendinga til að nýta fiskimiðin var tekinn af þeim og færður endurgjaldslaust til þeirra sem af sögulegri tilviljun voru að nýta þau á tilteknum tíma var brotið á öllum þeim sem ekki nutu forréttindanna. Verðmæti upp á 4-600 milljarða króna voru tekin af þjóðinni í heild sinni og færð til nokkurra sem áttu veiðiskip á veiðum á viðmiðunartímanum.
Helsta undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar var sett undir lénsveldis- og einokunarstjórn sem vestrænar lýðræðisþjóðir höfðu hafnað sem óhafandi stjórntæki og þá ekki einungis vegna óréttlætisins heldur einnig vegna efnahagslegra raka. Það er til marks um hvernig umræðan var endlaust rugluð með bulli að talsmenn kvótakerfisins kendu það við frjálsræði og frjálshyggju.
Þjóðin þurfti ekki að glugga í stórnarskrána til þess að átta sig á einföldum sannindum. Hún sá óréttlætið blasa við. Hún sá hvernig lífsbjörgin var smám saman tekin frá sjávarþorpunum allt umhverfis landið og hvernig ævisparnaður fólks gufaði upp þegar húseiginir þess urðu einskis virði þegar grundvellinum hafði verið kippt undan byggðunum.  Hún sá hvernig undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar lokaðist fyrir ungum framsæknum mönnum nema í þjónustu kvótagreifanna. Þjóðin var rænd þeim krafti sem býr í ungum mönnum að brydda upp á nýjungum og breytingum.
Alþingismenn sem báru ábyrgð á því að koma á þessu óréttlæti með sívaxandi fjötrum á árunum 1984-90 og þeir alþingismenn sem ekki hafa staðið fyrir því að afnema kerfið alla tíð síðan þurftu ekki einungis að kæfa niður sómatilfinningu sína og almennt hyggjuvit. Þeir þurftu einnig að láta sem þeir þekktu ekki stjórnarskránna sem þeir hafa þó allir svarið að virða. Vegna þess að þeir þóttust ekki skilja hvernig kvótakerfið braut gróflega gegn ákvæðum 65. og 75. grein stjórnarskrárinnar var gengið í það verk tvívegis að stafa það ofan í þá.
Dómsmál, sem undirritaður efndi til með dyggri aðstoð Lúðvíks Emils Kaaber hdl, hafði þann tilgang einan að sýna fram á stjórnarskrárbrot kvótalaganna. Hæstiréttur staðfesti þetta einróma 4. desember 1998. Dómurinn var skipaður 5 hæstaréttardómurum. Enginn þeirra skilaði sératkvæði. Illa hafði verið spáð fyrir möguleikum þessa máls og talið vonlítið að hæstiréttur myndi dæma gegn svona sterkum hagsmunaaðilum sem augljóslega réðu yfir alþingi Íslendinga. Sennilega hefur þessi dómur þó verið meðal þeirra einfaldari frá lögfræðilegu stjórnarmiði. Lagarökin voru algjörlega ljós. Vandinn gat aðeins legið í pólitískum ítökum í Hæstarétti. Hæstiréttur stóðst þá raun með sóma og jók um stundarsakir traust á íslensku samfélagi.
Allir landsmenn skildu þennan dóm og fögnuðu honum nema sérhagsmunahópurinn og alþingismenn. Skilningsleysi kvótagreifanna var ósköp skiljanlegt en viðbrögð alþingis ollu undrun og vonbrigðum. Alþingi brást við dóminum með því að snúa út úr honum og þóttist ekki skilja hann þó að allir aðrir hefðu gert það. Meðal þeirra voru margir af virtustu lögmönnum landsins og aukinn meiri hluti prófessora Háskóla Íslands sem hafði fyrir því að skrifa undir ávarp ætlað alþingi.
Lúðvík Emil Kaaber lagði síðan hart að sér til að fá Mannréttindanefnd SÞ til þess að taka málið fyrir og vann frækilegan sigur þegar þegar nefndin úrskurðaði að með kvótalögunum hefðu verið brotin mannréttindi á Íslandi.
Hvernig mátti það vera að alþingismenn skildu ekki mannamál né hverjar siðferðisskyldur þeirra voru?  Til þess að átta sig á þessu er nauðsynlegt að leita í þjóðsögunnar. Samkvæmt þeim eru það þursarnir sem eru ónæmir fyrir mannlegum rökum og tilfinningum. Vandinn liggur í því að við höfum kosið þursa til að fara með umboð okkar. Stjórnmálastéttin er skipuð þursum. Fjórflokkurinn er í raun þursaflokkur.
Einhverjir halda eflaust að ég sé að reyna að vera fyndinn. Því fer víðsfjarri. Það er grafalvarlegt mál hvernig þjóðin hefur verið glapin til þess að leita í vaxandi mæli til þessarar manngerðar sem stjórnmálaflokkarnir laða til sín til að þjóna sérhagsmunaöflunum. Það getur ekki verið að þessir menn sjái almenna hagsmuni þjóðarinnar.  Þeir hefðu aldrei fest gjafakvótakerfið í sessi ef þeir hefðu ekki verið siðblindir.
Aðeins þursar gátu fundið upp á gjafakvótakerfinu.
Aðeins þursar hefðu 1998 snúið út úr dómi hæstaréttar.
Aðeins þursar hefðu ekki brugðist við úrskurði Mannréttindanefndar SÞ en nefndin úrskurðaði að kvótalögin væru brot á mennréttindum og vísaði til sambærilegra greina í Mannréttindanyfirlýsingu SÞ og eru að finna í 65. og 75. grein stjórnarskrárinnar um jafnræði og atvinnufrelsi.
Aðeins þursum myndi detta til hugar að bjóða upp jafn snargalið frumvarp eins og nú hefur verið lagt fram á alþingi undir því yfirskyni að verið sé að koma á móts við réttlætiskröfu þjóðarinnar.
Aðeins þursar myndu neita að sjá hagsmuni þjóðarinnar af réttlátu veiðikerfi sem gæti stóraukið afrakstur af sjávarauðlindinni og endurlífgað verðmætar sjávarbyggðir allt umhverfis landið.
Aðeins þursar eru ómóttækilegir fyrir rökum.
Þjóðin verður að losa sig við þursana. Í því liggur hennar framtíðarheill.
Íslendingar standa nú andspænis ógn sem fáir gera sér grein fyrir. Islam er að gera innrás í landið. Hörmungar fylgja alls staðar Jihad, „heilagri“ skyldu múselmanna til þess að vinna heiminn undir Islam,  - undir Shariah lög.  Öllum ráðum er beitt  m.a. ofsafullu ofbeldi ef því er að skipta enda er talið að 2-300 milljónir manna hafi fallið fyrir stríðsmönnum Allah og Múhammeds síðustu 14 aldirnar. Ofbeldið á Vesturlöndum felst m.a. í ofsafengum viðbrögðum múslíma við hátterni, sem telst eðlilegt í frjálsum samfélögum og tengist m.a. almennum mannréttindum eins og prentfrelsi og trúfrelsi. Unnin eru hermdarverk gegn þeim, sem setja sig upp á móti islamsvæðingunni, til þess að hræða sem flesta frá því að hafa uppi eðlilegar varnir fyrir samfélög sín. Jihadistar hafa notið nytsamra sakleysingja við að þagga niður í þeim, sem grípa til varna gegn islamsvæðingu heimsins, með sögufölsunum, óhróðri og vanþekkingu.
Það er engin tilviljun að múselmönnum hefur fjölgað gífurlega hér á landi síðustu ár eins og hvarvetna í Evrópu. Unnið er markvisst að því að ná Evrópu undir Islam án umtalsverðrar andstöðu. Sumir gera jafnvel ráð fyrir að Evrópa verði orðin múslímskur heimshluti fyrir lok aldarinnar.  Múselmenn voru nær engir utan Balkanskagans fyrir nokkrum áratugum. Nú eru þeir tugir milljóna. Hérlendis eru þeir nú taldir vera 1500 talsins en voru örfáir fyrir nokkrum árum.
Þetta kann að þykja ekki mikill fjöldi en ef múselmönnum fjölgar hér um 30% á ári ( þeim hefur fjölgað miklu hraðar undanfarinn áratug) þá verða þeir orðnir um 20 þúsund talsins eftir áratug en 100 þúsund eftir hálfan annan áratug og meirihluti íbúa Íslands eftir tvo áratugi.  Fyrr en varir tortímist íslensk menning. Í staðinn yrði hér komið á frumstæðu miðaldar- og trúarofstækissamfélagi eins og þau eru í hinum íslamska heimi.
Þetta kunna að þykja fáránlega ýkjur, en þannig fór fyrir vöggu vestrænnar menningar og kristninnar þar sem nú heitir Miðausturlönd, Persíu og Indlandsskaganum. Þannig fór fyrir Líbanon á seinni hluta nýliðinnar aldar. Þó að svona skuggaleg spá gengi ekki eftir þá gæti hér skapast afar spennt og leiðinlegt samfélag ef múslímar halda áfram að streyma að og halda í forstokkaða lífsskoðun sína. Hversu hratt múslímum mun fjölga á Íslandi mun ráðast af hvernig við að bregðumst við þessarri ógn. Afneitun á raunverulegri hættu ber vott um mikið þekkingarleysi og einfeldni.
Hvarvetna í Evrópu hefur aðflutningur múslíma valdið vaxandi vandamálum. Stór hluti múslíma aðlagast ekki löndunum sem þeir flytjast til eins og fólk af öðrum trúarbrögðum hefur gert. Þetta er ekki sök heimamanna eins og stundum heyrist hjá fákunnandi fólki heldur stafar fyrst og fremst af kröfu margra forystumanna Islam um að múslímar í Evrópu lagi sig ekki að siðum gestgjafanna heldur að gestgjafarnir lagi sig að siðum Islam. Múslími, sem lagar sig að vestrænum gildum, er ekki sannur múslími segja margir  imamarnir, æðstuprestarnir. Þeir eru forystumenn jafnt  á hinu veraldlega sviði sem hinu trúarlega enda engin skil á milli. Um alla Evrópu eru að spretta upp sífellt hættulegri íslamskir öfgamenn ekki síst af þriðju og fjórðu kynslóð innflytjenda, oft vellaunaðir og hámenntaðir í evrópskum háskólum.
Almenningur í Evrópu er að vakna upp við vondan draum. Hugmyndaheimur múslíma, sem eru aldir upp við islamska innrætingu, er svo gjörsamlega frábrugðinn vestrænum gildum að flestir á Vesturlöndum átta sig ekki á honum og eru skýringar á því. Samkvæmt Kóraninum er jihad (heillagt stríð) skylda sérhvers múslíma til að leggja heiminn undir Islam og eru öll ráð til þess ekki aðeins leyfileg heldur skylda. Þar á meðal eru múslímskar lygar og blekkingar,-svokallað taqyyia. Stór blekking er að kalla Islam trúarbrögð friðar meðan staðreyndin er sú að landamæri Islam hafa verið alblóðug í 14 aldir. Þau rit sem Islam byggjast á, þ.e. Kóraninn, viðurkenndar hadíðsbækur ( rit um orð og athafnir Múhammeds) og opinber ævisaga Múhammeds (Sirah Rasul Allah) gera aðeins ráð fyrir friði þar sem Islam ræður ríkjum og heitir þar  Dar el Salaam (Dar el Islam), hús friðarins.
Dar el Harb, - hús stríðsins,  heita svæðin þar sem „úrhrök jarðar“ ráða ríkjum, svokallaðir kuffar, villutrúarmenn og trúleysingjar, þ.e. þeir sem víkja af leið Allah en það eru allir sem ekki eru rétttrúaðir múslímar. Í húsi stríðsins, m.a. hérlendis,  leyfist jihadistum , stríðsmönnum Allah, öll meðul til að ná settu marki en auðvitað er ráðlegast að ná markmiðunum án blóðsúthellinga nema það sé vænlegt til árangurs og styrkur múslíma nægur á svæðinu til þess að vinna örugglega í slíkum átökum. Taqyyia, múslímskar lygar, er gott tæki til að rugla óvininn í ríminu, þ.e.  okkur, sem múselmennirnar kalla kuffar og er eitt argasta skammaryrði þeirra.
Ofbeldið er notað sem tæki. Glórulaus og blóðug uppþot múslíma eru oftast þrælskipulögð en ekki sprottin af „réttlátri“ reiði. Fólk sem býr í íslömsku umhverfi reynir að komast hjá því að reita ofstækismennina til reiði og lætur undan kröfum þeirra. Til þess er leikurinn gerður.
Ofangreind rit Islam eru löðrandi í ofbeldi og fyrirmælum um ofbeldi gagnvart kuffar (eintala kafir) og konum. Nýlega sá ég fullyrt að boð um ofbeldi séu endurtekin 30.000 sinnum í Kóranium , hadíðunum og Sirah. Viðurkenndar hadíð-bækur eru nokkrar og sama boðunin um ofbeldi talin oftar  en einu sinni en fyrr má nú gagn gera til þess að kúga heiminn undir Islam. Engu má breyta í Kóraninum enda sagður orðréttur boðskapur Allah sjálfs til Múhammeds í gegnum erkiengilinn Gabríel. Og Múhammed er hinn eina sanna og fullkomna fyrirmynd allra Múslima. Múhammed var skelfilegri maður en orð frá lýst samkvæmt Sirah og hadíðunum, helsta grundvelli Islam með Kóraninum.
Múslímar á Íslandi sækja nú stíft að fá að byggja mosku til að hefja boðun hér á þessari fáránlegu lífssýn. Wahhab- múslimar í Saudi Arabíur hafa þegar keypt húsnæði hér fyrir madrössu, kóranskóla, til að innræta hér múslinskt ungviði til að það aðlagist ekki að íslenskum gildum og siðum. Wahhab-istar hafa aðgang að olíuauði Saudanna, sem kaupa sér frið og fá þannig að halda völdum.  Þeir standa að baki byggingu og rekstri langflestra moska og madrassa á Vesturlöndum og víðar. Þeir leggja áherslu á ströngustu gildi Islam eins og þau voru boðuð og iðkuð í upphafi. Þeir eru islamistar og boða islamisma eins og flest samtök múslíma gera,  sérstaklega þau sem eru sprottin frá Múslímska bræðralaginu og hafa komið að stofnun samtaka eins Al Qaeda, Hezbollah, Hamas, IHH, PLO og  Al Fatah, en öfgasamtök múslíma eru óteljandi.
Leitast  verður við að snúa Íslendingum til Islam.  Aðallega verður leitað lags við sakamenn og annað undirmálsfólk eins og gert er víðast. Fyrirstaðan þar er minnst og hugmyndafræði Islam aðlaðandi þessu fólki. Ungt fólk í uppreisnarskapi er einnig vænlegur markhópur  Nemendur í madrössum heita talibanar. Þeir eru heilaþvegnir með hatursboðskap Islam. Ef vel tekst til mun hluti af þeim gerast mujahedin, - stríðsmenn Allah og eru tilbúnir til að berjast og  fórna lífinu fyrir Jihad, - fyrir Allah. Þeir lýsa því sjálfir yfir að tilgangurinn sé að eyðileggja vestrænt samfélag innan frá enda samræmast vestræn mannréttindi og lýðræði ekki Islam.
Augu fjölda margra eru að opnast fyrir því að Islam er mikil ógn við vestrænt samfélag og raunar heiminn allan og miklu hættulegri en bolsjevismi og nasismi voru á síðustu öld. Ísland hefur hingað til sloppið að mestu við þessa ógn en það mun ekki verða lengi úr þessu. Stofnun madrössu og bygging mosku mun mjög flýta fyrir innrás hinna myrku afla.  Krafan, sem við gerum til okkar sjálfra um umburðarlyndi, heftir okkur í því að bregast við með þeim hætti sem dugir, sem er að banna starfsemi Islam hér á landi.
Ákvæði stjórnarskrárinnar um trúfrelsi er okkur ekki fjötur um fót. Trúfrelsið er skilyrt. Greinin hljóðar svo:  " Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu."
Á grundvelli þessarar skilyrðingar eru hægt að halda því fram að starfsræksla mosku og madrössu sé ekki leyfileg á Íslandi ef  litið er til þess hvernig vinnubrögð eru ástunduð í moskum og madrössum víðast og þá ekki síst á Vesturlöndum. Því er haldið fram að 80% af forystumönnum múslíma á Vesturlöndum flokkist undir öfgafulla islamista enda séu allir sem eru trúir Islam óhjákvæmilega öfgafullir og algjörlega upp á kant við vestræn gildi um mannréttindi og lýðræði.
Þá er því haldið fram með góðum rökum að að Islam sé ekki trúarbrögð fyrst og fremst heldur stórhættuleg heimsvaldastefna. Félagafrelsið var ekki hindrun í því að banna starfsemi Vítisengla hér landi.  Við myndum banna starfsemi nasistaflokks, sem hefði Mein Kampf að leiðarljósi. Starfsemi Islam ætti að banna á sömu forsendum og starfsemi nazista væri bönnuð. Islam er af sama meiði og nazismi og kommúnismi þar sem réttindi einstaklingsins er fyrir borð borin og er fórnað fyrir markmið rétttrúnaðarins. Íblöndun trúarinnar inn í alræðisstefnuna gerir Islam hættulegra en nazismann og kommúnismann enda 14 alda hörmungar þegar að baki og því miður miklar hörmungar framundan.
Á Vesturlöndum kærir enginn sig um það að vera í stríði gegn Islam en við höfum ekki valið. Forvígismenn Íslam hafa marg lýst yfir stríði og hafa staðið við það. Við erum í stríði hvort sem okkur líkar það betur eða verr og höfum verið í 14 aldir með hléum. Stríðið hefur verið magnast af hállfu islamista síðustu 30 árin með vaxandi styrk þeirra.  Lítið gagn í því að láta sem ekkert sé.
Ég segi þrjátíuþúsund sinnum nei við byggingu mosku og starfrækslu madrössu hér á landi meðan múslímar almennt snúa ekki baki við hreinu Islam eins og leiðtogar múslíma hafa ástundað. Nei-in mín eru jafnmörg og haturs- og ofbeldisboð Islam birtast í bókum þeirra. Framtíð íslenskrar og vestrænnar menningar er í húfi. Lágmarkskrafan er að náið verði fylgst með starfsemi múslíma hér og hvort boðskapurinn samrýmist íslenskum lögum og þá ekki ekki síst hegningarlögum.
Við þurfum að standa með þeim hundruðum milljóna múslíma sem þjást vegna gjörræðis Islam og er haldið í heljargreipum andstyggilegs hugmyndarheims. Þetta fólk þarf að fá að njóta sín eins og allir íbúar heimsins. Venjulegur múslími er ekki óvinur okkar. Islam á ekki að vera ósnertanlegt frekar en kommúnismi, nasismi eða fasismi enda af sama toga. Látum ekki hræða okkar með ofbeldi eða upphrópunum einfeldinga til þess að þegja. Stöndum vörð um málfrelsið. Stöndum vörð um íslenskt samfélag, íslenska menningu, sem er okkar dýrmætasta eign.
Eftir að hafa hlustað á viðtal við Alistair Darling, fyrrverandi fjármálaráðherra Breta í sjónvarpi í gærkvöldi er varla hægt að komast að annarri niðurstöðu en hann hafi álitð  Björgvin Sigurðsson þáverandi viðskiptaráðherra, Jón Sigurðsson þáverandi formann Fjármálaeftirlitsins, Baldur Guðlaugsson þáverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu og nokkra íslenska embættismenn aðra sem komu til fundar við hann í byrjun september 2008 annað hvort bjána eða bandítta. Annað hvort hafi þeir ekki gert sér grein fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem var komin upp, sem allir áttu þó að geta séð eða að þeir hafi verið staðráðnir í því að hafa rangt við, - verið óheiðarlegir.
Í stað þess að setjast niður til þess að ræða af heiðarleika hvernig hægt væri að leysa þá alvarlegu stöðu sem upp var komin  eins og háttur væri siðaðra manna hafi íslenska sendinefndin ekki haft neitt til málanna að leggja nema kvartanir yfir ósanngirni breska fjármálaeftirlitsins. Vanhæfni þessara manna eða óheiðarleiki hafi leitt það af sér að ekki hafi verið um eðlileg samskipti að ræða vegna bankahrunsins eins og það hefði getað orðið. Þannig hefði mátt afstýra mklu tjóni.
Í þessum orðum Darling liggja mjög alvarlegar ásakanir sem nauðsynlegt er að íslenska sendinefndin geri athugasemdir við. Ef þeim verður ekki svarð með viðunandi hætti er alveg ljóst að taka verður  uppbyggingu og vinnubrögðin í íslensku stjórnsýslunni algjörlega til endurskoðunar. Þeir sem hér koma að máli ættu þá heldur ekkert erindi lengur í opinberri þjónustu.
Athugasemdir Darling við vinnubrögð Árna Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra eru einnig mjög alvarleg. Hann segir fullum fetum að fullorðið fólk viðhafi ekki vinnubrögð eins og þau að birta viðtöl eins og hann hafi átt í síma við Darling nema gera grein fyrir því fyrirfram að slíkt kynni að vera gert. Lágmarkið hafi verið að birta am.k. þá allt viðtalið en ekki valda kafla.
Þjóðin skaðast ómælt af vinnubrögðum eins og hér hafa verið viðhöfð að sögn Darling. Vonandi er frásögn hans lituð af því að hann vill verja mistök sem Bretar og hann gerðu sjálfir í þessu máli eins og t.d. að setja hryðjuverkalög á Ísland og stöðva öll viðskipti við íslenska aðila og baka okkur þar með ómælt tjón. Ef frásögn han er sannleikanum samkvæm skýrir það kannski hvers vegna Ísland höfðaði ekki skaðabótamál á bresk stjórnvöld af því tilefni.
Lárus Blöndal hrl. og fleiri hafa ítrekað haldið því fram að Bretar og Hollendingar eigi ekki neinar löglegar kröfur á hendur íslenska ríkinu vegna Icesave reikninganna.  Landsfundur Sjálfstæðisflokksins tók undir þetta og sagði við greiðum ekki löglausar kröfur Breta og Hollendinga.
Þeir menn sem þannig tala og hugsa hljóta að vera á móti því að við greiðum löglausar kröfur Breta og Hollendinga á hendur okkur og greiða atkvæði gegn öllum samningum um Icesave.
Hver á fætur öðrum jafnt ráðherrar sem óbreyttir þingmenn ruddust fram í atkvæðagreiðslunni um Icesave með sínar atkvæðaskýringa  og sögðu að Bretar og Hollendingar ættu engar lögvarðar kröfur á hendur okkur. Samt sem áður samþykktu þeir samninginn sem nú verður borinn undir þjóðina.
Ég gat ekki varist þeirri hugsun að ég væri að horfa á hóp fólks sem væru geðklofar þegar ég fylgdist með umræðum og atvkæðagreiðslu frá Alþingi um Icesave. Dr. Jekyll og Mr. Hyde birtust þarna fram og til baka. Sögðu okkur ber ekki skylda til að greiða og "þess vegna greiði ég atkvæði með því að við greiðum löglausar kröfur Breta og Hollendinga".
Það er óskiljanlegt að þeir sem telja kröfur Breta og Hollendinga löglausar skuli geta látið sér detta það í hug að leggja tugamilljarða byrðar á herðar þjóðarinnar vegna slíkra krafna. Hvers konar fólk er þetta eiginlega sem nálgast vandamál með þessum hætti?
Og þetta eru ekki íslenskar krónur heldur gjaldeyrir. Fyrir utan síðustu tvö ár hefur verið viðvarandi og verulegur halli á gjaldeyrisviðskiptum þjóðarinnar í áratugi. Við höfum lifað um efni fram í áratugi og getum það ekki lengur en auk þess þurfum við kannski herða sultarólina um nokkur göt vegna óútfyllts tjékka sem enginn veit hver verður en engin lög standa til að við borgum. Vonandi hefur þjóðin sjálf vit fyrir þessum geðklofa mönnum.
Þeir margir Íslendingar sem taka undir málstað  múslíma endalaust og  sverta málstað Israel ættu að skoða kortin sem nú birtast daglega í blöðunum af miðausturlöndum  vegna ólgunnar þar.  Þeir áttuðu sig þá kannski á því hve fráleitur málflutningur þeirra er. Israel sést vart með berum augum á þesum kortum enda agnarlítið land meðal risavaxinna landa múslíma.
Israel er 20.770 km2  eða  rúmlega einn þúsundi ( eða 0.13%)  af því landi sem gjarnan er flokkað til miðausturlanda,  þ.e. lönd araba og berba ásamt með Iran og Tyrklandi. Heildarflatarmál þessara land telst vera 15.804.472 km2  ( Israel er einn fimmti af stærð Íslands). Gyðingar bjuggu dreifðir um þessi lönd fyrir stofnun Israel 1948. T.d. voru þeir um þriðjungur íbúa Bagdad og nær búseta þeirra þar alveg til herleiðingarnar til Babýlon á 6. öld fyrir Krist og áttu þeir stærsta þáttinn í gullnu öldinni í Bagdad sitt hvorum megin við kristnitökuárið okkar og er stundum ranglega eignuð Islam. Eftir árásarstríð araba gegn Israel við stofnun ríkisins 1948 flúðu nær allir gyðingar frá Irak eins og frá flestum löndum múslíma. Innan við eitt hundrað gyðingar munu núna búa í Irak.
Íbúafjöldinn í Israel mun vera um 7.6 milljónir manna eða um 1.5% af heildar mannfjöldanum í þessum löndum sem telja 494 milljónir íbúa. Hver íbúi Israel hefur því til ráðstöfunar innan við einn tíunda af því rými sem hver íbúi hefur að meðaltali í hinum löndunum. Það er því ekki skortur á landrými í miðausturlöndum, sem er rót vandans þar né tilvera Israel.
Ef tekinn er samanburður t.d. af Líbíu, þar sem allt er nú í fári, munu íbúar þar vera 6.4 milljónir manna en stærð landsins er 1.759.450 km2 . Á hvern ferkílómetra í Líbíu eru því að meðaltali 3.6 íbúar meðan 366 íbúar eru að meðaltali á hvern íbúa í Ísrael. Í þokkabót eru svo feiknarlegar olíulindir í Líbíu en engar í Israel né neinar aðrar auðlindir í jörðu. Líbía gæti verið auðugasta land heimsins þar sem smjör drypi af hverju strái. Staðreyndin er hins vegar sú að þjóðartekjur á mann eru tvöfalt hærri í Israel en í Líbíu.
Í Líbíu var til skamms tíma eitt af elstu samfélögum gyðinga utan Israel en saga þess er talin ná aftur til þriðju aldar fyrir Krist. Fasistar á Ítalíu fóru mikinn í ofsóknum gegn gyðingum í Líbíu á stríðsárum en þeim var haldið áfram af fullum krafti af heimamönnum eftir heimstyrjöldina. Þegar Líbía fékk sjálfstæði 1951 hröktust nær allir gyðingar frá landinu enda nutu þeir mjög skertra mannréttinda eins og algengast er í múslímskum löndum þar sem minnihlutahópar mega ávalt eiga von á blóðugum ofsóknum.
Í Israel hins vegar eru arabar um 20% af þjóðinni og njóta allra mannréttinda. Þeir sitja á þinginu, eru dómarar, yfirmenn í hernum og ekkert væri því til fyrirstöðu að arabi væri forsætisráðherra enda er Israel eina landið þar sem lýðræði er virt í miðausturlöndum. Það skyldi ekki vera þar sem skilur á milli gæfu og ógæfu þessara landa?
Orsök ógæfu múslímsku landanna stafar að minnsta kosti ekki af því að gyðingar hafi rænt þá landi sem sé forsenda fyrir velferð þeirra. Gyðingar voru ávalt í meirhluta á þeim svæðum sem nú heita Israel en rómverjar gáfu nafnið Palestína gyðingum til háðungar eftir að þeir hernámu landið. Það er sögufölsun að til hafi verið land múslímskra araba sem hét Palestína. Raunar var landið mjög strjálbýlt og nánast eyðimörk þegar gyðingar fóru að flytjast þangað á seinustu öld og hófu þar uppbyggingu. Uppbyggingin varð forsenda þess að arabar fóru á leita þangað frá næstum löndum í leit að lífsviðurværi sem dugnaður gyðinga skapaði.
Því miður er nær ávalt dregin upp mjög bjöguð mynd af samskiptum Israel og araba í íslenskum fjölmiðlum. Vonandi stafar það meira af vankunnáttu en gyðingahatri.
Nú þegar það hefur verið fullreynt að Hæstiréttur hefur ógilt kosninguna til stjórnlagaþings er ljóst að enginn hefur verið kosinn til setu á þinginu.  Kjörbréf þeirra 25 manna, sem voru taldir hafa náð kosningu áður en Hæstaréttur úrskurðaði kosninguna ógilda, eru því ógild.  Allir 521 sem buðu sig fram til kjörs á stjórnlagaþingi hafa því sömu stöðu. Þeir hafa allir lýst yfir vilja sínum til þess að vinna að endurskoðun stjórnarskrárinnar en val um það hverjir þeirra skyldu annast verkið hefur ekki farið fram þannig að mark væri á því takandi.
Langfelstir þeirra sem buðu sig fram til setu á stjórnlagaþingi voru sammála um að skerpa þyrfti á þrígreiningu ríkisvaldsins, þ.e. að auka og treysta sjálfstæði löggjafavalds, framkvæmdavalds og dómsvalds. Flestir voru sammála um það að ógæfa Íslands stafaði m.a. af lélegri stjórnsýslu sem m.a.  ætti rót sína að rekja til skorts á aðgreiningu valdaþátta ríkisins.
Kosningin til stjórnlagaþingsins var eitt allsherjar klúður, bæði hvað varðar fyrirkomulag og framkvæmd. Um það hljóta allir að vera sammála. Stjórnsýslan féll enn einu sinni á prófinu.  Þó að málið sé vont gæti það enn versnað ef einhverjum skyldi detta það til hugar að skipa þá 25 menn,sem höfðu fengið ógild kjörbréf. Þá væri áfram unnið í þeim anda að aðgreining valdaþátta samfélagsins væri aðeins til málamynda.
Ef Alþingi dettur til hugar að skipa þessa 25 í einhvers konar stjórnlaganefnd er augljóslega verið að hafa úrskurð Hæstarétt að engu. Þá er Alþingi að taka yfir dómsvaldið. Ef einhverjum þessara 25 manna dytti til hugar að taka sæti í slíkri nefnd hafa þeir fallið á prófinu og hafa sannað að þeir eiga ekkert erindi til að endurskoða stjórnarskránna.
Það er dapurlegt að fylgjast með fögnuði í íslenskum fjölmiðlum yfir því sem er að gerast í Egyptalandi og nálægum Arabalöndum. Þessir fögnuður minnir á fögnuð vegna byltingarinnar í Íran 1979 þegar Íranir fóru úr kólnandi öskunni í vítiseldinn og heimurinn færðist ískyggilega nærri næstu alheimsstyrjöld.
Lang líklegast er að þróunin í Egyptalandi og nálægum ríkjum verði á svipuðum nótum og að klerkaveldið muni ná yfirhöndinni í Egyptalandi í gegnum Múslímska bræðralagið, sem var stofnað 1928 og hefur sett sér það markmið að ná heiminum undir Islam og Sharíalög eins og klerkastjórnin í Iran hefur gert. Fjöldi samtaka hafa sprottið út úr Múslímska bræðralaginu eins og Hamas, Hezbollah og Al Kaeda.  Þessir aðilar hafa ítrekað lýst yfir stríði gegn Vesturlöndum og þar með talið okkur. Þeir telja sér öll meðöl leyfileg,- lygar, blekkingar og blóðsúthellingar. Markmiðið núna er fyrst og fremst að eyðileggja Vesturlönd innan frá og í því skyni teygja þeir arma sína um öll Vesturlönd og m.a. hingað.
Enginn þarf að efast um að Mubarak var einræðisherra í skjóli hersins. Raunverulegt lýðræði er ekki til í þessum löndum og er andstætt eðli Islam og Sharíalögum. Það  er því ekkert annað í kortunum en einræði eða harðstjórn af einhverju tagi. Byltingar í þessum löndum færa þeim aðeins annan harðstjóra. Mubarak var slíkur maður en hann hélt frið við nágranna sína í Israel og hann hélt ofstækisöflum eins og Múslímskra bræðralaginu í skefjum.
Ofstækishrópin á götum Kairó ganga meðal út á það að stofna alheims kalífat, allsherjarríki Islam og eru hugmyndir af sama toga og alheimsríki öreiganna og þúsund ára ríki nasista þ.e. hryllingsdraumar kommúnista og nasista á síðustu öld. Kallað er eftir frelsi Palestínu og eyðingu Israel. Undir slík hróp taka vinstri menn á Vesturlöndum. Þeir ættu þó að muna að klerkastjórnin í Íran tók af lífi flesta þá vinstri menn sem stóðu með þeim að byltingunni í Íran.
Þegar kyndillinn er svona hættulega nálægt púðurtunnunni er mikið í húfi að vestrænir leigtogar séu starfi sínu vaxnir. Fyrsta skilyrðið er að þekkja óvin sinn. Sennilega er að renna upp ljós fyrir sumum leigtogum Evrópuríkja þó að enn sé verið að lögsækja einstaklinga í Evrópu fyrir það eitt að segja sannleikann um eðli Islam. Merkel, Sarkozy og Cameron, leiðtogar Þýskalands, Frakklands og Bretlands hafa öll lýst því yfir að fjölmenningarstefnan hafi mistekst vegna eðli Islam.
Í Hvíta húsinu situr hins vegar maður sem er hættulegur fyrir þróun heimsmála á næstunni. Frank Gaffney, fyrrum aðstoðar varnarmálaráðherra í stjórnartíð Reagans, telur að að helstu ráðgjafar Obama í málefnum Miðausturlanda tengist Múslímska bræðralaginu,- þ.e. að helstu óvnir Vesturlanda stýri stefnu bandaríska forsetans í þessum málum. Fjöldi málsmetandi manna eru á sömu skoðun.
Um leið og við eigum að hafa áhyggjur af okkar eigin öryggi eigum við einnig að hafa samúð með þjáningu hundruð milljóna múslíma sem þjást vegna ofstækis Islam og vegna skorts á mannréttindum í íslömskum löndum. Það er í þágu mannúðar og framtíðar öryggis heimsins að stuðla að aukum raunverulegum mannréttindum í þessum löndum.