Leita í fréttum mbl.is

Sannleikurinn eða góðmennskan

Þessa daganna, þegar allar vinsældaleitandi smásálir íslenskra stjórnmála keppast hver um aðra að yfirbjóða í fráleitu kapphlaupi um hæstu boð vegna innrásar frá íslamska heiminum og svörtu Afríku inn til Vesturlanda, kvaddi ung kona frá Íran sér hljóðs á lokadegi menningarviku Reykjavík Dance Festivals og Lókal í dag. Þessi kona er raunverulegur pólitískur flóttamaður frá Íran en ekki velferðarfarþegi að leita sér betra lífs á kostnað annarra eins og langflestir þeir eru, sem nú koma hundruðum þúsunda talsins frá ónýtum samfélögum, þar sem íslam er stýrikerfi samfélagsins.

Lýsing Nazanin á þeim hryllingi, sem sérstaklega konur búa við í Íran eftir að erkiklerkarnir með Khomeini í broddi fylkingar breytti landinu 1979 í íslamskt helvíti, kemur ekkert á óvart þeim sem hafa borið sig eftir upplýsingum og eru ekki blindaðir af villandi upplýsingum fjölmiðla, háskólanna og þeirra sem telja sjálfum sér og öðrum trú um að þeir séu handhafar stóra sannleika um sögu þessara landa og ástand mála þar nú um stundir.

Vonandi verður kjarkur Nazanin til þess að allur almenningur á Íslandi fær að heyra hvaða ástæður urðu til þess að hún varð að flýja frá ástkæru heimalandi sínu, fjölskyldu og vinum vegna grimmdar íslam, brjálæðis erkiklerkanna og sharíalaga. Þó að ég og ýmsir fleiri hafi reynt að segja þessa sögu undanfarin mörg ár í ræðu og riti hafa afar óheppilegir menn orðið til þess að gera orð okkur tortryggileg með því að væna okkur um alls kyns slæmar hvatir. Þarna eru ekki síst þeir á ferðinni sem teljast vera á vinstra kantinum og hefur tekist á fá á sig menningarvita- eða fræðimannastimpil þó að framganga þeirra í þessarri umræðu ætti að gefa þeim allt annan og leiðinlegri stimpil.

Nazanin hafði þriggja ára háskólanám að baki þegar kom að forsetakosningum í Íran 2009. Hún studdi Mousavi, sem lofaði auknu frelsi og lýðræði og sem bauð sig fram gegn Ahmadinejad, handbendi erkiklerkanna, andstæðinga lýðræðis og frelsis. Allur heimurinn vissi að þjóðin studdi Mousavi en samt varð niðurstaða talningar upp úr kössunum Ahmadinejad í vil. Hin augljósu kosningasvik urðu til þess að hundruðir þúsunda manna streymdi út á götunnar. Uppreisnin var barinn niður af miskunarleysi, - blóðið rann og var m.a. Neda Agha-Soltan 26 ára háskólanemi myrt. Myndband af dauðastríði hennar á götu í Teheran fór um alla netheima. Eins hefði getað farið fyrir Nazanin en ekki er að efa að hún væri annað hvort dauð eða í fangelsi ef henni hefði ekki tekist að flýja. Tveimur árum eftir að henni tókst að komast yfir til Tyrklands, lenti hún nánast óvart á Íslandi á leið til Kanada.

Nazanin er pólitískur flóttamaður sem ég fagna. Hún er kjarkmikil og menntuð og hún lætur ekki dusilmenni segja sér fyrir verkum. Hún þorir að segja sannleikann um íslam jafnvel þó hún viti eins og allir múslímar að það getur leitt dauðann yfir hana. Íslensku dusilmennin í fræðimannakufli þora ekki einu sinni að kynna sér málin af hræðslu við að einhverjir myndu kalla þá einhverjum vanalegum og gjörsamlega bitlausum nöfnum: rasisti, fasisti, ný-rasisti, nýfasisti, útlendingahatari, hægri öfgamaður eða hvaða bjánaleg orð sem mönnum dettur til hugar að kalla okkur sem höfum ekki látið hræða okkur frá því að bera sannleikanum vitni í þessum efnum.

Eflaust munu allir þessir rosalega “góðu” menn halda áfram að yfirbjóða hvern annan í því að skófla hrjáðu fólki, veðferðarfarþegum og nokkrum alvöru hryðjaverkamönnum í bland inn í landið á kostnað ríkiskassans. “Góðmennskan” verður öll á kostnað annarra en þeirra sjálfra. Reynslan sýnir það erlendis að hver einstaklingur af þessu tagi kostar að meðaltali 100-200 milljónir króna þegar á heildina er litið. Árni Páll vill fá 500 manns. Þeir kosta 50-100 milljarða króna. Hann virðist treysta því að landið komi innanfeitt undan tíma hægri stjórnarinnar!

Ber að skilja orð mín svo að við eigum ekkert að gera til hjálpar þessu vesalings fólki frá löndum sem býr við ónýtt stjórnarfar? Nei! Þau eiga ekki að skiljast þannig. Við eigum að leggja rækt við fólk eins og Nazanin og hjálpa henni til þess að hafa áhrif í sínu heimalandi og endurheimta ættjörð sína úr greipum helvítis, sem íslam er og hefur verið í 14 aldir. Við eigum að segja sannleikann um íslam og hvern þann hrylling annan sem hrjáir þessi lönd. Undansláttumenn viðhalda ástandinu í þessum löndu. Þeir sem segja sannleikann koma breytingum til leiðar. Mörg þessara landa er eftirsóknarverðastir staðir jarðarinnar frá náttúrunnar hendi. Ekkert ætti að hindra þar gott mannlíf ef fólkið fengið að ráða sér sjálft og byggi við frelsi og lýðræði.

Engum heilvita mann datt til hugar að lausnin á vanda fólks í Þýskalandi á dögum nasismans væri að koma því öllu fyrir í löndum sem bjuggu við andlega heil stjórnvöld eða íbúum Rússlands, Kína, Kúbu, Norður-Kóreu o.s.fr. Vandi þessara samfélaga allra er ekki að þarna búi annars konar fólk en í löndum sem búa við frið, velmegun og frelsi heldur að það býr við stjórnarfar sem leiðir til fátæktar og eymdar. Íslam er hræðilegra en kommúnisminn og nasisminn til samans. Þann sannleika verðum við hafa einurð og kjark til þess að segja.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir að skrifa sýn mína à þessu ég hef verið að fylgjast með erlendis à miðlum þar sem allt er lesið fra hægri.

kristjan loftur bjarnason (IP-tala skráð) 31.8.2015 kl. 01:07

2 identicon

Takk fyrir góðan pistil.  Keep on...

Ívar Már Jónsson (IP-tala skráð) 31.8.2015 kl. 08:09

3 identicon

Við hvers konar stjórnarfar býr almenningur í Bandaríkjunum og Evrópu þar sem Rússland er skilgreint sem óvinurinn?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 31.8.2015 kl. 08:44

4 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Elín

ég skil ekki þessa spurningu og þaðan af síður hvað hún varðar efni greinarinnar.

Valdimar H Jóhannesson, 31.8.2015 kl. 11:02

5 identicon

Þú ert að tala um stjórnarfar sem leiðir til fátæktar og eymdar.  Hvers vegna eru Bandaríkin og Evrópa að kveikja elda í Úkraínu?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 31.8.2015 kl. 11:23

6 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Elín

ég skil ekki hvert þú ert að fara. Þetta hefur ekkert að gera með efni greinar minnar og væri kannski efni í allt aðra grein sem ég ætla ekki að fara núna í að skrifa. Skrifaðu sjálf um efnið ef þú hefur á því einhverjar skoðanir sem ég sé ekki í fljótu bragði hverjar eru.

Valdimar H Jóhannesson, 31.8.2015 kl. 12:11

7 identicon

Rússar gætu stuðlað að friði, ólíkt Bandaríkjunum og Evrópu.  Það er einkennileg taktík að taka þá úr umferð nema að markmiðið sé að  fara í stríð.  Ef þú skilur hvert Bandaríkin og Evrópa eru að fara með þessum aðgerðum sínum þá erum við alveg örugglega ekki á sama báti.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 31.8.2015 kl. 12:53

8 identicon

Frábær pistill eins og annað sem þú hefur

skrifað um þessi mál.

Spurning hvort þessir bláeygðu sjái ljósið..?

M.b.kv sem endranær.

Sigurður K Hjaltested (IP-tala skráð) 31.8.2015 kl. 15:59

9 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Hið svokallaða Ríki Islan býr ekki við hergagnaframleiðslu. Öll sín vopn þurfa þeir að kaupa.

Og vopnin koma frá Rússum, Kínverjum, Þýskalandi, Frakklandi, Bandaríkjunum og fleiri löndum sem telja sig "siðuð". Þó ekki væri nema eitt þeirra ríkja sem selja IsIs vopn legðu niður þá iðju, þá væri stórt skarð hoggið í hernaðarmátt þess.

En með þetta, eins og flest annað, peningarnir tala og af peningum hefur IsIs nóg!

Vandinn liggur fyrst og fremst í því að þessum öfgasamtökum, sem hafa gefið út að þau stefni á heimsyfirráð, er gefinn kostur á vopnum. Án vopna er ekki hægt að heyja styrjöld.

Án styrjaldar er enginn flóttamannavandi.

Gunnar Heiðarsson, 31.8.2015 kl. 16:10

10 Smámynd: Skeggi Skaftason

Valdimar skrifar:

"Engum heilvita mann datt til hugar að lausnin á vanda fólks í Þýskalandi á dögum nasismans væri að koma því öllu fyrir í löndum sem bjuggu við andlega heil stjórnvöld "

Það var nú samt svo að margar þjóðir reyndu að aðstoða eftir megni gyðinga að flýja undan dauðasveitum nasista og útrýmingarbúðum. Frægt er þegar Svíar og Danir aðstoðuðu nær alla danska gyðinga að flýja yfir sundið til Svíþjóðar á einni nóttu.

En Íslendingar voru reyndar algjörir eftirbátar í þessum efnum og neituðu á annað hundrað gyðingum um landvistarleyfi Það er skammarblettur í Íslandssögunni. 

Skeggi Skaftason, 31.8.2015 kl. 18:19

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ekki gleyma "sæluríkinu" Svíþjóð, sem selur vopn út um eyrun á sér til þessara brjálæðinga, Gunnar. Valdemar, þakka þér góðan pistil og vel orðaðan.

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 31.8.2015 kl. 18:30

12 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þakka góða grein hjá þér nafni. þetta er nefnilega mergur málsins þetta fólk semstreymir frá arabalöndum og Afríku þ,e, M

Múslímalöndum

Valdimar Samúelsson, 31.8.2015 kl. 21:50

13 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Skeggi Skaftason

Það var fyrir mistök að þú slappst inn með athugasemd þína. Reglan er sú að aðeins þeir sem koma fram undir nafni og eru málefnalegir fá að birta athugasemdir við bloggfærslur mínar.

En fyrst að þessi athugasemd þín birtist er rétt að ítreka það að það voru aðeins Danir sem stóðu sig sem heiðvirð þjóð gagnvart gyðingum á tímum útrýmingarherferðarinnar. Nánast hver einasti gyðingur í Danmörku lifði stríðið af, enda litu Danir á þá sem landa sína en ekki sem framandi fólk. Flestum var smyglað til Svíþjóðar en með flestum gyðingum, sem lentu í fangabúðum nazista, fylgdust Danir öll stríðsárin og gættu þess að þeir væru óhultir. Eftir stríðið komu gyðingarnir að eignum sínum óskertum og í sumum tilvikum litu nágrannar eftir gæludýrum þeirra stríðið á enda.

Íslensk stjórnvöld urðu sér til skammar og halda áfram að vera það með því að viðurkenna Hamas og veita Hamas styrki til þess að vinna á Ísraelsríki.  Össur utanríkisráðherra og vinstri stjórn Jóhönnu, unnu það sér til óhelgis að viðurkenna þetta ofbeldislið og styrkja það með 100 milljónum króna til þess að byggja neðanjarðargöng vegna innrásar sem Hamasliðar ætluðu að gera inn í Ísrael en mistókst. Að standa með öflum, sem hafa það þá stefnuskrá sinni að eyða heilu þjóðlandi og drepa hvern einasta gyðing heimsins, - ekki bara þá sem búa í Ísrael  er alveg forkastanlegt. Er hægt að komast lægra í utanríkismálum?

Valdimar H Jóhannesson, 31.8.2015 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 192248

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband