Leita í fréttum mbl.is

Þetta er hijrah og jihad

Vankunnátta og skilningsleysi á íslam er stærsti vandi sem hinn vestræni heimur á við að etja núna þegar framtíðarhagsmunir hans eru í húfi. Þannig virðist ekki vera vottur af skilningi hjá ráðamönnum t.d. í Evrópu hvað er í raun að gerast núna þegar hundruðir þúsunda múslíma ryðjast inn í lönd Vestur-Evrópu með grátandi börn á örmunum. Að baki þeim sjá þeir, sem eru ekki blindaðir af eigin „góðmennsku“, unga, ygglda menn með farsímana sína reiðbúna í jihad, - reiðubúnir til þess að „verða móðgaðir“ við öll tækifæri vegna þess að fáeinir sjá í gegnum alræðisheimsyfirráðakerfið íslam sem sveipar um sig trúarlegri slæðu. Ungu mennirnir eru lang stærsti hluti „flóttamannanna“, - innrásarliðsins.

Upphafna „góða fólkið“ neitar meira að segja að sjá, að þetta trúarívaf er andstyggilegt á alla mælikvarða. Almennt neita undansláttarmenn að kynna sér staðreyndir um 14 alda alblóðuga sögu íslam. Það er svo gott að vera fákunnandi. Þá þarf ekki að taka afstöðu nema á blindum, tilfinningalegum grunni.

Þó að stór hópur manna sé að verja kröftum sínum, tíma og peningum til að reyna að vekja Vesturlönd upp af djúpu meðvitundarleysi á feigðarför, hafa undansláttarmennirnir algjöra yfirhönd, í háskólasamfélaginu, fjölmiðlum, þjóðkirkjunni og hjá stjórnmálastéttinni.

Þrátt fyrir ólýsanleg grimmdarverk, ofbeldi, upplausn, allsherjarstríð um Mið-Aausturlönd, 27 þúsund skráð hryðjuverk í nafni íslam síðan 11. september 2001 halda þessir hættulegu einfeldingar áfram að trúa fáránlegum áróði múselmanna að þetta sé allt saman í raun Vesturlöndum að kenna. Þau hafi valdið upplausninni. Ógæfa múslíma hefur alltaf verið öðrum að kenna að þeirra mati. Þeir nærast á fórnarlambakennd.

Í raun má til sanns vegar færa að Vesturlöndum sé að nokkru um að kenna núna hvernig komið er. Ekki vegna þess að þau hafi aðhafist of mikið í þessum löndum heldur vegna þess að þau hafa aðhafist of lítið. Vesturlönd hafa horft framhjá því að stríði hefur verið lýst á hendur þeim t.d. af hálfu stjórnvalda í Íran, Al Kaida, ISIS, Boko Haram,Al Shabaab, Talibana auk allra froðfellandi klerkanna í moskum víða um lönd, sem heita að tortíma vestrænni menningu og ná yfirráðum yfir Vesturlöndum.

Vesturlönd hafa horft framhjá hörmungum minnihlutahópa, aðallega kristinna án þess að aðhafast nokkuð nema til ills eins og að ráðast fyrst inn í Írak, koma þar öllu í upplausn og fara síðan þegar búið var búið að skapa þar eitt allsherjar múslímskt brjálæði. Þá hafa Vesturlönd goldið utanríkisstefnu Obama afar dýru verði en hann meir en nokkur annar ber ábyrgð á á arabíska vorinu, sem undansláttarmenn fögnuðu. Ég og margir aðrir sem höfum kynnt okkur íslam og múslímskan hugsanahátt vissum að þarna var aðeins verið að auka á hörmungarnar enda gósentíð fyrir Múslímska bræðralagið, wahabbista og salafista með dyggri aðstoð undansláttamanna víða um lönd. Þvílík forsmán!

Þeir sem hafa fylgst með fréttum af einhverri kunnáttu muna að ISIS hétu því snemma í vor að senda 500 þúsund flóttamenn frá múslímska heiminum inn í Evrópu til þess að valda þar glundroða og lauma meðal þeirra liðsmönnum sínum sem eiga að fremja þar hermdarverk og undirbúa yfirtöku á Evrópu. ISIS auglýsa vel grimmdarverk sín. Við sjáum hvernig fólk er hjálshöggvið, hrint fram af háum byggingum, drekkt, krossfest, afhausað, brennt lifandi í búrum, brennt lifandi hangandi í búkkum og skotnir í stórum hópum ofan í skurðum o.s.fr fyrir utan hræðilega meðferð á konum sem eru seldar í ánauð, gerðir að kynlífsþrælum og niðurlægðar á allan hátt. Enginn endir virðist á grimmdarverkum þeirra.

Þeir leyna ekki voðaverkum sínum heldur eru með kunnáttumenn til þess að taka þau vandlega upp með Hollywoodtækni í myndatöku og öllum frágangi. Síðan er þess gætt vel að koma hrylllingnum á framfæri á netinu. Tilgangurinn er sá að valda mikilli skelfingu hjá öðrum eins og kóraninn boðar að gera skuli. Sjá t.d. súru 3.151 („Brátt munum við varpa skelfingu inn í hjörtu hinna trúlausu þar sem þeir hafa tengt sig við Allah án þess að hann hafi gefið til þess leyfi“) og súru 8.12 („Allah birti englunum vilja sinn og mælti:“Ég er með yður. Eflið hugrekki hinna trúuðu. Ég mun varpa skelfingu í hjörtu vantrúaðra. Hálshöggvið þá og höggvið af þeim hvern fingur““).

Skelfingin lamar mótstöðuafl andstæðinga og virkar ansi vel þar sem flestir þora ekki einu sinni að kynna sér staðreyndir varðandi íslam hér á Vesturlöndum, hvað þá að tjá sig með sannleikann í huga. Einnig lama þessi voðaverk baráttuþrek andstæðinga á staðnum sem flýja dauðskelkaðir undan þessum hamslausa hryllingi. Skelfingin ýtir einnig á eftir flóttamönnuum sem reyna að komast í skjól og dylja fyrir almenningi að hér er í raun um innrás jihadista til Vesturlanda að ræða fyrst og fremst.

Auðvitað eru þarna margir raunverulegir flóttamenn sem eiga um sárt að binda. Sérstaklega er sárt að horfa upp á þjáningar barnanna. Við viljum öll vernda þau eins og kostur er. Við getum hins vegar ekki tekið á móti þeim öllum sem vilja koma. Lausnin verður að vera sú að stemma á að ósi.

Þeir sem kunna eitthvað fyrir sér um íslam gera sér auðveldlega grein fyrir því að það sem er nú að gerast er hijrah, þ.e. flutningur múslíma inn á önnur svæði til þess að yfirtaka þau eins og þegar Múhameð flutti frá Mekka til Yathrib árið 622. Yathrib var aðallega bær gyðinga á þessum tíma. Nokkrum árum seinna hafði Múhameðs launað gyðingunum svo gestrisnina að hann hafði hrakið þá alla burt sem hann var ekki búinn að drepa. Bærinn fékk nafnið MadÄ«nat an-NabÄ« (bær spámannssins) og var fljótlega stytt í Medína. Öllum múslímum er uppálagt að yfirtaka byggðir kuffar (hinna óhreinu og trúlausu) með því að setjast að í þeim, halda sínum siðum til streitu hvað sem það kostar, yfirtaka síðan byggðina og kúga þá sem fyrir voru undir íslam, hrekja þá í burtu eða drepa. Þetta er þegar að gerast út um alla Evrópu með íslömskum samfélögum og kallast því undarlega nafni, - fjölmenning!

Aðferðarfræðin er jihad, - heillagt stríð til sóknar og varnar fyrir íslam. Þar eru öll meðöl notuð, blekkingar, lygar, fortölur, mútur, trúboð (Dawah), hermarverk og morð. Hermdarverkasamtökin ISIS hafa stofnað kalífat í Sýrlandi og Írak. Kalífatið er að breiðast út til næstu landa nú mest í Líbíu en einnig á Balkanskaganum. Ákafir fylgjendur Múhameðs um heim allan aðstoða við þetta verk. Slíkir menn fyrirfinnast einnig á Íslandi. Þeim mun fjölga hér eins og um allan Evrópu , þar sem þessi öfl eru óðum að styrkja stöðu sína með vaxandi fjölda múslíma, moskum, sem eru í raun víghreiður íslam og kóranskólum. Vesturveldin sitja þegjandi undir þessum ósköpum öllum og aðhafnast nánast ekkert nema til málamynda. Ef vestræn mennig á ekki að liða undir lok þá er núna tími vopnbeitingar af fullri hörku. Þessari illsku verður ekki bægt frá nema með fullri hörku og manndrápum í stórum stíl, - því miður. Þeim mun fleiri líf munu glatast eftir því sem lengur er hikað.

Glórulausir vinstri menn eins og Dagur Eggertsson, Árni Páll, píratagreyin, Guðmundur Andri Thorsson og fleiri og fleiri nytsamir vanvitar (vanviti er sá sem lítið veit en gerir sér ekki grein fyrir því) í öllum flokkum hjálpa mjög til við að koma á íslömsku helvíti hérlendis, eins og Angela Merkel í Þýskalandi og Obama í Bandaríkjunum. Frelsi manna á Vesturlöndum er ekkert sjálfgefið og hefur í raun varað mjög stutt í sögulegu samhengi.

„Faðir, fyrirgef þeim, því vita ekki hvað þeir gjöra“ sagði Jesú á krossinum (Lk 23.34). Ég get ekki gert þessi orð að mínum. Ég fyrirgef ekki þessi svik við framtíð þjóðarinnar eða Vesturlanda. Þau eru ófyrirgefanleg.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Með hvaða stjórnmálaflokki mælir þú til að sporna gegn aukinni útbreiðslu á kóran og múslimavæðingu í okkar samfélagi?

Jón Þórhallsson, 8.9.2015 kl. 16:35

2 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jón

því miður sé ég ekki að neinn þeirra standi í lappirnar. Ætli það endi ekki með að stofnaður verði stjórnmálaflokkur þegar nógu mörgum er farið að blöskra.

Valdimar H Jóhannesson, 8.9.2015 kl. 17:06

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Orð eru til alls fyrst:

http://thjodarskutan.blog.is/blog/thjodarskutan/entry/1583418/

Allar ferðir byrja bara á 1 skrefi:

http://www.petitions24.com/stunings-yfirlysing_vi_kristilega_-mijuflokkinn

Jón Þórhallsson, 8.9.2015 kl. 18:10

4 Smámynd: Loncexter

Ef enginn stjórnmálaflokkur hér hefur vit á því að byrgja brunninn áður en barnið dettur í hann, er landið búið að vera.

Loncexter, 8.9.2015 kl. 18:49

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Hægri Grænir er að stofni til öflugur.

Helga Kristjánsdóttir, 9.9.2015 kl. 08:05

6 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Helga

þér getur varla verið alvara ef þú heldur að Vinstri grænir séu til góðs hvað þetta varðar.

Valdimar H Jóhannesson, 9.9.2015 kl. 08:47

7 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæll kæri Valdimar.

Góðuir og þarfur pistill hjá þér.

Svar þitt til Helgu er þeim vankanti búið að þú hefur hraðlesið það sem hún sagði - hún nefni HÆGRI GRÆNA ekki VINSTRI eins og þér skildist.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 9.9.2015 kl. 11:27

8 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Helga

rétt sem Predikarinn segir. Ég var of fljótfær. Kannski gætu þeir tekið þetta upp hjá sér. Verðum að bíða og sjá.

Valdimar H Jóhannesson, 9.9.2015 kl. 11:52

9 identicon

hugsanlega er þrautalending þessa alvarlega máls sú að stofna afl sem tekist getur á við innrásarherinn,það er alveg með ólíkindum hvað fólk er gersamlega veruleikafirrt,það þarf ekki annað en að skoða frettamyndir til að sjá að meirihluti þessara svokölluðu flóttamanna eru ungir menn,og furðulegt er að þetta fátæka fólk er flest með farsíma,hver borgar flutning á milli símkerfa,ekki gefið. Grátmyndir eru flestar falsaðar til að grátkórinn hafi smá vogarafl gagnvart þeim sem eru ekki sannfærðir. Fólk þarf að gera sér grein fyrir því að innrásinn er hafinn.

Halldór Ó Bergsson (IP-tala skráð) 9.9.2015 kl. 13:36

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þakka þér Predikari góður,en þetta atvik er lýsandi dæmi um samvinnu.Nokkuð sem landslið Íslands kalla,"einn fyrir alla,allir fyrir einn." Þannig munum við    verjast best, Þakka þér fyrir pistilinn Valdimar.

Helga Kristjánsdóttir, 9.9.2015 kl. 14:00

11 identicon

Ég styð algerlega það sem Valdimar er að segja í meiningu sinni að mínu mati er þetta ekkert annað en dulin herkænska um síðari dulin alheims yfirráð hvar voru öll littlu elsku greyið börnin hvers vegna bara fullorðnir og ungir karlmenn vel klæddir veifandi snjallsímunum sínum börn sýnd í mýflugulíki eftir 25-35 ár verður meiri hluti heimsins af múslima bergi brotið og ég má ekkert segja þá er ég talin einhvað verri með fordóma haldin rasistma sem ég er alls ekki allt er gott í hófi og þessu er því líka Ísland er of lítil þjóð til að meiga við svona löguðu og manni bannað að segja sýna skoðun eina sem ég skýs er að vernda innfædda þá fámennu íslendinga sem til eru áður en við verðum út dauð vona að einn daginn muni vor samlandar sjá af sér þá leið og kanski var ég að hafa rétt fyrir mér en þá sennilega miður of seint en miður ég er alls ekki meðvirk þessu eins og ég er að horfa upp á samlanda mína og nágrannaþjóðir vera samkenndarmeðvirk með fyllstu virðingu við mannkynið án stéttar þess eða stöðu mín trú er að allir eigi sér sinn tilverurétt en þetta er kanski ekki alveg sú rétta leiðin farin.

Freyja Dís Númadóttir (IP-tala skráð) 9.9.2015 kl. 16:41

12 identicon

Sæll Valdimar - og þið önnur, gestir Valdimars !

Að: öðrum skynsamlegum innleggjum ólöstuðum - sem og vandaðri frásögu Valdimars síðuhafa sjálfs, er ályktun Freyju Dísar Númadóttur ekki síður:: afar tímabær, sem gagnleg , í allan máta, gott fólk.

Með beztu kveðjum af Suðurlandi - sem endranær /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.9.2015 kl. 17:14

13 identicon

Góður og þarfur pistill hjá þér Valdimar. sönnun alls þessa kom fram í sjónvarpsfréttum vinstri stofnunarinnar í kvöld þar sem ungir menn ruddust yfir Ungverjaland, dulbúinn innrásarher. Svo segir þessi þýski Junkers held ég að hann heiti, að við eigum ekki að skoða hverar trúar fólkið er. Hann veit að hann verður löngu dauður áður en hann sér áhrif ummæla sinna, þegar Vestur Evópa verður orðið múslamskt ríki.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 9.9.2015 kl. 19:40

14 identicon

Mér þykir það æ átakanlegra hversu mikið þessi umræða um flóttafólk einkennist af skotgrafarhernaði.  Í annarri skotgröfinni hafast þeir við sem vilja að Íslenzkt samfélag geri allt sem í okkar valdi stendur til þess að aðstoða flóttafólk og í hinni skotgröfinni hafast við þeir við sem sjá ekki fram fyrir nefið á sér fyrir múslima-fóbíu.  

Þessi múslima-fóbía er meira og minna byggð á einfeldningshætti, þröngsýni og heilaþvotti fjölmiðla sem hafa dregið upp þessa mynd af múslimum á undanförnum árum. Og fyrst þú nefnir blóði drifna sögu íslam á síðustu öldum þá skulum við bara halda því til haga að í pissukeppninni um voða- og grimmdarverk á undanförnum öldum hafa hvítir "sannkristnir" menn sannarlega vinninginn. 

Ég skil vel hræðslu við öfgasinna en það að dæma alla múslima út frá hlutfallslega litlum hópi öfgasinna er jafn einfeldningslegt og það væri að dæma alla Mexíkóa út frá eiturlyfjabarónunum sem eru að fremja voðaverk sem eru engu skárri en það sem ISIS liðar stæra sig af, nú eða dæma alla Norðmenn út frá gerðum Anders Breivik?

Munurinn á islömskum öfgasinnum, á borð við ISIS, og öðrum öfgasinnum er kannski einkum sá að þeim hefur tekist betur að markaðssetja voðaverk sín og hinum tekist betur að fela þau... og það stýrir kannski meira en nokkuð annað fordómum og hræðlu í garð múslima.

Það væri óskandi að þið mynduð skoða málefni flóttamanna út frá aðeins fleiri hliðum en þeim sem stjórnast af fordómum og hræðslu... og þetta varðandi flóttamenn sem sjást með farsíma þá má ég til með að benda á eftirfarandi grein sem ber yfirskriftina "Surprised that Syrian refugees have smartphones? Sorry to break this to you, but you're an idiot"... það er litlu við þá fyrirsögn að bæta.

Góðar stundir...

http://www.independent.co.uk/voices/comment/surprised-that-syrian-refugees-have-smartphones-well-sorry-to-break-this-to-you-but-youre-an-idiot-10489719.html

Jón Ingi Þorvaldsson (IP-tala skráð) 9.9.2015 kl. 22:05

15 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jón Ingi

þó að ég hafi hleypt athugasemd þinni að í þetta skipti jafngildir það ekki því að ég nenni að eyða tíma í að rökræða við þig. Mér finnst skrif þin dæma sig ágætlega sjálf án minnar hjálpar. Ég hef heyrt þetta allt svo oft áður og svarað því svo oft. Ég sé á skrifum þinum að þú ert einn af þessum rökheldu og gerir ekki mun á dómum og fordómum. Dómar byggja á þekkingu, fordómar á vanþekkingu. Ég þarf ekki að spyrja þig hvar ég er í því samhengi og hvar þú !!! Ég ætla því bara að nota orð þín sjálfs:Sorry to break this to you, but you're an idiot".

Valdimar H Jóhannesson, 9.9.2015 kl. 22:25

16 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Húsari

sem er orð yfir léttvopnaðan riddara,krefur mig um reiknisskil. Meðan hann kemur ekki fram undir eigin nafni verður honum ekki svarað né neinum nema þegar ég tel ávinning fyrir málefnið að birta athugasemd frá nafnlausum. Þeir sem koma fram undir nafni og halda sig frá skítkasti og persónulelgum dylgjum fá hins vegar birtingu jafnvel þó að skoðanir þeirra séu víðsfjarri mínum eða byggist á vanþekkingu og misskilningi.

Hér er hinsvegar ekki vettvangur fyrir langar rökræður. Ég er ekki fús til þess að rökræða í það endalausa við þráhyggjumenn. Þeir hafa tækifæri til þess að láta gamminn geysa á vettvangi sem þeir skapa sjálfir.

Valdimar H Jóhannesson, 10.9.2015 kl. 13:00

17 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þeir sem trúa því að hver einasta sál í þessum fólksfjölda, sem nú streymir inn î Evrópu, sé góð og muni launa greiðan um landvist og öruggt húsaskjól með góðu einu, eru ekki einungis illa að sér, heldur beinlínis fáfróðir eða staurblindir á stöðu mála. 

Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 11.9.2015 kl. 00:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 192246

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband