Leita í fréttum mbl.is

RÚV í vörnina fyrir EU að vanda

Það er orðið verulega hallærislegt hvað unnt er orðið að treysta því að RÚV hallar ævinlega réttu máli í öllu hvað varðar óheppilegar fréttir fyrir Evrópusambandið. Þó að það virðist varla geta staðist læðist sá grunur sterklega að mér að starfsmenn fréttastofu RÚV séu að gæta persónulegra hagsmuna þegar Evrópusambandið er annars vegar. Spurningin er þessi: Hvort á RÚV að þjóna hagsmunum íslensks almennings með réttum fréttum eða hagsmunum stjórnmálaflokka sem hafa það á stefnuskrá sinni að koma Íslandi inn í Evrópusambandið?

Síðasta dæmið um fráleitan fréttaflutning RÚV eru fréttir um þjóðaratkvæðagreiðsluna í Ungverjalandi þar sem þjóðin var spurð hvort hún vildi una tilskipun Evrópusambandsins um að taka við ákveðnum kvóta á flóttmönnum. Í nokkrum fréttatímum, sem ég heyrði í dag, var hamrað á því að þjóðaratkvæðagreiðslan væri ógild vegna þess að kjörsókn var innan 50% marksins og úrkoman því ekki bindandi. Í engu var getið að hvorki meira né minna en 98% gildra atkvæða höfnuðu því að Ungverjaland tæki við ákveðnum kvóta flóttamanna að tilskipan Evrópusambandsins. Aðeins 2% þeirra sem skiluðu gildum atkvæðum féllust á að Ungverjum bæri að fara að tilskipun Evrópusambandsins. Þó að fylgjendur tilskipunar EU hefðu að einhverju leyti kosið að sitja heima er einnig ljóst að þeir gerða það vegna þess að niðurstaða í þessum anda lá alveg ljós fyrir þó að þeir hefðu allir mætt á kjörstað. Einnig má að líkum ráða, að margir þessara fylgjenda byggðu afstöðu sína á ótta við að stuða ráðamenn í Brussel og gætu stjórnvöld í Budapest haft verra af. Það er ekki svo langt um liðið síðan Ungverjar höfðu ástæðu til að óttast miðstýrt ofurþjóðlegt vald, sem þá var í Moskvu en nú er í Brussel.

Þó að andstæðingar Viktors Orban, m.a. á fréttastofu RÚV, telji þessa niðurstöðu ekki bindandi fyrir stjórnvöld í Budapest má benda á það að lægra hlutfall kjósandi greiddi atkvæði á sínum tíma um hvort Ungverjaland ætti að gerast aðilar að Evrópusambandinu. Það var ekki aðal frétt RÚV þá að Ungverjar hefðu fellt tillögu um að gerast aðili að sambandinu með því að ná ekki tilskyldu 50% marki svo að þjóðaratkvæðagreiðslan væri bindandi.

Þessi einróma þjóðaratkvæðagreiðsla er áfall fyrir Evrópusambandið m.a. vegna þess að hún vinnur gegn slökum vinnubrögðum sambandsins í flóttamannamálum álfunnar. Þessi niðurstaða mun án nokkurs efa kveikja elda út um alla Evrópu hvort sem RÚV líkar það betur eða ver. Almenningur í öllum Evrópulöndum er að vakna upp við þann vonda draum að mennirnir í fílabeinsturninum í Brussel hefur svikið það í þessu örlagaríka máli. Almenningur mun í vaxandi mæli kjósa þá flokka sem hafa á stefnuskrá sinni að koma á landamæravörslu, stöðva glórulausan innflutning á fólki sem vill ekki eða getur ekki aðlagast og vilja fara út úr sambandinu sem líkist í sífellu meira Sovétríkjunum sálugu enda með sömu tengund af innviðum í meira eða minna mæli.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Man ekki betur en fréttastofa RÚV fjallaði iðulega um atkvæðagreiðsluna um nokkur álitamál vegna hugsanlegra stjórarskrárbreytinga og talið þar um merka niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu að ræða þó að einungis þriðjungur íslenskra kjósenda kysu í þeim kosningum.

Svo er nú annað að Fréttastofa RÚV kannar ekkert hvað margir kjósa að jafnaði í hlutfallslega í Ungverjalandi. Til samanburðar má benda á að iðulega kjósa færri en 50% kjósenda í forsetakosningum í Bandaríkjunum og engin véfengir þær niðurstöður.

Vandamál Fréttastofu RÚV er fyrst og fremst hvað hún er léleg í öðru lagi hvað hún er pólitísk blinduð í ákveðnum málum og í þriðja lagi stórbrenglað fréttamat sem flestir sjá sem hlusta þó ekki sé nema á tvo til þrjá fréttatíma. Þess vegna er áhorf líka minnkandi á RÚV fréttir.

Jón Magnússon, 3.10.2016 kl. 23:07

2 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jón

þó að það sé vaxandi fjöldi manna sem afla sér frétta á erlendum netmiðlum eru það langt frá því meirihlutinn. Flestir byggja á því sem fram kemur í ljósvakamiðlunum og Fréttablaðinu sem er með sama markinu brennt að sía allar fréttir í gegnum sömu síuna og fréttamenn RÚV. Fréttamenn á Íslandi í dag eru því miður afar illa upplýstir og hafa misst sjónir á því hlutverki þeirra að leggja fyrir staðreyndir og leyfa síðan þeim sem njóta þjónustunnar að myndá sér sjálfir skoðanir. 'i þá daga þegar ég var blaðamaður taldi maður ósmæmilegt að setja eigin skoðanir inn í fréttir. Það var til marks um lélega blaðamennsku. Skoðanir áttu heima í leiðurum og skoðanagreinum undir nafni höflundur.

Valdimar H Jóhannesson, 4.10.2016 kl. 00:02

3 identicon

Kostningaþáttaka var 40,41% Sjá: http://valasztas.hu/en/ref2016/481/481_0_index.html

Til samanburðar, þingkosningar 2014 http://valasztas.hu//en/ogyv2014/415/415_0_index.html Kostningaþáttaka: 61,73%

Kosningarnar núna sýna aðallega hversu heimskulegt er að hafa lágmarksþátttöku í kostningum. Þá geta menn kosið með því að mæta ekki á kjörstað. Einnig hlýtur það að vera áfall fyrir Fidesz, sem hefur um 67% fylgi á þingi, að fá ekki fleiri atkvæði.

Jónas Kr. (IP-tala skráð) 4.10.2016 kl. 11:58

4 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jónas

það er reglan í öllum kosningum sem varða Evrópusambandið að þátttakan er mjög dræm og lýsir auðvitað viðhorfi kjósenda að þeir ráði í raun engu um hvernig mál fara hjá EU enda lýðræðið þar aðeins upp á punt.Glöggir menn ( þ.e. ekki samfó-istar) hafa marg bent á þennan vanda EU enda sé uppbygging þess ótrúlega lík sýsteminu hjá Sovétríkjunum sem engum heilvita manni datt til hugar að líkja við lýðræði af neinu tagi nema auðvitað þeim sem voru í Alþýðubandalaginu og svo einhverjum sem voru í öðrum vinstri flokkum. Nú virðist þessi blinda ráða ríkjum í meirihluta íslenskra stjórnmálaflokka og meira að segja þeim sem þykjast vera hægra meginn eins og Viðreisn þykist vera. 

Valdimar H Jóhannesson, 4.10.2016 kl. 14:26

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég held að við verðum að fá þjóðar kosningar hvort fólk vilji RÚV allmennt en eins og mál standa þá klemmst engin nálægt þeim. Ég er búinn að reyna í um tvö ár að fá starfsmanna símaskrá og mér var sagt fyrst að hún væri í vinnslu og ætti að koma fyrir þessi áramót. Þegar ég athugaði það fyrir stuttu þá var mér tilkynnt að það væri hætt við málið. Sér fólk ekki að þeir vilja ekki að almenningur sé með nefið ofan í þeirra málum   

Valdimar Samúelsson, 4.10.2016 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 192247

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband