Leita í fréttum mbl.is

Varnaðarorð til Íslendinga

Eftirfarandi grein eftir Christine Douglass-Williams birtist í Morgunblaðinu í dag. Christine ritar fyrir Jihad Watch, er handhafi verðlauna fyrir útvarpsþætti, m.a. alþjóðlegra, tilnefnd af Kanadastjórn í Trúfrelsisstofu (Office of Religious Freedoms) og höfundur The Challenge of Modernizing Islam. Fyrir neðan greinina á íslensku er greinin birt á ensku eins og hún kom úr penna Christine:

Góðir Íslendingar.

Þið eruð í vanda. Þið eruð of fá í stóru landi til að hafa það opið, eins og hingað til, fyrir islamskri yfirburðahyggju. Góðvild ykkar við að taka á móti innflytjendum blekkir ykkur, en þið verðið að átta ykkur á hvernig veröldin er. Talsmenn islamskrar yfirburðahyggju munu vera ykkur stimamjúkir og láta sem þeir unni ykkur, en þeir blekkja, til þess að ná ykkur á sitt vald. Þeir leitast vísvitandi við að vekja hjá ykkur sektarkennd þegar þið dragið í efa réttmæti illvirkja í nafni trúar þeirra víða um heim, í stað þess að bæta fyrir þau og horfast í augu við nútímann.

Íslendingar, þið hafið eins og aðrir vesturlandabúar hneigst til að bjóða minnihlutahópa velkomna og hafið komið á stjórnskipun þar sem lýst er yfir jafnrétti allra fyrir lögum. Ég er að uppruna jafnt skoti, þeldökk, kínversk og indversk, en eini kuldinn sem ég fann fyrir á Íslandi var af gnauði vindsins.

Þið hafið nú þegar mosku í smáríki ykkar, sem kostuð er af Sádí-Arabíu, land sem styður wahabisma – villimannlegt hugmyndakerfi sem tekur undir karllæga, múslimska yfirburðahyggju og mannrétindabrot samkvæmt sharialögum. Til stendur að byggja aðra mosku í höfðuðstað ykkar, Reykjavík. Ykkur er sagt að sharia sé skaðlaus, en sharia er guðræðis lagakerfi sem meðal annarrar óhæfu kveður á um að fólk sem gengur af trúnni, samkynhneigðir og guðlastarar skuli liflátnir, að konur séu körlum óæðri, og að konur skuli hylja sig að fullu samkvæmt Kóraninum (24:31 og 33:59). Islamismi er forskrift fyrir islam í heild. Engin lög eru æðri islömskum lögum. Samkvæmt þeim eru landvinningar skylda og krafa.

Allt frá falli Ósmannaveldisins hafa leiðtogar islams leitast við að endurheimta fyrri dýrðardaga, islamskt yfirráð og drottnunarvald.

En hvað getið þið þá gert? Til að byrja með, þá getið þið hafnað tilhæfulausum ásökunum um „islamsfóbíu“. Aðrir minnihlutahópar hafa ekki uppi ásakanir gegn ykkur, nema þeir séu gegnsýrðir af islömskum áróðri. Enginn annar hópur leitast við að brjóta aðra undir sig eða gerir sig sekan um grimmileg mannréttindabrot um heim allan, og hrópar um leið að hann sé fórnarlamb „nýlendustefnu“ og „heimsvaldastefnu“. Þið og aðrar vestrænar þjóðir verðið að rísa upp og verja stjórnskipun ykkar. Frelsisréttindi voru goldin dýru verði.

Þegar þið heimilið múslimum að taka þátt í umræðufundum, gangið fyrst úr skugga um að þeir séu múslimar af því tagi sem taka vel spurningum, fjölhyggju og fjölbreytni, og sem skilja að braut fjölmenningar liggur í báðar áttir. Þeir verða að hafna sharialögum í öllum þeirra myndum.

Á öllum tímum voru múslimar sem vildu lifa í samræmi við sinn eigin tíma, en voru myrtir fyrir að ganga af trúnni. Þeir skildu að vefengja varð óumbreytileika kennisetninganna og þrúgun hinna afluktu opinberu sjónarmiða, jafnt sem ulema (ráðandi öfl innan íslam) og alla stríðsmenn islamsks einræðis.

Stjórnmálamenn ykkar og fjölmiðlar búa við ótta. Margir hafa ásakað Robert Spencer, saklausan mann, um hatur, og byggja á orðum og gerðum illmennisins Anders Breivik. Hvers konar undarlegt hugarfar hefur sá sem einfaldlega fylgir orðum nýnasitísks morðingja að óathuguðu máli?

Íslendingar, farið varlega. Ráðskast er með ykkur. Berjist fyrir frelsi ykkar, takið vel þeim sem bjóða börnum ykkar farsæla framtíð og leyfið ekki islamskri yfirburðahyggju, ágjörnum stjórnmálamönnum og stýrðum fjölmiðlum að eyðileggja verk forfeðra ykkar og það góða sem þau hafa leitt til. Í djúpi hugans kann að búa nagandi ótti um að þú gætir sjálf(ur) verið dag nokkurn í sporum nefnds Roberts Spencer, sem eitrað hefur verið fyrir og gerður djöfli líkastur, ef ekki eitthvað þaðan af verra. Því meiri áhrifum sem óvinir frelsis og lýðræðis ná, því meiri hætta steðjar að saklausu fólki. Konur og stúlkur um alla Evrópu hafa sætt nauðgunum vegna þeirra kennisetninga, að múslimskir menn geti nýtt sér trúlausar konur að vild. Fólk sem ekki er Múhameðstrúar hefur verið rænt og það barið, og árásir jihadista hafa skilið eftir sig slóð limlestinga og sorga. Án andspyrnu munu islamistar vega að þér, sama hve þeir brosa til þín nú. Verið á verði. Veitið athygli því sem predikað er í moskunum, því oft eru jihad, hatur og meintir yfirburðir islams þar vegsömuð. Enginn vinsamlegur múslimi mun nokkru sinni ásaka þig um íslamofóbíu, vegna þess að þeir vita að þeirri ásökun er ætlað a að hefta málfrelsi þitt og rétt þinn til að vefengja islam. Íslendingar, það er bráðnauðsynlegt að velja sér vini af kostgæfni, rétt eins og vinsemd er mikilvæg.

­­­­­­­­­­­­­_________________________________________________________________________

A warning note to Icelanders

By Christine Douglass-Williams

 

Dear Islanders:

You are in trouble. Your numbers are too small in a vast land to continue as you are, in allowing Islamic supremacist incursion into your country. You are being taken in by your kind acceptance of immigrants but you need street-smarts. Islamic supremacists will embrace and pretend to love you but they are deceiving you, to overtake you. They intentionally make you feel guilty for questioning their global abuses in the name of their religion rather than make efforts to amend abuses and modernize.

Icelanders, you have evolved as other Westerners to welcome minorities and have erected a constitution that declares equality of everyone under the law. I am an equal mix of Scottish, black, Chinese and Indian and experienced no chill in Iceland other than the blustering winds.

You already have a mosque in your tiny country that is funded by Saudi Arabia which advocates Wahhabism—a barbaric ideology which sanctions male Muslim supremacy and human rights abuses under the Sharia. Another such mosque is planned in your capital, Reykjavik. They tell you that Sharia is harmless but Sharia is divine law that stipulates –among other abuses -- death for apostasy, for gays, blasphemy, a lower value to women, full covering of women according to Quran 24:31 and Quran 33:59. Islamism is normative Islam and there is no higher law than Islamic law. Under it, conquest is a duty and requirement.

Since the fall of the Ottoman Empire, Islamist leaders have sought to recapture their glory days, Islamic bravado and supremacy.

So what can you do? For starters, you can reject the ‘islamophobia’ lies against you. You are not an ‘islamophobic’ nation. Other minority groups are not accusing you, unless they are indoctrinated with Islamist propaganda. No other group seeks conquest or is guilty of ubiquitous wanton human rights abuses globally, while at the same time, screaming that they are victimized by “the colonialists” and “the imperialists.” You and other Western nations must stand up and defend your constitution. Freedoms were bought at a high price.

When you include Muslims in dialogue sessions, make sure that they the kind of Muslims who welcome questions, pluralism, diversity and understand that multiculturalism is a two-way street. They must reject Sharia law in all forms.

There are Muslims throughout history who sought modernity, but were murdered as apostates; they understand that the immutability of the decree and the “official closed corpus” needed to be challenged; as well as the ulema and every soldier of Islamic dictatorship.

Your politicians and media are afraid. Many accused Robert Spencer – an innocent man -- of hate, based on the actions and word of one evil man named Anders Breivik. What kind of embarrassing mentality simply follows a murderous neo-Nazi without investigation?

Be careful Icelanders. You are being manipulated. Fight for your freedoms, be accepting to those who offer your children a good future and do not allow Islamic supremacists, greedy politicians and a controlled media to destroy the work of your ancestors and fine evolution. Deep within you may be a nagging fear that the man (Robert Spencer) poisoned and demonized could be you and indeed it could be one day, and worse. The more enemies of freedom and democracy gain ground, the more danger innocents are in. Women and girls have been raped across Europe because of a doctrine that states that Muslim men can take infidel women. Infidels have been plundered, beaten and jihadist attacks have left a trail of carnage and grief. Without a fight, Islamists are coming for you, no matter how much they smile at you. Stand watch, pay attention to what is being preached in mosques because oftentimes jihad, hate and supremacy are being preached. No friendly Muslim will ever throw ‘islamophobia’ accusations against you because they know it is a manipulative word crafted against you to shut down your freedom of speech and your right to question Islam. Icelanders, it is imperative to choose your friends wisely, just as it is important to be friendly.

Christine is a writer for Jihad Watch, an international award-winning broadcast journalist, author of The Challenge of Modernizing Islam, Canadian Federal appointee and past advisor to the Office of Religious Freedoms.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þessi grein ætti að setja í öll blöð á landinu og senda til nágrannalanda okkar í Vestri og austri en þeir munu líklega aldrei verða það heppnir að fá að hlusta á Robert og Kristínu. Við verðum að deila þessu á fullu á alla miðla og það í hvelli. Menn í þessum trúarflokk ef þeir móðgast og komast í ham þá er ekkert sem stoppar þá að drepa. Líka ef þeir hafa slæma trúar samvisku þá fá þeir fyrirgefningu með því að drepa sem flesta. Fólk trúir þessu ekki en þetta eru staðreyndir sem sjást um allan heim. 

Valdimar Samúelsson, 23.5.2017 kl. 21:25

2 identicon

Sæll Valdimar jafnan - sem og aðrir gestir, þínir !

Ykkur báða nafnar: met ég ekki síður mikils / sem ykkar varðstöðu, líkt og hinnar ágætu Kanadísku Christíne Williams, ekki hvað sízt.

Las grein hennar í dag - í blaðútgáfu Mbl., og þar fer grandvör og heiðarleg kona vel með sína málafylgju, sem og þau Robert Spencer: bæði.

Með beztu kveðjum: sem endranær - af Suðurlandi /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 23.5.2017 kl. 23:29

3 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll nafni

já margt er svo fjarri okkar hugsanahætti í þessum menningarheimi eins og við þekkjum báðir að venjulegt siðprútt og gott fólk getur ekki samsamað það við eigin hugarheim og telur allar staðreyndir um íslamska heiminn vegar lygar.  Þetta er auðvitað skiljanlegt en skaðlegt.

Valdimar H Jóhannesson, 23.5.2017 kl. 23:45

4 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Sæll Óskar

þakka þér fyrir samstöðuna eins og fyrr. Gott að eiga góða að.

Valdimar H Jóhannesson, 23.5.2017 kl. 23:47

5 identicon

Ég er sammæala Valdimar með þessu. "Þessi grein ætti að setja í öll blöð á landinu og senda til nágrannalanda okkar í Vestri og austri"

Merry (IP-tala skráð) 24.5.2017 kl. 00:07

6 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Valdimar.

Takk fyrir góðan og þarfan pistil að venju.

Því miður, fyrir Íslenska þjóð, þá hefur aldrei

verið á hinu (háttvirta, sem var og áður hét) þingi

setið eins gagnlaust fólk og hugleysur, hugsjónalaust,

og þrotið dirfsku til að standa við hinn svokallaða

þingmannaeið, sem felur í sér, Íslandi allt.

Þessar druslur sem þar sitja, halda að, að með því

að þegja, ekki andmæla, eða agnúast út í eitthvað sem

kemur að ISLAM, þá sleppi þau við það að vera kölluð

rasistar, nazistar, fasistar, islamafóbistar, aumingjar,

drullusokkar, hálfvitar og ég held ég gleumi engvu.

Aðal málið er að ná aftur kjöri, og það í nafni

aumingjaskapar.

Á meðan svo er Valdimar, þá er okkar menningu og hefðum

fórnað fyrir aumingja atkvæði.

Flest okkar, sem vilja vita, vita fyrir hvað ISLAM stendur.

Ein trú, eitt alheims ISLAM.

Allt annað skiptir ekki máli og þá má gera hverjar

þær fórnir til að koma ISLAM til valda.

Börnin sem létu lífið í gær, er enn eitt dæmið

sem má gera í nafni ISLAMS.

Er þetta það sem við viljum og bíðum eftir

að gerist á Íslandi....????

Hvað er af því að vilja vernda íslenskar hefðir og venjur...???

Hvað er af því að vilja halda í það sem Íslenskt er...??

Hvað er af því að vera þjóðerniskenndur...???

Þetta hefur ekkert að gera með hatur á öðrum

trúarafbrigðum.

Heldur hefur þetta með það að gera, að þeir sem hér koma,

virði okkar hefðir og venjur og ætlist ekki til þess að við

aðlögumst þeim og þeirra venjum

Ef það er ekki hægt, þá á þetta fólk ekki hér heima.

Svo einfallt er það.

M.b.kv.

Sigurður Kristján Hjaltested, 24.5.2017 kl. 00:48

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég mæli með að allir hér deili þessu frá Valdimari H Jóhannessyni á Face Book og sjálfsgt hann sjálfur.  

Valdimar Samúelsson, 24.5.2017 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 192239

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband