Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2016

Dómgreindarleysi og staðreyndabull

Umræðurnar í þætti Gísla Marteins nú á laugardagskvöld voru vægast dapurlegar og vandséð hvernig Gísli Marteinn kæmist neðar en þetta og hefur hann samt átt góða spretti í þá áttina áður. Ekki einasta markaðist umræðan af ótrúlegu dómsgreinarleysi og staðreyndabulli heldur komst hún á sóðalegra "kúk og piss stig" en hefði verið talið hæfa í búningsklefaspjalli smástráka. Á þjóðin þetta virkilega skilið? Er ekki komið mikla meira en nóg af Gísla Marteini?

Hann var venju fremur fundvís á óskemmtilegt fólk í þáttinn. Þáttur Atla Fannars var eins konar Íslandsmet í smekkleysi og ósannindum. Fráleitt er að jafnvel forstokkuðum dómgreindarleysingum gæti fundist hann skemmtilegur. Ummæli borgarstjórans, skurðlæknisins og leikkonunnar voru meira eða minna byggð á vanþekkingu og fordómum í garð stuðningsmanna Trump og þeim eignuð óspektir sem öllum ættu samt að vera ljóst að andstæðingar Trump standa fyrir.

Fullyrðingar um að einhverjir stuðningsmanna Trump hafi gengið í skrokk á einstaklingum innan minnihlutahópa kunna að eiga við einhver rök að styðjast og þá verður einnig að minnast á þá kjósendur Trumps sem hafa fengið að kenna á afstöðu sinni með barsmíðum. Allir sanngjarnir menn hljóta að fordæma alla þá sem láta hendur skipta í pólitískum átökum en ekki bara ímyndaða andstæðinga.

Einnig er afar ósmekklegt að ætla stuðningsmönnum Trump eitthvað lægti hvatir en stuðningsmönnum Hillary. Staðreyndin er sú að Trump sótti stuðning sinn fyrst og fremst til þeirra fátæku og forsmáðu í bandarísku samfélagi, - til fólks sem hefur orðið fyrir barðinu á flótta atvinnufyrirtækja úr landinu vegna alþjóðavæðingar. Einhvern tímann hefðu vinstra sinnað fólk talið sér skylt að standa með fátæku alþýðufólki en ekki forréttindastéttunum eins og er þeim nú orðið efst í huga. Þarf einhvern að undra að Samfylkingin hefur nánast þurrkast út með talsmenn eins og Dag Eggertsson, borgarstjóra.

Fullyrðingar þess efnis að Trump vilji reka alla innflytjendur úr landi eru ósannindi sem þremnningunum munaði ekkert um að slá fram. Þá eru alveg furðuleg vandlæting á þeirri stefnu Trump að vilja efla landamæragæslu við landamæri Mexico þar sem ólöglegir innflytjendur og eiturlyf með harðsvíraðri glæpastarfsemi streymir nánast óhindrað inn. Enginn heilvita Íslendingur myndi sætta sig við slíkt ástand hérlendis?

Almennt var ömurlegt að heyra vandlætingu um niðurstöðu kosninga sem fóru eðilega fram og með meiri þátttöku en venja er. RÚV verður að taka sig taki ef raddir um að leggja beri það niður eiga ekki að verða háværar og ágengar. Það er ekki verið að þjóna eðlilegum kröfum landsmanna um gæði eins og starfsemi RÚV er háttað núna með einhliða stöðugum áróðri á hagsmunum takmarkaðs hóps landsmanna.

 

 


Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 192249

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband