Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2021

Viljum við vera tilraunadýr?

Nú virðist stefna í að megnið af þjóðinni verði gefið lyf, sem hefur verið kallað bóluefni án þess að vera það í venjulegum skilningi þess orðs. Þetta stungulyf til að vinna á  núverandi kórónuveiru er alls óskylt þeim bóluefnum sem við þekkjum til. Hér er á ferðinni lyf sem er inniheldur svokallaðar RNA kjarnasýrur sem vinna með erfðaefninu, DNA, í frumum líkamans og gæti leitt til breytinga á erfðaefni viðkomandi einstaklings að því að nokkrir læknar og vísindamenn hafa varað við. Þetta yrðu óafturkræfar breytingar og öldungis óvíst hvað þessar breytingar gætu haft í för með sér. Mörg ár gætu liðið áður en afleiðingarnar væru að fullu komnar fram enda verið að fikta við mjög flókna lífræðilega uppbyggingu vefja líkamans, sem er langt frá því að vera skilin til fulls.

Kannski eru hér á ferinni stórkostlegar nýjungar til góðs í sókn mannkyns gegn veirusjúkdómum. Þær gætu kollvarpað stöðu mannkyns gegn ýmsum leiðum pestum sem hafa fylgt mannkyni frá upphafi, jafnt svokölluðum drepsóttum og minni háttar kvefpestum eins og eru á ferðinni á hverju ári. Núverandi covid-19 pest mun vera skæð kvefpest en kórónaveiran er á ferðinni í nýjum útgáfum á hverju ári að því er skilja má.

Þetta nýja lyf er þó alls óreynt miðað við þær kröfur sem ætti að gera til slík byltingarlyfs en þróunartími lyfja er almennt talinn þurfa að vera hátt í áratugur. Nú þykir liggja svo mikið við að víkja á allri varúð til hliðar eftir að töluverður fjöldi hugrakkra manna hafa látið sig hafa það að vera tilraunadýr fyrir þessi nýju lyf. Vonandi verður þeim ekki of mörgum meint að þessari fórnfýsi en ljóst er að alltaf verða einhver afföll við lyfjagjafir, en afleiðingarnar koma kannski ekki fram að fullu fyrr en eftir nokkur ár. Þess vegna þarf að miða þróunartíma lyfja við það.

Ég hef sjálfur hlustað á fjóra erlenda lækna og vísindamenn sem nota afar sterk orð til þess að lýsa þeim hættum sem gætu verið hér á ferðinni. Þessir menn eru Sucharid Bhakdi og Wolfgang Wodarg í Þýskalandi, Wakefield frá Bretlandi og Søren Ventegodt í Danmörku. Það sem er nú sameiginlegt með öllum þessum mönnum er að þeir hafa fengið að kenna á því að halda uppi gagnrýni enda eru þeir að ganga gegn afar sterkum hagsmunaaðilum, sem eru lyfjarisarnir og kannski ekki síður gegn stjórnmálamönnum sem standa illa í lappirnar þegar mikið er í húfi.

Þessir menn nutu misjafnlega mikillar virðingar áður en þeir stigu núna fram en óhætt er að fullyrða að báðir þjóðverjarnir voru í fremstu sveit áður en þeir fóru í núverandi andstöðu, - sérstaklega Sucharid, sem segir að covid-19 sé að vísu slæmt kvef með hærri dánartíðni en oft er. Dánartíðnin hjá frísku fólki sé þó ekki meiri en 0.02% sem jafngildir að einn af hverjum 5.000, sem sýkist, deyi. Annað gildir með dauðveikt fólk. Hjá því geti sýking flýtt fyrir dauðanum eins og við höfum séð hér á landi. Afleiðingarnar af því að gefa stærsta hlut heilla þjóða þessi erfðabreytandi lyf gætu orðið margfalt verri. Honum er töluvert niðri fyrir.

Wakefield hafði áður unnið sér það til óhelgis að tala gegn bólusentingum sem gékk svo langt að hann missti læknisleyfi sitt á Bretlandi og fluttist il Bandaríkjanna. Daninn hafði komist upp á kant við samfélagið af alls óskyldum ástæðum. Þessir menn lærðu ekki af Galileo Galilei sem fyrir fjórum öldum afneitandi obinberlega villikenningu sinni um að jörðin snerist um sjálfa sig en ekki alheimurinn um hana. Galileo hafði vit á því að segja í hálfum hljóðum: Hún snýst nú samt. Þessir menn koma fram fyrir alheiminn til þess að vara hann við af fullum rómi þó að þeir viti að þeir sem tala gegn valdinu hafa nær altaf verra af.

Hvað gæti svo sem gerst hafa þessir menn verið spurðir?  Hvað gæti ekki gerst? spyrja þeir á móti. Þeir hafa nefnt að þetta gæti leitt til sjálfsónæmi þar sem drápssellurnar, hvítu blóðkornin, ráðast á eigin vefi vegna útlitsbreytinga á frumum líkamans sem þessar RNA kjarnasýrur myndu valda í samstarfi við DNA kjarnasýrur frumanna. Þá nefna þeir ófrjósemi hjá konum en allt milli himins og jarðar gæti orðið þegar nákvæmu jafnvægi í líkamansfrumunum er raskað með þessum hætti. 

Nú er spurningin þessi: Eru til einhverjir þeir menn á Íslandi sem geta látið heyra í sér á grundvelli mikillar þekkingar  á þessu sviði og stoppað það að Íslendingar verði gerðir að jafngildi tilraunamúsa í risastórri tilraun lyfjarisa með þetta lyf? Hann ætti það á hættu að verða úthrópaður sem þjóðníðingur að vara við þeirri rússnesku rúllettu sem Þórólfur og Kári eru að fara í með íslensku þjóðina. „Æ hver skrambinn“ myndu þeir og lyfjarisarnir segja.  Framfarir verða ekki án einhverra fórna!

Ath

þessi bloggfærsla var birt sem grein í Mbl í dag


Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband