8.11.2010 | 17:39
Nauðsynlegt að takmarka valdið
Eitt af veigamestu atriðum sem hafa verður í huga við samningu nýrrar stjórnarskrár er takmörkun valdsins. Öllum sem öðlast mikil völd hættir til að misnota þau. Fræg er setningin: Til hvers er að hafa völd ef maður ætlar ekki að misnota þau?
Allir þekkja misnotkun valdsins á Íslandi. Stjórnmálaflokkarnir hafa verið helstu valdastofnanir landsins og sterkir stjórnmálamenn hafa næstum fengið alræðisvald í gegnum meirihluta stöðu á alþingi og þar af leiðandi getað ráðið yfir ríkisstjórninni einnig. Framkvæmdavaldið og löggjafavaldið hefur því oftast verið í vasanum á 2-3 mönnum hvað sem öllum þingræðishugmyndum líður. Almennir þingmenn sitja gjarnan og standa eins og flokksforingjarnir ákveða enda eins gott að vera ekki með eitthvert múður og komast í ónáð. Vinur minn sem sat á þingi og lét einnig mikið að sér kveða í háskólasamfélaginu sagði mér að þingmennskan væri eitt leiðinlegasta starf sem hann hefði stundað. Dagar og vikur hefðu farið í það að bíða eftir því að ákvarðanir væru teknar af hagsmunaaðilum úti í bæ.
Í þokkabót hafa stjórnmálaflokkarnir misneytt aðstöðu sína til að velja menn til dómsstóla landsins úr sínum röðum og er það auðvitað alltaf bagalegt en sérlega alvarlegt þegar Hæstiréttur á í hlut. Hæstiréttur þarf að vera hafinn yfir allan grun um hlutdrægni. Hæstiréttur skilgreinir réttarreglur landsins og er síðasta vörn borgaranna gagn rangsleitni af ýmsu tagi.
Í raun er það sérhagsmunasamtökin sem hafa ráðið allt of miklu í stjórnsýslu landsins og á alþingi. Hrunskýrslur hafa flett ofan af því sem raunar allir vissu áður að stjórnmálalífið hefur verið meira eða minna í vasanum á peningaöflunum. Alþingi hefur ekki skirrst við að brjóta stjórnarskránna til þess að þjóna þessum öflum. Gjafakvótakerfið er eitt gleggst dæmið um slíkt.
Nú er búið að stafa tvisvar sinnum fyrir Alþingi að gjafakvótakerfið stríðir gegn stjórnarskránni. Fyrst með dómi í máli mínu 1998, svokölluðum Valdimarsdómi og síðan aftur með úrskurði mannréttindanefndar SÞ. Þessar tveir mjög svo afgerandi dómar hafa ekki hreyft svo við Alþingi að kvótakerfinu hafi verið breytt. Enda stafar valdið í raun frá sérhagsmunaöflunum en ekki frá þjóðinni eins og ætti að vera.
Við þekkjum mörg svona dæmi. Gagnagrunnsfrumvarpið var eitt. Það var samið af hagsmunaaðila utan þingsins og sent þinginu til samþykkt og stimplunar þó að það stríddi m.a. gegn mannréttindaákvæðum í íslenskum lögum, lögum um sjúkling og alþjóðlegum skuldbindingum. Við þekkjum eftirlaunalög sérgæðinga stjórnmálaflokkanna og margt, margt fleira af sama taginu.
Ein helsta hugsun þeirra afburðarmanna sem sömdu stjórnarská Bandaríkjanna var einmitt þessi: Hvernig er unnt að tryggja takmörkun valdsins? Nú er liðið á þriðju öld síðan hún var samin og getur hún því skiljanlega ekki verið algjör fyrirmynd okkar við gerð nýrrar stjórnarskrár. En andinn sem réði vinnunni við gerð stjórnarskrár Bandaríkjanna mætti vera okkur fyrirmynd, - a.m. k. hvað varðar þá hugsun að takmarka valdið, því valdið spillir. Það er eðli þess.
Auðkennistala mín á kjörseðlinum er 8276.Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag | Breytt 9.11.2010 kl. 22:54 | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir
Athugasemdir
Stattu þig strákur!
stefan benediktsson (IP-tala skráð) 8.11.2010 kl. 19:41
Stefán
ég tek orð þín sem hvatningu um það að ég eigi að standa mig í því að ná kjöri til stjórnlagaþings. Ég mun leggja mig fram án þess að eyða stórfé til þess.
Valdimar H Jóhannesson, 9.11.2010 kl. 00:20
Góð grein en málið er að hér á landi hafa þessir stjórnmálamenn ekki þessi völd samkvæmt stjórnarskránni heldur fara þeir áfram með frekju og láta engan komast að með hótunum samanber ESB málið. Væri alveg tíl í að sjá þig kosin. Máttu mæla með öðrum líka.
Valdimar Samúelsson, 9.11.2010 kl. 09:41
Valdimar
það skiptir ekki máli hvort við búum við þingbundna stjórn eða stjórrnbundið þing eins og sumir segja að að sé í raun stjórnskipun okkar meðan stjórnmálamenning okkar er á þessu lága plani. Það hefur blasað við áratugum saman að lýðræðið er hér afar bágborið á borði þó að það þykist vera hraust í orð.
Við komust ekkert út úr því fari nema með róttækum breytingum á stjórnarskránni. Með flokkakerfið eins og það er og hefur verið þrátt fyrir fjöldann allan af atrenum til að breyta því þá verður ekki unnt að breyta stjórnmálalífinu nema með nýjum reglum um aðgreiningu valdþáttanna, - framkvæmdavalds, löggjafavalds og dómsvalds. Þessir valdaþættir sem eiga að takmarka hvorn annan og veita aðhald hafa verið meira eða minna á sömu höndum alla tíð.
Ég mun leggja áherslu á að löggjafavald og framkvæmdavald verði kosið sitt í hvoru lagi, landið verði eitt kjördæmi og tekið verði upp persónukjör í kosningum til alþingis ef ég næði kjöri inn á stjórnlagaþing. Einnig að 10% kjósenda geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu sem væri bindandi fyrir alþingi.
Valdimar H Jóhannesson, 9.11.2010 kl. 10:15
Já ég er sammála þér með það og er búinn að eyrnamerkja þig hjá mér.
Valdimar Samúelsson, 9.11.2010 kl. 11:49
Góður pistill Valdimar.
Marta B Helgadóttir, 9.11.2010 kl. 14:00
Sæll, mín skoðun er að leiðin liggi í gegnum þjóðaratkvæða greiðslu fyrirkomulag.
En, eitt sem menn gleima sem orsök hér er smæðin. En 63 þingmenn eru allir kunningjar, vegna þess að eftir allt saman eru þeir einungis 63.
Þetta orsakar það að Alþingi er mikið kunningjasamfélag og því verður erfiðlega breytt, nema fólk sé til í að fj. þingmönnum upp í 150 eða 200.
Síðan þegar saman fer að hefðin hér er meirihlutaræði sem orsakar það öllu að jafnaði, að Alþingi er ekki sjálfstæður aðili valdapóll út af fyrir sig, heldur undirokað af framkvæmdavaldinu.
Þá hefur í reynd eina valdið í staðinn, verið huganl. nei forseta.
Fjölmiðlar eru veikir og þar er einnig kunningjasamfélag, nema helst á netinu.
Dómstólar, taka sjaldan ákvarðani í andstöðu við stjórnkerfið.
------------------------
Þetta skilur eftir fólkið sjálft. En mig grunar að smæðin geti einmitt gert auðveldar að láta þjóðaratkvæðagreiðslu fyrirkomulag virka.
En, ef þ.e. svo að t.d. 25þ. undirskriftir geti alltaf fengið fram kosningu um hvaða þingmál sem er, eða stjórnvalds ákvörðun ráðherra. Þá breitist allt.
Þá minnkar vald valdhafanna. Þeir verða að taka tillit til andstöðu minnihluta, eða jafnvel stórs hluta almennings. Ákvarðanir verður ekki lengur hægt að taka, nema að sannfæra þjóðina - með því að rökræða við hana.
Að auki, þ.s. vald þeirra minnkar, þá minnkar líka hvati fjármálaafla til að spilla stjm.mönnum þ.s. ekki er lengur hægt að beita þeim sem leppum til að ná fram einhverju sem kemur tilteknu fyrirtæki fyrst og fremst vel, eða a.m.k. mun erfiðara.
Þetta slær mjög margar flugur í einu.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 9.11.2010 kl. 15:01
Einfaldasta leiðin til að takmarka möguleika stjórnmálamanna til of mikils valds og drottnunar er að takmarka þann tíma sem fólk má sitja á þingi. Hæfilegur tími teldi ég vera 2-3 kjörtímabil. Að því loknu hefði viðkomandi einfaldlega ekki heimild til að setjast á þing aftur. Nái fólk ekki að hafa áhrif til góðs fyrir samfélag sitt á 8-12 árum á þingi, lagast það alveg örugglega ekki við 20-30 ára setu. Um það höfum við nógu mörg dæmi fram að þessu, því miður fyrir land og þjóð.
Halldór Egill Guðnason, 9.11.2010 kl. 15:59
Einar
ég er sammála þér um að mikið myndi breytast ef þjóðin fengi það vald að geta krafist þjóðaratkvæagreiðslu um mál sem 10% hennar krefst að séu afgreidd þannig. Vel kann að vera að slíkt úrræði væri full mikið notað í fyrstu sem gerði ekkert til því að þjóðin myndi læra að nota slíkt tæki þegar frá liði. Og það er þjóðin sem á að ráða, - ekki stjórnmálaflokkarnir eða flokksforingjarnir.
Valdimar H Jóhannesson, 9.11.2010 kl. 16:41
Halldór
viissulega kæmi til greina að takmarka þann tíma sem fólk getur setið samfellt á þingi. Ef kosning framkvæmdavalds og löggjafavalds yrði aðskilin væri kannski síður þörf á slíkum takmörkunum en hún væri þó örugglega til góðs. Þingmennska á ekki að vera æfistarf, - heldur frekar markaðst af þörf manna til þess að láta gott að sér leiða í því að bæta samfélag okkar sem þetta land byggir.
Valdimar H Jóhannesson, 9.11.2010 kl. 16:45
Hafðu ekki áhyggjur af því, þjóðin myndi smám saman læra að beita því. Að auki myndi hin pólit. stétt einnig læra inn á það, sem einnig myndi fækka tilvikum - þ.s. þeir myndu smám saman fá tilfinningu fyrir því, hvaða mál þurfa frekari umræðu, frekari sannfæringarkraft.
Kv.
Einar Björn Bjarnason, 9.11.2010 kl. 21:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.