29.3.2012 | 20:21
Frumvarp um stjórn fiskveiða hrein landráð
Framlagning Steingríms J Sigfússonar á frumvarpi um stjórn fiskveiða og fiskvinnslu er tilræði við efnahag Íslendinga til næstu áratuga og á því að flokkast sem landráð. Þeir þingmenn sem samþykkja þetta dæmalausa frumvarp gerast sekir um landráð. Landráð er stórt orð en hvað á að kalla það ef þingmenn sem þjóðin hefur kosið til að annast hagsmuni sína svíkur þjóðina þannig að helsta lífsbjörgin er tekin frá henni í fjóra áratugi?
Saga kvótastýrðra fiskveiða á Íslandi er hörmungarsaga. Í stað þess að veiða 400-500 þúsund tonn af þorski á ári hefur þorskveiðin aðeins numið um þriðjungi þess afla. Afli af öðrum botnfisktegundum hefur skerst með sama hætti. Við höfum verið að fara á mis við útflutningstekjur sem samsvara öllum tekjum af orku- og áliðnaðinum undanfarna áratugi. Vegna meiri margfeldisáhrifa af vinnslu sjávarafurða en áls myndi munurinn fyrir þjóðartekjur okkar verða enn meiri.
Hér er stórkostlegir hagsmunir þjóðarinnar á ferðinni. Ef Alþingi gæti borið gæfu til þess að afnema kvótastýringu á fiskveiðum gæti velferð aukist hér afar hratt. Þó að ég hafi engra hagsmuna að gæta umfram alla aðra Íslendinga hef ég reynt að vekja athygli á þessu ítrekað í mörg undanfarin ár eins og nokkrir menn aðrir. Máflutningur okkur hefur ekki haft nein árhif á ráðandi stéttir landsins en almenningur er því miður algjörlega sljór fyrir stórum hagsmunamálum sínum. Enski fótboltinn skiptir meira máli!
Hér apar hver eftir öðrum slagorð eins og þessi: Þó að kvótakerfið feli kannski í sér mikið þjóðfélagslegt óréttlæti er því ekki að neita að það skilar þjóðfélagslegum hagnaði fyrir þjóðina í heild" !!!! Um þessa setningu er það að segja að fyrri hlutinn er sannleikanum samkvæmur en seinni hlutinn er fáránleikinn uppmálaður.
Gjafakvótakerfið er óhafandi með öllu. Það stríðir gegn stjórnarskrá landsins (65. og 75. grein ) eins og Hæstiréttur komst að með dómi sínum í desember 1998 og það stríðir gegn Mannréttindasáttmála SÞ eins og Mannréttindanefnd SÞ komst að niðurstöðu um í október 2007. Og kvótakerfið hefur rýrt mjög þann arð sem þjóðin hefði getað haft af auðlind sinni. Uppsafnað tap af kvótakerfinu nemur
feiknalegum upphæðum. Það tap verður aldrei bætt.
Ég eins og fleiri hafa lengi borið þá von í brjósti að nægjanlegir vitmenn með óskerta siðferðisvitund settust á Alþingi til þess að átta sig á þessu stóra hagsmunamáli. Lítill vandi er að breyta fiskveiðistjórnarlögum þannig að kvótastýring yrði felld úr gildi en fjölda margar vænlegar leiðir eru
til þess að stýra fiskveiðum. Alþingi sem nú situr væri sæmra að snúa sér að því verkefni að semja lög um stjórn fiskiveiða sem virðir stjórnarskrá landsins og mannréttindakröfur sem við höfum fallist á að hlýta heldur en að festa óréttlætið í sessi um áratugi. Þetta mundi vera þeim mun ánægjulegra verk sem hagur þjóðarinnar mundi snaraukast um leið og Alþingi gæti kannski aftur rétt úr kútnum og hlotið þann virðingarsess sem þjóðin vill að Alþingi hafi.
Steingrímur J Sigfússon leikur ljótan leik í þeim tilgangi að rugla þjóðina í ríminu. Hann leggur fram tvö frumvarp en auk þessa sem hér hefur verið fjallað um er frumvarp um auðlindagjald. Þar eru settar
fram hugmyndir um umtalsverðar greiðslur sem kvótagreifar eiga að greiða fyrir að nýta auðlindina. Öll áherslan er lögð á að fjalla um miklar tekjur af auðlindagjaldi og umræðurnar látnar snúast um þær. LÍÚ valdið tekur þátt í leikfléttunni með stjórnarflokkunum ( eða er það kannski öfugt) og hefur uppi
háværan málflutning um skelfingar fyrir land og lýð ef útgerðarfyrirtækin færu á hausinn vegna auðlindagjaldsins. LÍÚ og Steingrímur vita hins vegar mætavel að lög um auðlindagjaldið er unnt að breyta á augabragði á þingi. Nýjum lögum um stjórn fiskveiða verður hins vegar ekki breytt nema með greiðslu hárra skaðabóta.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:39 | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 194868
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir
Athugasemdir
Það er ekki Alþingi sem ræður kvótanum í raun heldur LÍÚ í dyggu samráði við Hafró. Þetta er gert til að halda fiskverði í hæstu hæðum og til að koma í veg fyrir nýliðun í greininni, svo þeir sem allt hafa haldi öllu.
Hjónaband Hafró og LÍÚ er hjónaband bundið í helvíti og grunnurinn að öllu þessu klúðri og einokun í greininni. LíÚ og handbrúður þeirra á þingi undanfarna áratugi hafa líka rústað krónunni sér til hagsbóta. Þegar fiskveiðar gengu vel og útflutningur blómstraði, þá hækkaði gengið. Til þess að auka enn frekar verðmætin var gengið fellt að beiðni LÍÚ á kostnað okkar. Eignatilfærsla af glæpsamlegum toga. Þeir vildu og vilja bæði eiga kökuna og éta hana. Þetta er akkilesarhæll Íslensks efnahagslífs en ekki það sem verið er að þrátta um á þingi nú.
Það er nefnilega algert tabú að hafa orð á þessu samsæri.
Jón Steinar Ragnarsson, 30.3.2012 kl. 03:21
Mikið er ég sammála þér Valdimar.
Sigurjón Þórðarson, 31.3.2012 kl. 16:56
Góð grein Valdimar. Það er því miður allt of fáir sem skilja að kvóta stýring á fiskveiðum gengur ekki upp. Og að gera auðlindagjald að aðal röksemdum gegn kvótakerfinu ruglar alla umfjöllun um kvótann.
Íslelndingar verða að skilja að fiskveiðistjórnin er mesta hagsmuna mál þjóðarinnar og að "kvótkerfið skapi verðmæti" er rugl í því sambandi. Fiskveiðar og vinnsla skapar verðmæti. Þau er hægt að auka ekki til hagsbóta fyrir fáa eins og núna er gert heldur fyrir alla Íslendinga ef okkur ber gæfa til að afnema kvótastýringu á veiðunum og gefum mönnum frelsi til að sækja miðin og setja fiskinn á markað.
Ólafur Örn Jónsson, 1.4.2012 kl. 14:27
Kvoti er naudsyn.Hvernig honum sidan hefur verid stjornad, er skandall. Thar koma ad fyrst og fremst politikusar, sem komu kerfinu a, utgerdarmenn sem sau smugurnar,(i sumum tilfellum kvotaeigendur) bankarnir sem vednyttu og sidan aftur utgerdarmenn, skipstjorar i byrjun og adrir sem gerdu thetta kerfi ad thjodargjaldthroti. Gleymum ekki upphafinu godir halsar. Mesti uppgangstimi Islandssogunnar var allur a "FITTI" ef einhver aetlar ad eigna ser thad timabil.
Halldór Egill Guðnason, 6.4.2012 kl. 09:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.