31.1.2024 | 13:08
Kalla á eigin tortímingu
Réttsýnu fólki svíður að horfa upp á hörmungarnar á Gasa, þar sem fjöldi almennra borgara og barna verður fórnarlömb í varnarbaráttu Ísrael gegn árásum Hamas. En ofstopa gyðingahatur, sem blasir við á Austurvelli, er undrunarefni. Flestir gera sér kannski ekki grein fyrir að í raun er kallað eftir því að Ísraelsríki verði gjöreytt og að allir gyðingar í landinu myrtir. Og að því verki loknu verði allir gyðingar heimsins drepnir og síðan komi að kristnum mönnum. Allir nema múslímar meðal mótmælenda eru því að kalla eftir því að þeim sjálfum og fjölskyldum þeirra verði að lokum eytt. Frjáls Palestína kalla óvitarnir á Austurvelli og ættu að vita að þarna er vísað í slagorðin: From the river to the sea, Palestine will be free og Ísrael þar með eytt af kortinu.
Hamas birtir þessa framtíðarsýn í stofnskrá sinni. Hún er einnig kölluð upp í moskum víða um heim. Erkiklerkarnir í Íran hafa látið hrópa þetta upp í öllum föstudagsbænum síðan þeir komust til valda 1979. Tónað er að fyrst skuli eyða Litla satan Ísrael, og síðan Stóra satan Vesturlöndum. Íran styður Hamas af fullu afli eins og Hesbollah í Líbanon, Húta í Jemen og fleiri hryðjuverkahópa með vopnum og fjármunum. Bókstaf kóransins er fylgt eins og a.m.k. helmingur múslíma í Evrópu telur rétt að gera og þá væntanlega einnig múslímar á Íslandi samkvæmt stórri könnun félagsfræðideildar Humboldt-háskólans í Berlín.
Forystumenn Hamas líta með mikilli velþóknun til Austurvallar eins og til allra slíkra hópa um öll Vesturlönd. Khaled Mashal fagnaði þróun mála á dögunum í viðtali í Doha í furstadæminu Katar, þar sem hann býr ásamt tveimur öðrum af helstu foringjum Hamas í miklum vellystingum langt frá allri eymd. Þeir sitja á tvö þúsund milljarða króna sjóði sem þeir hafa hirt af gjafafé m.a. frá okkur. Í viðtalinu lýsir hann yfir mikilli ánægju með hve vel hafi tekist með stríðsaðgerðirnar 7. október þegar
Hamas rauf vopnahléið við Ísrael og réðst óvænt inn í Ísrael vel undirbúið upp úr neðanjarðargöngunum, sem voru grafin einmitt til að gera skyndiárás af þessu tagi m.a. með
fé og pólitískum stuðningi frá okkur.
Honum var efst í huga að þessi hernaðaraðgerð sannaði að markmið Hamas væru vel gerleg og að samtökin nytu stuðnings meðal ungs fólks á Vesturlöndum, sérstaklega í háskólunum. Honum varð ekki tíðrætt um mannfall á báða bóga, enda þjónar það góðum tilgangi. Grimmdarverkin 7.október vöktu Ísraela til varna. Þó að Ísraelar vandi sig sem best við að beina aðgerðum sínum aðeins að morðingjum Hamas geta þeir ekki hindrað mannfall meðal almennings í Gasa sem er notaður sem varnarskjöldur fyrir hryðjuverkamennina. Þeim mun fleiri fallnir á Gasa, þeim mun betra fyrir málstað Khaled Mashal. Sérstaklega rífa lemstruð barnslíkin vel í sálir okkar allra sem ekki höfum misst mennskuna.
Heimurinn hefur vart séð aðrar aðfarir síðustu átta áratugina eins og þær sem Hamas-foringinn fagnaði. Um 1.200 voru myrt með ólýsanlegum kvalaþorsta, óvopnaðir menn, konur og börn, sem áttu sér einskis ills von. Það sem blasti við mér í nýlegri heimsókn minni í útrýmingarbúðir Auschwitz-Birkenau í Póllandi, þar sem mennskan fór í dýpstu lægðir, stóðst ekki samanburðinn. Hélt ég þó að mannkyn hefði aldrei lotið lægra á mínu æviskeiði.
Þeir sem krefjast þess að Ísrael bakki fyrir þessum ofstækisfullu morðingjum ættu að líta til fortíðar og muna að þó að sagan endurtaki sig breytir hún um ásýnd. Hinn vestræni heimur hélt að hann gæti samið við nasista-, fasista- og kommúnistaríkin. Það kostaði líf hundraða milljóna manna. Þjáningarómurinn sem hingað barst á þessum tíma er mér ljóslifandi í bernskuminni. Allir sem hafa sett sig af alvöru inn í hugmyndafræðina íslam hljóta að sjá hvað hún er náskyld hugmyndafræðinni sem skók heiminn þegar þessi hatursfullu öfl náðu að sameinast. Vandinn er hins vegar sá að langflestir neita að kynna sér málin og telja okkur það til vansa sem höfum tekið á okkur rögg.
Mjög fáir sáu þá ógn sem bjó í alræðiskerfunum á síðustu öld og skildu því ekki að heimsstyrjöldin síðari var að skella á þegar hamfarirnar voru í aðsigi og öxulveldi hins illa voru að ná taktinum. Til allrar gæfu slitnaði samstaðan þegar nasistarnir sviku lit gagnvart kommúnistunum. Nú eru ófreskjurnar að ná saman á ný. Íran er kannski þegar komið með kjarnorkuvopn og fæðir hryðjuverkamennina í Mið-Austurlöndum og Rússa í stríðinu í Úkraínu, N-Kórea skekur vopnin og Kína virðist til alls víst.
Sumir óttast að þriðja heimsstyrjöldin sé að hefjast og verði aðallega leidd áfram með alræðishugmyndafræði íslam undir forystu Íran og jafnvel Rússa, sem hafa stóraukið hergagnaframleiðslu. Þeir eru með vaxandi umsvif eins og Kínverjar víða í Afríku. Meira að segja Svíar finna til hrolls og eru að ganga í NATO. Þeir sem leggja við hlustir heyra að stríðsbumburnar eru barðar af ákafa og stefnir í átök í Evrópu. Almenningi er sagt að birgja sig upp með nauðsynjum ef til styrjaldar kemur. Og hérna er heimtað að Ísland taki ekki þátt í Evróvision af því að Ísrael er að verjast tortímingu lands og þjóðar.
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir
Athugasemdir
Blessaður Valdimar.
Hér er skrifað af viti og þekkingu, mættir pistla oftar því það er stundum eins og Jón Magnússon sé eyland meðal eldri og reyndari pistlahöfunda hér á Moggablogginu.
Viska og þekking setur hlutina í samhengi sögunnar, sem ekki er vanþörf á.
Hafðu þökk fyrir.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 31.1.2024 kl. 15:57
Getur það verið að skipulega sé verið að flytja fólk með ólíka siði í löndin sem hefur tekist að koma á hjá sér nokkuð lífvænum lífskjörum.
Er þá talið að þegar allt er komið í óefni, óeirðir og stríð að þær þjóðir samþykki frekar að lúta einhveri heimsstjórn?
Skrifað var að þegar stríðið var í Sýrlandi þá voru Yesikar, Kristnir og Kúrdar í mikilli hættu en sagan sagði að engum Yesika og einum Kristnum hafi verið boðið til Íslands.
Takk fyrir að reyna að kenna okkur að hafa yfirsýn.
Oft er talað um að til Íslands komi fólk sem hefur Islam sem trúarbrögð.
Reynslan virðist vera að lög og reglur Islam og lög og reglur Kristni eigi oft illa saman, skapi ófrið, eins og sagan segir.
Kristni saga – heimskringla.no
https://heimskringla.no/wiki/Kristni_saga
11. Frá því, er kristni var lögtekin.
Svo mælti Þorgeir Ljósvetningagoði fyrir þúsund árum.
... en vér höfum allir ein lög ok einn sið, því at þat mun satt vera: Ef vér slítum lögin, þá slítum vér friðinn". ...
Egilsstaðir, 31.01.2024 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 31.1.2024 kl. 17:34
Tek undir með Ómari Geirssyni. Góð grein. Ég tek líka undir það með Ómari að þú ættir að skrifa oftar því þú hefur það mikið fram að færa og býrð yfir mikilli þekkingu ekki síst á Íslam.
Jón Magnússon, 31.1.2024 kl. 19:37
Tek undir allt hér að ofan.
En á meðan dúkkulísur stjórna er ekki við miklu að búast.
Aldrei hefur Ísland farið eins langt frá því að vera hlutlaust
eins og staðana er í dag. Vinir til fjölda ára gerðir að
óvinum vegna pantana frá Brussel. Svo þett palestínu rugl
á austurvelli. Hefði aldrei trúað því hvað landinn er illa
lesin, auðtrúa og bláeygður. Svo trompar vitleysan þegar
hommar og lesbíur eru farin að öskra með þessu liði, fólkið
sem væri tekið af lífi hið fyrsta, hent framm af háshýsum,
svívirt og grýtt. Með stuðning við HAMAS er þetta heimska lið að
sýna stuðnig við dráp á samkynhneigðum en hafa bara ekki meira
i hausnum til að skilja það. Því miður erum við kominn með
þessi múslimsku vandræði heim í garðinn hjá okkur í boði
góða fólksins (heimska fólksins) og held að það verði ekki
aftur snúið því það er of seint.
Sigurður Kristján Hjaltested, 31.1.2024 kl. 22:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.