Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2013
17.2.2013 | 15:21
Hláleg verðlaun
Fréttir um að Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar hefði orðið í 2. sæti í vali á Viðskiptamanni ársins hjá Markaðinum, fylgiblaði Fréttablaðsins, eru furðulegar. Mér datt fyrst í hug að þetta væru skammarverðlaun en svo var ekki. Of margir hafa tapað stórfé og sumir aleigunni vegna kaupa á hlutabréfum í deCode til þess að unnt sé að sitja þegjandi undir þessu.
Einn helsti mælikvarði um lofsverðan árangur í viðskiptum hlýtur að vera hvernig hafi tekist að skapa verðmæti án skaða fyrir aðra. Ræningjar og ofbeldismenn væru seint heiðraðir þó að þeim hefði tekist að raka saman miklum auði með gripdeildum eða blekkingum.
Þó að samanlagt rekstrartap Íslenskrar erfðagreiningar sé orðið yfir 60 milljarða króna og hlutafé í fyrsta eignarfélagi þess, deCode, algjörlega verðlaust, varð Kári stórauðugur maður af því að segja þjóðinni ósatt um þá ótakmörkuðu möguleika sem áttu að felast í starfsemi Íslenskrar erfðagreiningar og eignarhlutum í deCode. Hann sagði þjóðinni ósatt um vísindalegar staðreyndir og bjó til mynd sem margir íslenskir vísindamenn höfnuðu. Dæmi um slíka staðreynd var t.d. fullyrðing um að íslenska þjóðin væri svo óvanalega hreinræktuð frá örfáum einsleitum landnemum
sem hér settust að í upphafi að slíkt byði upp á einstök tækifæri til að
einangra erfðagen sem lægju til grundvallar nánast öllum alvarlegum sjúkdómum.
Íslenskir erfðafræðingar andmæltu þessum fullyrðingum. Einn þeirra birti t.d. niðurstöður vísindalegrar rannsóknar sinnar, sem sýndi að fáar þjóðir í Evrópu væru meira erfðafræðilega blandaður en íslenska þjóðin. Fjölmiðlar gerðu ekkert með slíkar upplýsingar og dönsuðu áfram trylltan dans umhverfis sjónhvefingamanninn. Gagnrýnar upplýsingar komust ekki að og
þeirri bábilju haldið fram að þeir sem ekki keyptu hlutabréf í deCode myndu
enda með öngulinn í rassinum.
Íslenskir fjölmiðlamenn brugðust lesendum sínum og sumir hrakyrtu þá, sem fluttu varnaðarorð. Kára fékk þannig að líkja greinarhöfundi við hýenu og hælbít í fréttatíma Sjónvarps vegna gagnrýni á skrum og blekkingar Kára. Í Kastljósi var mikið grín og gaman þegar tveir þekktir Íslendingar hvöttu Kára til þess að einangra öfundargenið í okkur sem höfðum uppi varnaðarorð. Alþingi dansaði með í tryllingnum og samþykktu hin dæmalausu lög um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði með því að víkja til hliðar grundvallar mannréttindum og alþjóðlegum samþykktum sem Ísland á aðild að.
Viðskiptasaga Kára Stefánssonar ætti frekar að sæta rannsókn en að hljóta viðurkenningu. Kári keypti tvær milljónir stofnhluta í deCode fyrir 0.001 US $ á hvern hlut. Bréfin fóru hæst í 65 US $. Kárin borgaði sem sagt 1/65.000 faldan hlut þess sem sumir saklausir borgarar keyptu hvern hlut á. Þúsund króna fjárfesting Kára samsvaraði því til 65 milljónum króna fjárfestingar ólánsfólks sem trúði á skjótfenginn gróða með vísindagöldrum. Þúsund kallinn hjá Kára svaraði á þeim tíma til þriggja veglegra einbýlishúsa . Fyrir alla fjárfestinguna upp á ca 140.000 kr ( gengi US $ var þá ca 70 kr) hefðu fengist 4-500 stór einbýlishús. Var það kannski þetta sem Markaðurinn var í reynd að verðlauna fyrir? Auk stofnhluta var Kári skrifaður fyrir milljónum hluta til viðbótar í deCode sem hann seldi a.m.k. að hluta aftur.
Hægri hönd Kára, Hannes Smárason, fékk að kaupa hlutinn í deCode fyrir 0.10 US $ . Hann græddi því ekki nema 650 falt ef hann hefði selt bréf á 65 US $. Hannes hefði því ekki fengið nema 650.000 krónur fyrir hverja 1000 króna fjárfestingu í deCode! Rannsaka þyrfti hvort Hannes og Kári voru aðilar að Biotek Invest í Luxembourg, sem var með mikil viðskipti á
hlutabréfum deCode inn á gráa markaðinn og hagnaðist gríðarlega.
Saga Investments keypti Íslenska erfðagreiningu út úr þrotabúi deCode og varði í heild ca 5 milljöðrum króna í þau kaup og taprekstur. Saga hefur nú verið seld aftur í einu lagi fyrir 50 milljarða króna eða með 45 milljarða króna hagnaði. Af því er Kári sagður hafa fengið myndarlegan skerf, sennilega milljarða króna. Þeir sem báru 60 milljarða króna tap deCode njóta ekki góðs af gróðanum af sölu Saga Investments.
Hér er ekki úr vegi að upplýsa að bæði deCode og Saga Investments voru stofnuð í Delaware þar sem ýmislegt er látið viðgangast sem sem ekki líðst í öðrum fylkjum Bandaríkjanna, - er einskonar skjól fyrir ljósfælin viðskipti, - mætti kalla skálkaskjól eins og Luxembourg og Panama en í Panama hvarf slóð milljarðagróða Biotek Invest.
Í stað þess að sinna skyldu sinni sem umboðsmenn lesenda sinna og rannsaka alla sögu Íslenskrar erfðagreiningar og móðurfélaga dettur íslenskum blaðamönnum ekkert betra í hug heldur en að verðlauna þennan skaðvald í íslenskri viðskiptasögu. Á íslenska þjóðin virkilega enn svona vinnubrögð skilið ?
P. S.
Höfundur sendi þessa grein til Fréttablaðsins 9. janúar sl með beiðni um að hún yrði birt þar. Fréttablaðið neitaði að birta greinina en málfrelsið þar virðist háð því skilyrði að ritstjóra líki við skoðanir sem á að birta. Greinin var þá send Mbl sem hingað til hefur verið vettvangur fyrir andstæð sjónarmið
ritstjórnar og hefur þannig verið mikilvægur vettvangur skoðunarmyndunar í
landinu. Nú bregður hins vegar svo við að Mbl vill ekki birta greina og fæst
ekki til þess að gefa á því skýringar heldur hefur höfundur verið hunsaður
þegar hann hefur leitað eftir skýringum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir