Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2015
9.4.2015 | 23:21
Lágkúra sjónvarpsstöðvanna
Lágkúran í íslenskri fjölmiðlun sannaðist enn eina ferðina í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gær og svo aftur í fréttatíma sjónvarpsins í kvöld þegar þessir áhrifamiklu fjölmiðlar lögðust í einhliða hatursáróður gegn Israel með viðtali við og umfjöllun um norska lækninn Mads Gilbert. Gilbert var kynntur til sögunnar sem fórnfús mannvinur sem hafi ítrekað lagt lið sárþjáðum fórnarlömbum hernáms og blóðugra árása Israels á saklausa borgara á Gaza. Hið sanna er hins vegar að Mads Gilbert er alræmdur öfgamaður, sótsvartur marxisti, áróðursmaður gegn Ísrael og stuðningsmaður múslímskra hermdarverkamanna.
Hann stóð með Mao, sem myrti 80 milljónir landa sinna. Hann hefur orðið vís að því að hagræða staðreyndum, láta vera að segja sannleikann um afar mikilvæg atriði og sagður taka þátt í Pallywood með því að sviðsetja skelfingu fyrir myndatöku og fréttaflutning eins og tíðkast hjá Hamas og raunar einnig hjá Fatah. Hann hefur gengið ómennsku Hamas á hönd og gott ef hann stóð ekki með Pol Pott, þeim snyrtilega fjöldamorðingja.
Fjölmiðlar hafa ítrekað verið varaðir við sjónarmiðum Gilberts, sem aðrir læknar hafa ásakað fyrir að brjóta Hippokratesar eiðinn með því að styðja hermdarverk, standa með Hamas og kynda undir í átökum í Mið-Austurlöndum. Hann er ásakaður fyrir að nota læknisstörf til framdráttar einstrengingslegri pólitískri baráttu. Fyrir nokkru mótmæltu 9 virtir fulltrúar læknisfræðinnar í ýmsum löndum málflutningi hans og þeirri ómaklegu viðurkenningu, sem hann hefði hlotið fyrir störf sín á Gaza.
Það var raunar félagsskapurinn Ísland- Palestína undir stjórn Sveins Rúnars læknis, sem fékk þennan mann hingað til lands til að bera lyginni vitni eins og ljóst var með því að horfa á útsendinu beggja sjónvarpsstöðva landsins. Hvílík forsmán!
Gilbert hefur gengið svo langt í ofstæki sínu að réttlæta árásir á tvíburaturnana í New York 11. sept 2001 og morð þrjú þúsund saklausra borgara í viðtali við norskt dagblað. Al-Shifa sjúkrahúsið á Gaza þar sem hann starfaði hýsti herstjórn Hamas og gott ef ekki vopnabúr eins og skóli SÞ á Gaza gerði og fleiri hús í þjónustu almennra borgara. Hann horfði á Hamas-liða skjóta eldflugum sínum að almenningi í Israel nánast stefnulaust og hitta fyrir einnig almenning á Gaza. Það mannfall var skrifað á reikning Iraela þó að allir á Gaza vissu það sanna. Hann horfði á Hamas nota almenna borgara og jafnvel börn sem skjöld fyrir skotpalla sína og hermenn án þess að gera athugasemdir, - athæfi sem er ekki einasta stríðsglæpur heldur fyrirlitlegt á hvaða mælikvarða sem er.
Við þurfum ekki menn eins og Mads Gilbert til að lýsa einu eða neinu fyrir okkur. Slíkir menn eru margfalt verri en enginn. Þeir kynda undir djöfulskap þegar heimurinn þarf umfram allt að setja niður deilur. þeir afvegaleiða sannleikann. Þessir menn eru verstu níðingar sem hugsast getur þrátt fyrir að þeir slái sér á brjóst. Sennilega er Mads Gilbert siðblindur sósíópat sem trúir sínu eigin bulli eða telur tilganginn helga meðalið.
Það ætti að vera lágmarkskrafa okkar sem erum ofurseldir fjölmiðlun að þeir standi í lappirnar og kanni bakgrunn þeirra sem birtast okkur gagnrýnislaust. Fæstir hafa forsendur til þess að sjá í gegnum svona fréttaflutning og eru því berskjaldaðir fyrir því að mynda hjá sér kolranga heimsmynd þar sem staðreyndum er snúið á hvolf. Kolrangar heimsmyndir eru hættulegar eins og sagan ber vitni um.
.
Bloggar | Breytt 10.4.2015 kl. 06:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir