Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2025
27.1.2025 | 13:15
Svo langt frá heimsins vígaslóð?
Þó að hryllingur seinni heimsstyrjaldarinnar hafi enn grúft yfir heiminum 17. júní 1944 hélt þjóðin fagnandi, full bjartsýni á Þingvöll til að að stofna lýðveldið eftir nær sjö alda baráttu við að endurheimta sjálfstæði sitt og frelsi. Mér er dagurinn mjög minnisstæður vegna þess að ég fékk ekki að fara með föður mínum og vinum hans. Kannski sárnaði mér aðallega vegna þess að fararskjótinn var boddýbíll. Ég var þá tæplega þriggja ára gamall en man vel þá helgi sem var yfir deginum og hve faðir minn var snortinn. Hann greiddi þó atkvæði gegn því að slíta konungssambandinu taldi það rangt meðan vinir og velunnarar voru hersetnir.
Ég var því ekki viðstaddur þegar verðlaunaljóð Huldu (Unnar Bjarklind), Hver á sér fegra föðurland, var flutt við athöfnina í slagviðrinu við lag Emils Thoroddsen, sem ásamt öðru kom tárumum fram í augu viðstaddra. Ljóð og lag fékk síðan sess sem einn fallegasti ættjarðarsöngur okkur. Ég þykist muna að faðir minn hafi haft orð á því löngu seinna hvað rigningin þennan dag faldi vel táraflóðið hjá sér og öðrum.
Kvæðið var í hróplegri mótsögn við harðar staðreyndir samtímans á Íslandi nema fyrsta ljóðlínan: Hver á sér fegra föðurland/, sem enginn var og er rétta svarið við. En ljóðlínurnar: Með friðsæl býli, ljós og ljóð/ svo langt frá heimsins vígaslóð/ báru aðeins vott um fallega ósk landinu til handa. Fjölmennt hernámslið skyggði á allt mannlíf með tugum þúsunda hermanna (um 25% af þjóðinni). Heimsins vígaslóð lá við bæjarhlaðið og hátt í 300 Íslendingar, mest sjómenn, fórust í stríðinu.
Á mínu heimili voru sífelldar áhyggjur vegna afdrifa afa míns, ömmu, allrar stórfjölskyldunnar og vina sem bjuggu við hernám ófreskjunnar í konungsríkinu sem við vorum að losa okkur frá. Fréttir bárust ekki nema örsjaldan fyrir velvilja lykilmanna. Ég minnist ótta við loftárásir nazista, sem urðu þó fáar. Ég kynntist samt jafnöldrum mínum seinna sem hlutu örkuml af völdum Þjóðverja. Allir áttu um sárt að binda.
Ég syng kvæði Huldu samt glaður í hvert sinn og lít á söng minn sem áhrínsorð og spara mig hvergi þegar ég syng síðustu tvær ljóðlínurnar. Um leið horfi ég áminnandi á nærstadda: Svo aldrei framar Íslands byggð/ sé öðrum þjóðum háð./
Það var rétt og eðlilegt að líta fram hjá óþægilegum staðreyndum á þessum mikla sælu- og sigurdegi 17. júní 1944, gleyma blóðbaðinu um stóran hluta heims sem náði alveg að Íslandsströndum, gleyma um stund 30-40 þúsund erlendum hermönnum sem höfðu hernumið okkur. Þeir tilheyrðu öflum sem börðust fyrir friði, frelsi og réttlæti að mati okkar langflestra þó að alltaf séu þeir til sem vilja vera í liði með ófreskjum.
Þjóðin var einsleit á þessum tíma að undanskildu hernámsliðinu, sem var stundum til vandræða. Þeir fáu sem voru af erlendu bergi brotnir, eins og móðir mín, hálf íslensk og hálf dönsk, en ólst upp í Danmörku, féllu vel að þjóðinni þó að ég hafi stundum fengið að heyra að ég væri helv Bauni! Bót var að þarna töluðu þeir sem síst töldust þungavigtarmenn. Aðkomufólk naut engrar sérstakrar þjónustu en lagaði sig að þjóðinni. Þjóðinni var ekki ætlað að laga sig að siðum þess og tungu. Margt gott lærðu þó aðilar hvorir af öðrum.
En hvernig hefur draumsýn Huldu ræst?
Dreymdi hana að íbúar landsins af erlendum toga yrðu hátt í fjórðungur eins og nú er og færi ört fjölgandi? Þeir voru um 12% árið 2018. Með sama vexti yrðu innfæddir innan við helmingur íbúa á fjórða tug aldarinnar.
Dreymdi hana að íslenskan nægði ekki lengur fyrir almenning í daglegu lífi? Dugar ekki einu sinni að hafa vald á ensku sem er orðið lingua franca á Íslandi og stefnir ört í að verði að aðalmáli þjóðarinnar. Sá galli er hins vegar að innflytjendur eru margir ekki talandi á því máli. Dómsvaldið og skólarnir þurfa að bjóða upp á túlkaþjónustu á tugum tungumála.
Dreymdi hana að 70-75% þeirra sem eru úrskurðaðir í gæsluvarðhald þessi misserin væru erlendir ríkisborgarar þó að íslenskum ríkisborgurum hafi einnig fjölgað í þessu ógæfuliði?
Dreymdi hana að alvarlegum ofbeldisglæpum myndi vaxa svo fiskur um hrygg að jafnvel morð myndu nánast hverfa inn í fréttasuðið og að yfirmenn lögreglu teldu þörf á að vara við að börn væru að taka lögin í sínar hendur vegna barnaníðinga, sem yfirvöld réðu ekki við?
Dreymdi hana að drjúgur meirihluti þeirra sem þægju atvinnuleysisbætur væri erlendir ríkisborgarar og margir þeirra varanlega eins og er staðreyndin í nágrannalöndum, aðallega um þá sem koma frá löndum sem kenna sig við íslam?
Dreymdi hana að hér yrðu starfræktar moskur til að boða niðurbrot kristninnar og vestrænnar menningar og að íslenskir skattborgarar ættu að styðja stríðið gegn sjálfum sér t.d. með því að leggja til lóð undir mosku í Sogamýrinni? Ættu þó engum að vera skotaskuld úr því að kynna sér að moskur eru ekki aðeins tilbeiðsluhús heldur víghreiður í þessu stríði.
Landið er enn fagurt og frítt en víglínan hefur færst enn frekar inn til landsins, vegna erlendrar ógnar, sem við ráðum takmarkað við en einnig vegna innlendrar ógnar sem við ættum að ráða við að fullu.
Var þjóðin að fagna þessari framtíðarsýn á Þingvöllum 17. júní 1944?
Þessi grein birtist í Mbl 27.janúar 2025
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 28
- Sl. sólarhring: 45
- Sl. viku: 451
- Frá upphafi: 195447
Annað
- Innlit í dag: 24
- Innlit sl. viku: 417
- Gestir í dag: 23
- IP-tölur í dag: 23
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir