19.11.2010 | 16:27
Hættulegir öfgamenn í Ýmishúsinu
Flestir virðast telja að í ákvæðum stjórnarskrárinnar um trúfrelsi felist réttur hvers sem er til þess að boða hvaða trú sem er. Svo er ekki. Í 63. greininni segir: " Allir eiga rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína í samræmi við sannfæringu hvers og eins. Þó má ekki kenna eða fremja neitt sem er gagnstætt góðu siðferði eða allsherjarreglu." Samfélag okkar er því ekki eins opið og varnarlaust gegn ofstæki og ofstopa eins og margir virðast telja. Gæta verður að því að hrófla ekki við þessum skilyrðum við endurskoðun stjórnarskrárinnar.
Ef grunur margra er réttur um að Wahhabi múslímar í Saudi Arabíu standi að baki hugmyndum um byggingu mosku hérlendis og stofnun Kóran-skóla ( madrössu) eða að stofnun og byggingu þessara múslímsku stofnanna verði kostuð frá Saudi Arabíu er full ástæða til þess að bregðast hart við. Wahhabi múslímar iðka Islam í sinni öfgafyllstu og upprunalegustu mynd. Þeir halda ofstækis- og ofbeldisfullum trúarskoðunum svo mjög á lofti að horfir til vandræða um heim allan en það gera einnig fleiri hópar meðal múslima.
Vandræðin við Islam er hvað það er óskiljanlegt kristnum mönnum vegna dualisma, tvíhyggunnar. Þess vegna lenda margir góðviljaðir menn í þeirri gildru að líta eingöngu til notalegra setninga í Kóraninum en skoða hann ekki eða Islam í víðara samhengi. Kristnir menn líta almennt á Biblíuna sem mannanna verk og því ástæðulaust að taka mark á ýmsu t.d. í Gamla testamentinu sem samræmist ekki kenningu Jesú í Nýja testamentinu.
Múslímum stendur ekki til boða að velja og hafna. Þeir líta á Kóraninn sem orðrétt skilaboð til Muhameds frá Allah í gegnum erkiengilinn Gabríel. Allt í Kóraninum er óumbreytanlegt og getur verið lífshættulegt að hæðast að því. Okkur upplýstum vesturlandabúum þykir þetta auðvitað gjörsamlega fáránlegt en fjöldinn allur af trúuðum múslímum hafa verið innrættir með þetta frá blautu barnsbeini. Fyrir þeim er þetta svo fúl alvara (í orðsins fyllstu merkingu) að hófsamir múslimar þora ekki að æmta né skræmta nema ótrúlega hugrakkir einstaklingar sem hafa margir hverjir búið við stöðugur lífslátshótanir og þurfa að fara huldu höfði undir vernd lífvarða.
Enginn þarf að efast um að 80% múslíma er friðsamt fólk sem vill lifa í sátt og samlyndi við aðra trúarhópa en því miður fá þeir litlu ráðið eins og stendur þó að vona verði að þeim vaxi ásmeginn. Miklu skiptir að sýna þessu fólki stuðning og hvatningu.
Þegar það er haft í huga að 80% af moskum á Vesturlöndum er stjórnað af ofstopafullum imömum (foringjum) í nafni Islam er mikið í húfi að fylgst sé náið með múslímum nota sér trúfrelsið hér á landi. Lögregluyfirvöld og þjóðkirkjan mega ekki sofa á verðinum. Almenningur á heldur ekki að láta í sjálfu sér aðdáunarvert umburðarlyndi hindra sig í að skoða tilburði islamista til þess að ná Ísland undir Islam en það eru yfirlýst markmið þeirra og að koma hér á Sharíalögum.
Imami múslíma á Íslandi telst til hófsamra múslíma enda hefur hann búið hér í 40 ár. Hann hefur varað mjög við þeim mönnum sem stefna að því að hefja starfsemi í Ýmishúsinu og telur þá vera hættulega öfgamenn.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Dægurmál, Stjórnmál og samfélag, Trúmál | Breytt s.d. kl. 16:33 | Facebook
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir
Athugasemdir
Algjörlega hárrétt frá A-Ö. Ég óttast ef fólk ætlar að fara að túlka hugtakið "trúfrelsi"of vítt. Ég setti 8276 á listann minn.
Hörður Sigurðsson Diego, 19.11.2010 kl. 17:15
Við munum ótrauð halda okkur við þá þjóðaríþrótt okkar að bóða hættuástandið velkomið.
Nú vantar sárlega stjórnmálamenn sem þora að andmæla þessu og að auki krefjast þess að við segjum upp EES samningnum og Scengen innan þriggja ára.
Árni Gunnarsson, 19.11.2010 kl. 17:45
Fyrra bréf Páls til Tímót 2:11-15
11Konan á að læra í kyrrþey, í allri undirgefni.
12Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum, heldur á hún að vera kyrrlát.
13Því að Adam var fyrst myndaður, síðan Eva.
14Adam lét ekki tælast, heldur lét konan tælast og gjörðist brotleg.
15En hún mun hólpin verða, sakir barnburðarins, ef hún stendur stöðug í trú, kærleika og helgun, samfara hóglæti.
Ég er með meira frá nýja testamentinu en eitthvað segir mér að þú ert með afsakanir fyrir þessu viðbjóði þannig ég get alveg eins sleppt því.
Einn spurning, ég hef aldrei fengið alvöru svar við þessari spurningu, af hverju eru gamla testamentið ekki lengur í gildi í ykkar augum? Það segir mjög oft að guð er að segja hitt og þetta, drepur og þrælahald, setur lög sem góður maður í dag mundi aldrei fylgja, hvað er það sem gerir það ógilt og nýja testamentið rétt?
stefan (IP-tala skráð) 20.11.2010 kl. 01:46
Lúkas 14:26 og Mattheus 10:34-6....kveikir það einhverja þanka? Ég get tínt fleira til ef þið viljið. Hugmyndin um helvíti, erfðasyndin o.s.fr.
Jón Steinar Ragnarsson, 20.11.2010 kl. 02:52
Þakka þér fyrir góða og tímabæra færslu Valdimar.
Því miður eru allt of margir sem neita að horfast í augu við þá ógn sem þessi hópur Íslamstrúarmanna er við hugmyndir í okkar heimshluta um mannfrelsi og jafnstöðu kynjanna. Skrýtið að Kvennréttindafélagið eða Femínistar skuli aldrei fordæma ófrelsi og kvennakúgun margra boðenda Íslam. ´
Jón Magnússon, 20.11.2010 kl. 11:11
Jón Steinar
eins og fyrri daginn á ég erfitt með að skilja hvert þú ert að fara. Hugmyndir um erfðasyndina eru eins og hver annar brandari í hugum fólks almennt. Efast meira að segja um að margir átti sig á um hvað er verið að tala. Kristnu fólki leyfist að velja og hafna hvað það vill trúa á. Því leyfist að hafa skoðanir á hverju sem er og gagnrýna hvaðeina sem því dettur til hugar að gagnrýna.
Þetta verður ekki sagt um Islam. Það er kveðnir upp dauðadómar yfir fólk sem efast um sannleiksgildi Kóransins. Ertu ekkert að fylgjast með fréttum?
Aðalinntak Kristninnar er gullna reglan um að þú skulir ekki gera öðrum það sem þú vilt ekki að aðrir geri þér. Þessi regla gildlir gagnvart öllum jarðarbúum. Þessi regla gildir aðeins í Islam um múslímska karlmenn en ekki um neinn annan, eins og konur, börn eða fólk sem tilheyrir öðrum trúarbrögðum.
Íslendingar ættu að kynna sér Islam með opnum augum en ekki eins og þegar skrattinn les Biblíuna.
Valdimar H Jóhannesson, 21.11.2010 kl. 13:31
Góð grein Valdimar, ég bæti þér á listann minn eftir þessa lesningu (og fleiri svosem).
Ég vona svo innilega að stjórnvöld hugsi sig tvisvar (helst 100 sinnum) um, áður en þau ákveða nokkuð í málum Islam á Íslandi.
Adeline, 22.11.2010 kl. 12:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.