18.9.2013 | 12:01
Villuljós í myrkri
Örn Ólafsson, bókmenntafræðingur, segir mér frjálst að berja hausnum við steininn vegna skoðana minna á íslam. Það skaði hausinn en ekki steininn. Er vandamálið ekki frekar að íslam er gjarnt að berja steininum við hausinn í óþökk eiganda haussins? Fær fallerað fólk (nær eingöngu konur) eða samkynhneigðir einhverju ráðið áður en þau eru grýtt í hel? Varla eru þau sammála múslímska klerkinum í Kanada, sem lýsti því á dögunum hvernig slíkt gagnist sál þeirra með greiðari leið í gegnum hreinsunareldinn. Sama gildir þá væntanlega um homma sem eru hengdir margir í einu í sama kranabílnum eða um þá sem eru dæmdir til dauða fyrir að fjalla um fáránleikann í íslam, segja réttilega frá lífi Múhameðs, yfirgefa íslam, fara ógætilega með kóraninn eða efast um innihald hans.
Örn segir heimóttalega, þröngsýna menn óttast það sem ekki er heimakært og kunnuglegt. Hann spyr hvort ekki megi saka mig um oflæsi, sem má skilja þannig, að ég hafi lesið meira um íslam en mér sé hollt. Ég kannast við að hafa lesið mikið um íslam og sögu þess. Það er enginn skemmtilestur heldur óhugnaður í nánast hverjum stafkrók. Mér er efnið vel kunnugt en það verður mér seint heimakært.
Hvernig kemst Örn hjá því að sjá hryllinginn í íslam? Hvernig getur hann lagt öll trúarbrögð að jöfnu? Nær 22.000 mannskæð hryðjuverk í nafni íslams hafa verið skráð síðan 11. september 2001, en örfá hryðjuverk hafa verið framin í nafni allra annarra trúarbragða á sama tíma. Bókstafstrú í kristni og íslam er af tvennum toga. Bókstafurinn hjá þessum trúarbrögðum er jafn ólíkur og hvítt er svörtu. Þeir sem fylgja bókstafnum í kristni eru yfirleitt afar vænt fólk. Þeir sem fylgja bókstafnum í íslam eru íslamistar og
hreint ekki vænir menn í ofstæki sínu.
Hann mótmælir ekki því mati, að 20% múslíma almennt séu ofstækisfullir bókstafstrúarmenn. Hann virðist ekki gera sér grein fyrir, að hlutfall ofstækisfullra nasista og kommúnista var miklu lægra. Samt myrtu þeir hundrað milljónir samlanda sinna á síðustu öld. Þar sem sturlun ríkir eru það ávallt hinir sturluðustu sem stjórna.
Hann trúir enn ósannindum um gullöld íslams á miðöldum þó að vaxandi vitneskja sé fyrir hendi um hið gagnstæða. Íslam slökkti á þeirri hámenningu sem ríkti í Mið-Austurlöndum, Persíu og Indlandsskaganum fyrir daga íslams hjá kristnum mönnum, gyðingum, Zaraþústratrúarmönnum, búddistum og hindúum. Auðvitað hvarf menningin ekki um leið og íslam lagðist yfir þessi lönd eins og mara, heldur fjaraði út. Kristnir menn og gyðingar þar urðu helst til að halda uppi merkjum mennta og menningar sem að lokum kafnaði undir oki íslams, eins og öllum ætti að vera ljóst sem litast nú um í þessum samfélögum.
Örn segir fjöldahreyfingu í Egyptalandi hafa myndast gegn íslamistum. Samkvæmt nýjum tölum frá rannsóknarstofnuninni Pew
vilja 82% Egypta að fallnar konur séu grýttar til dauða og 84% að dauðarefsing sé við að yfirgefa íslam. Heil 74% vilja sharíalög, sem eru andstæð öllu því sem við kennum við lýðræði og 77% vilja láta hýða þjófa og höggva af þeim hendurnar . Egyptar, sem taka afstöðu með íslamistum, eru 59%. Hér þarf að muna að 10-15% Egypta eru kristin. Ofstækið meðal múselmanna þar er því að sama
skapi meira. Þeir sem ekki taka mark á staðreyndum elta villuljós í myrkrinu.
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir
Athugasemdir
Góð grein en las hana í Morgunblaðinu í morgun. Menn ættu virkilega að hugsa þetta mál til mergjar. Við verðum að hugsa lengra en eitt ár og þá frekar 50 til 100 ár í svona málum. Múslímarnir eru að safna liði það eitt er víst.
Valdimar Samúelsson, 18.9.2013 kl. 13:45
Ótrúlega bernsk viðhorf íslenskra jafnaðarmanna og feminista og þó ágeng, eru dæmi um þann farveg sem þessi innflytjendamál stefna í.
Því er haldið fram að þeir sem vilja tryggja innviði samfélagsins áður en yfir það hvolfist fjöldi innflytjenda með ærnum kostnaði, séu fullir mannfyrirlitningar og fordóma og tali af fullkomnu þekkingarleysi.
Fýrir skemmstu átti ég í deilum á fésbók við virtan sagnfræðing sem endalaust vildi bera blak af islam með því jafnvel að vitna í útrýmingarherferð nazista á hendur gyðingum og vísa til hennar sem framgöngu kristninnar.
Niðurstaða sagnfræðingsins var sú að kristnin væri síst skárri.
Árni Gunnarsson, 18.9.2013 kl. 16:22
Vel svarað Valdimar minn. Vona að Örn verki ekki í höfuðið eftir grjótkastið!!
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 18.9.2013 kl. 17:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.