3.12.2015 | 14:04
Rétt samhengi?
Þó að skotgleði og byssueign Bandaríkjamanna sé sannarlega ljóður á fari þeirra er afar hæpið að þessi frétt hafi verið sett í eðlilegt samhengi. Það hefur alveg legið ljóst fyrir síðan ég fór að fylgjast með fréttum klukkan 8 í morgunn að svo er ekki. Þá lá ljóst fyrir þeim sem afla sér frétta víðar en í íslenskum fjölmiðlum að árásarmaðurinn er íslamisti, þ.e. maður sem gengst ákaft upp í íslam. Hann hafði í þokkabót nýverið í Saudí Arabíu þar sem hann hafði gifst konu sem einnig virðist hafa verið íslamisti en fréttir benda til þess að hún hafi verið með honum í skotárásinni.
Eins og alltaf er þegar múslímar drepa fólk skilur enginn neitt í neinu. Þetta var svo ósköp þægilegur ungur maður, fæddur í Bandaríkjunum, velmenntaður og með góða vinnu. Hann var að lifa ameríska drauminn eins og sagt er um þá sem vegnar vel þar í landi.
Samstarfsmenn hans, sem hann drap, voru á jólaskemmtun. Eins og oft brá hann sér frá til að fara til bæna eins og faðir hans hefur upplýst en kom til baka alvopnaður með konuna og drap af miskunleysi 14 trúleysingja og særði a.m.k. 17. Rétta samhengið er sem sagt: múslími,jihad, trúleysingar, fjöldamorð.
![]() |
Blóðdropinn sem fyllir mælinn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Eldri færslur
- Janúar 2025
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 195725
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Ágúst H Bjarnason
-
Sigrún Jónsdóttir
-
Áslaug Friðriksdóttir
-
Ívar Pálsson
-
Jón Ríkharðsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Einar Gunnar Birgisson
-
Haukur Gunnarsson
-
Brjánn Guðjónsson
-
Brynjar Jóhannsson
-
Carl Jóhann Granz
-
Kristinn Ágúst Friðfinnsson
-
Inga Sæland Ástvaldsdóttir
-
Hrannar Baldursson
-
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
-
Drífa Kristjánsdóttir
-
Bjarni Kjartansson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Elle_
-
Einar Björn Bjarnason
-
Emil Örn Kristjánsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Friðrik Hansen Guðmundsson
-
Finnur Bárðarson
-
Jón Kristjánsson
-
Frjálshyggjufélagið
-
Geir Ágústsson
-
Gestur Halldórsson
-
Guðrún María Óskarsdóttir.
-
Guðmundur Pálsson
-
Guðrún Þóra Hjaltadóttir
-
Gústaf Níelsson
-
Haraldur Baldursson
-
Halldór Jónsson
-
Hallur Magnússon
-
Haraldur Haraldsson
-
Birgir Guðjónsson
-
Þorkell Sigurjónsson
-
Sigurbjörg Eiríksdóttir
-
Herdís Sigurjónsdóttir
-
Hildur Sif Thorarensen
-
Heimir Lárusson Fjeldsted
-
Högni Jóhann Sigurjónsson
-
Hólmdís Hjartardóttir
-
Sigurður Sveinsson
-
Hreinn Sigurðsson
-
Þráinn Jökull Elísson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Svava frá Strandbergi
-
Vilborg Traustadóttir
-
Jón Aðalsteinn Jónsson
-
Jón Ármann Steinsson
-
Jenný Stefanía Jensdóttir
-
Jens Guð
-
Jóhann Elíasson
-
Jónas Egilsson
-
Jón Magnússon
-
Jón Snæbjörnsson
-
Jón Valur Jensson
-
Júlíus Björnsson
-
Júlíus Valsson
-
Kalli Dan.
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kolbrún Stefánsdóttir
-
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
-
Kristin stjórnmálasamtök
-
Karl Tómasson
-
K.H.S.
-
Steingrímur Helgason
-
Lífsréttur
-
Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
-
Alfreð Símonarson
-
Marinó G. Njálsson
-
Markús frá Djúpalæk
-
Marta Guðjónsdóttir
-
Már Wolfgang Mixa
-
Jóhanna Magnúsdóttir
-
Gísli Tryggvason
-
Jón Svavarsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Ólafur Fr Mixa
-
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Predikarinn - Cacoethes scribendi
-
Rafn Gíslason
-
Ragnar Þór Ingólfsson
-
Ragnhildur Kolka
-
Rauða Ljónið
-
Árni Gunnarsson
-
Rósa Aðalsteinsdóttir
-
Salvör Kristjana Gissurardóttir
-
Sigurður Þórðarson
-
Sigurbjörn Sveinsson
-
Sigurður Kári Kristjánsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Sigurður Jónsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Jón Sveinsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Sigþrúður Þorfinnsdóttir
-
Sverrir Stormsker
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Svavar Alfreð Jónsson
-
Óli Björn Kárason
-
ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
-
Jón Þórhallsson
-
Þóra Guðmundsdóttir
-
Þórhallur Guðlaugsson
-
Tómas Ibsen Halldórsson
-
Gunnar Rögnvaldsson
-
Toshiki Toma
-
Ómar Valdimarsson
-
Úrsúla Jünemann
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Inga G Halldórsdóttir
Athugasemdir
Sæll Valdimar
Mikið rétt hjá þér. Ef maður vill fylgjast með því sem er að gerast í hinum stóra heimi notast maður ekki við íslenska fréttamiðla, en maður reynir að velja þá miðla sem leggja sig fram við að segja réttilega frá atburðum.
Höfuðpaur þessarar árásar Syed Farook 28ára og kona hans Tashfeen Malik 27ára. Það segir frá því að Syed sem var múslími hafi undanfarið lagt meira kapp á trúariðkun sína.
Það segir einnig frá því að þau hafi verið búin að leggja sprengigildrur í húsi sínu, nokkuð sem hefur tekið talsverðan tíma að undirbúa. Þannig að ekki var um skyndi ákvörðun að ræða, heldur vel undirbúna árás. Þau áttu greinilega ekki von á því að snúa aftur.
Sex mánaða barn þeirra skildu þau eftir hjá ættingja Syeds áður en farið var af stað í ódæðisverkið.
Það sem byssumenn í Bandaríkjunum óttast við að missa vopn sín í hendur stjórnvalda er að geta ekki varist öfgamönnum sem þeim sem hér um ræðir.
Tómas Ibsen Halldórsson, 3.12.2015 kl. 15:29
Semsagt að því að í þessu tilfelli var byssumaðurinn múslimi þá er þetta bara í allt öðru samhengi? Staðreyndin er sú að af öllum þeim fjöldamorðum sem við höfum heyrt af í Usa bara á þessu ári þá er þetta sennilega fyrsti morðinginn sem er múslimi og þá er þetta eitthvað öðruvísi? nei, klikkhausar finnast í öllum trúarbrögðum.
Óskar, 3.12.2015 kl. 17:42
Kaninn má réttilega vera stoltur af vopnaeign sinni, og enginn ljóður þar á.
Ekki falla fyrir fasistaáróðrinum. Vopn í almannahöndum eru bara af því góða.
Ásgrímur Hartmannsson, 3.12.2015 kl. 18:08
Óskar
slapp óvart inn með athugasemdina sína. Yfirleitt reglan að birta ekki frá þeim sem vilja koma fram nafnlausir né heldur frá þeim sem eru .með endalausar málalengingar og eru alveg ómóttækilegir fyrir helstu rökum.
Það er alls ekki rétt há Óskar að þetta sé eina hryðjuverk múslíma á þessu ári í USA. Í júlí vann ungur múslímivoðaverk í Chattanooga þar sem fimm lágu eftir dauðir og nokkrir særðir. Þá lágu 2 í valnum þegar jihadistar réðust á málfrelsisþing á árinu í Texas. Auk þessa komu lögregluyfirvöld í veg fyrir nokkrar árásir.
Múslímar eru ennþá hlutfallslega mjög fáir í USA. Því miður má fullyrða að þessum árásum mun fara fjölglandi á næstunni þar sem annars staðar.
Valdimar H Jóhannesson, 3.12.2015 kl. 21:13
Ásgrímur
almennt er ég ekki sammála þér um þetta. Ég er almennt hræddur við mikla vopnaeign almennings vegna þess hve miklar líkur eru til þess að voðaverk séu unnin í stundaræði.
Valdimar H Jóhannesson, 3.12.2015 kl. 21:16
Þakka þér fyrir að upplýsa menn hér, Valdimar. Ég hafði ekki fylgzt, að heitið gat, með þessu máli, eftir að rannsókn þess var lengra komið, og sé, að vitaskuld var ekki hægt að treysta okkar slöppu íslenzku fjölmiðlum fyrir því að koma því skýrt á framfæri, að þetta var enn eitt hryðjuverk öfgamúslima. En það var jafnvel ekkert um þetta mál í þykkum Mogga gærdagsins, ekki frekar en í Sjónvarpinu um kvöldið, og ekkert hef ég séð um, að þetta væru múslimar í erlendum fréttum Mbl.is, þetta virðist nýjasta fréttin þar um málið: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2015/12/03/thau_voru_i_herferd/ (3/12, frétt uppfærð þann morgun kl. 6:39), þar sem fram kemur, að "lögreglustjórinn í San Bernardino segir að fólkið hafi vitað nákvæmlega hvað það var að gera og þau hafi komið í herferð á samkomuna" (aðstæður á heimili þeirra, með sprengjulagningu, bera því líka vitni, að þetta var vandlega undirbúið). En ekkert er minnzt á islamska trú þeirra í Mbl.is-fréttinni, þótt nöfnin gætu bent lesendum á þann möguleika, m.a. að mágur karlsins heitir Farhan Khan. En nú eru, hjá þér, komnar fram óyggjandi upplýsingar um þetta mál.
Já, sannarlega fróðlegt, að þetta voru jihadistar. Svo er meðvirkur evrókratinn Óskar að reyna að malda hér í móinn gegn áyktunum þínum, Valdimar, en réttilega snýrðu hann niður með góðum rökum, og rétt er það hjá þér, að ekki eru margir islamstrúar í Bandaríkjunum, því að múslimar voru ekki nema 0,6% af Bandaríkjamönnum árið 2007, skv. áætluðu mati í CIA-Factbook.*
En Tómas Ibsen á líka mjög gott málefnalegt innlegg hér, þökk sé fyrir það, og mætti hann gjarnan skrifa um málið á vefsíðu samtaka okkar, KS, á Krist.blog.is.
* https://www.cia.gov/library/publications/the-world-factbook/geos/us.html
Jón Valur Jensson, 4.12.2015 kl. 05:16
Þetta er reyndar yngri frétt á Mbl.is: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2015/12/03/skotaras_numer_355_i_ar/ (kl. 10:18 í gæmorgun, uppfærð kl. 11:03),
en þar er sagt: "Ekki er vitað hvort árásin tengist hryðjuverkasamtökum en það hefur ekki verið útilokað af hálfu bandarísku alríkislögreglunni (FBI)."
Nú veit ég hins vegar miklu betur, þökk sé þér, Valdimar!
Jón Valur Jensson, 4.12.2015 kl. 05:26
Það er rétt að það lágu tveir mússar í götuni eftir skotbardaga fyrir utan listasýningu í Texas á skopteikningum af Múhameð og Allah.
Það er mikill fjöldi af fólki sem eru með leifi til að bera skotvopn í Texas og ef ég man rétt að þá var það lögreglumaður sem var utan vinnu sem kom auga á mússana og afstýrði illverkum þeirra. yfirleitt í Texas þá bera lögreglumenn skotvopn þó þeir séu ekki í vinnuni.
Það má segja að það sé heppni að ekki urðu fleirri sem létu lifið eða særðust í Kaliforníu, hugsið ykkur ef þessi indælu hjón hefðu notað eitthvað af þeim mörgu heimatilbúnu sprengjum sem fundust í heimakynum þessara friðsælu múslima.
Hvað ættli planið hafi verið með allar þessar sprengjur?
En að hlusta á fréttir hér í USA þá er ekki allt rétt sem er sagt t.d. á sjónvarpsstöðvunum, ég held það hafi verið NBC, skiptir ekki máli hvaða stöð það var, nær allar eru með nefið í afturenda Obama, það var einhver hryðjuverkasérfræðingur sem hélt því fram að indælu hjónin hafi verið hægri öfga sinna repúblikanar.
Nú vita menn betur, sem sagt ekki að trúa öllu sem fólk sér eða heyrir í fjölmiðlum, sérstaklega þegar atburðurinn er að gerast eða nýbúinn að gerast. Um að gera að fólk bíði eftir upplýsingum frá yfirvöldum.
Kveðja frá Las Vegas
Jóhann Kristinsson, 4.12.2015 kl. 15:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.