Leita í fréttum mbl.is

Dansað í kringum þvælufræði

Parísarsamkomulagið, samkomulag um loftslagsmál, sem komist var að í París á síðasta ári, og hefur verið undirritað fyrir hönd íslensku þjóðarinnar er sennilega eitthvað argasta bull sem heimurinn hefur séð til þessa og er þó af nógu að taka.

Markmiðið er að takmarka notkun jarðeldneytis með ærnum tilkostnaði og þar með valda minnkun aðallega á útblástri koltvísýrings út í andrúmsloftið. Með Þessu á að stuðla að því að hnattræn hlýnun verði innan við 2 gráður á Celcius og helst ekki nema 1.5 gráður. Ef þetta væri ekki svona grátlegt væri þetta sprenghlægilegt

Meðan heimurinn stendur frammi fyrir stórkostlegum vanda vegna ógnunar frá hinum íslamska heimi og jafnframt vegna ofurfjölgunar fólks í löndum Afríku sem er ófært um að framfleyta sér er verið að eyða orku og fjármunum í sjálfhverft bull vísindasamfélgsins sem keppist við að soga til sín fjármuni til að fóðra áframhaldandi hræðsluáróður sem stendur vægast sagt á þunnum ís. Og auðvitað fá þeir stuðning vinstra liðsins sem aldrei bregst dómgreindarleysið. Vesturlönd standa frammi fyrir hættu sem gæti eytt einhverri bestu menningu sem mannkyn hefur nokkru sinni búið við en í stað þess að bregðast við þeirri hættu af fullu afli er kröftunum varið í hreinræktaða þvælu.

Margir alvöru umhverfisvísindamenn hafa reynt að fá athygli á afar sannfærandi athugasemdir þeirra um þennan málflutning en fjölmiðlasamfélagið og háskólasamfélagið heldur áfram að dansa í kringum heimsendaspámennina. Meðal þeirra er dr Patrick Moore umhverfisfræðingur og einn af stofnendum Greenpeace, sem hafnar algjörlega fullyrðingum um hnattræna hlýnun og telur jafnvel að það gæti hjálpað lífi á jörðinni að auka á magn CO2, sem er grundvöllur alls lífs á jörðinni og er orðið í hættulega litlu magni!!!

Þeir sem voga sér að andmæla loftlagsmálapostulunum fá það óþvegið og eru kallaðir öllum þeim ónöfnum sem fyrirfinnast í málinu. En þegar slík nöfn ðhafa verið kölluð í síbylju fer merking þeirra að vera til marks um hið gagnstæðu hjá þeim sem þora að fara gegn fjöldanum.

Sjá málflutnings dr Moore.

https://www.youtube.com/watch?v=5Smhn1gL6Xg

 

.


mbl.is Bandaríkin og Kína skrifa undir Parísarsamkomulagið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 Já, það er nóg af tilfynningaklámi í umferð í dag. Góður pistill, takk.

Alexander Smári Gjöveraa (IP-tala skráð) 21.9.2016 kl. 16:38

2 Smámynd: Þorsteinn H. Gunnarsson

Ég held að náttúran sjá við þessu á sinn hátt, þó það sé mjög erfitt að fara gegn sjónarmiðum hóps vísindamanna.

Maður hefur lært það að við hærra hitastig t.d. í gufuböðum og á sumru þá gufar hraðar upp vatn og vökvi það hafur maður upplifað við þurkun heys og alveg ótúlegt hvað það getur gerst hratt, þannig að maður mundi ætla að það ætti þá sama við um úthöfin og úrkoma yrði tíðri og meiri.

Það mundi þá valda því að gróðurfar mundi aukast vegna aukinna votviðris oh hlýinda. Allavega er meiri kartöfluvöxtur hjá mér í sumar en í fyrra.

Við aukinn vöxt verður aukinn tillífun það er að plöntur taka upp meira coldíoxið co2 og eftir því sem mér skilst er sundum bætt aukaskammti í gróðurhúsarækt af co2. Plöntur mundu því því skila meir af súrefni o2 sem mundi gagnast spendýrum og brunahreyflinum.

Maður grunar að einhverjir séu að spá í losunarkvóta til að geta selt og braskað og meira segja er þetta til umræðu í skógrækt.

Svona lærði ég þessa formúlu og henni hefur ekki verið breytt svo ég viti. Hugsanlega virkar þetta hlægilega hjá mér, en ég verð þá bara að sitja uppi með það.

Ég man eftir því að einhverju sinni varð mikill fosfor magn í norskum firði svo vísindamenn töldu verða til vandræða. Þá komu einhver tegund af þörungum sem átu fosforinn og eyddi honum og vandamálið var fyrir bí. Svona er náttúran klók.

Mér er voða til efs að maðurinn fái eitthvað ráðið við þessi lögmál með einhverjum prósentum, en maður ætti ef til vill ekki alhæfa.

Það liggur svo sem fyrir að jöklar hopa, það er staðreynd.

Þorsteinn H. Gunnarsson, 21.9.2016 kl. 18:11

3 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jöklar hafa hopað og gengið fram til skiptis eftir sveiflum í veðurfari og enginn ástæða til þess núna að ætlað að svo muni ekki verða áfram. Jöklar voru miklu minni að umfangi við landnám er nú er. Vonandi halda þeir frekar áfram að minnka en að vaxa úr hófi. Margir umhverfisfræðingar telja frekar hættu á að loftslag muni fara kólnandi en hlýnandi enda erum við enn á jökultímum jarðar. Smávægileg hlýnum á síðustu öld segir nákvæmlega ekkert um framhaldið og því haldið fram að engin eða nær engin hlýnun hafi verið seinustu 20 ár þrátt fyrir mikla losun koltvísýrings enda engin fylgni á milli hitastig og koltvísýrings í sögu jarðar. Þetta er flókin fræði en er tekið eins og þau séu það ekki með fráleitum fullyrðingum um hlýnun jarðar af völdum gróðurhúsalofttegunda. Þó svo væri hver er fær um að segja hvað sé rétt hitastig fyrir jörðina. Væri ekki kannski jakvætt ef hitastig jarðar hækkaði einmitt um 2 gráður. Varla myndum við syrgja það hér á landi.Ef við trúum bullinu´í hv erju felast þá hagsmunir Íslands að samþykkja delluverkið?

Valdimar H Jóhannesson, 21.9.2016 kl. 19:46

4 Smámynd: Valdimar Samúelsson

 Vel sett upp hjá Patrick Moore en ég held að flestir vitið þetta orðin en problemin þetta e orðin peningafrekur iðnaður og vont að breyta stefnunni hjá Stjórnvöldum.

Ég er viss um að Trump snýr þessu við og örugglega Putin. Sarcosky ef hann kemst áfram ætlar að dissa þetta svo kannski er von. Það er rétt hjá honum að þessi fyrirtæki í Norður Ameríku dag ganga vil frá landinu og reynsla mín  vinnandi við olíu iðnaðinn í Alaska þá ræktuðu þeir allt upp sem var ræktað upp af Jarðýtum og meiri skógur en var áður.  

Valdimar Samúelsson, 21.9.2016 kl. 20:05

5 identicon

Valdimar, Þú segir að "Parísarsamkomulagið, [...] er sennilega eitthvað argasta bull sem heimurinn hefur séð til þessa og er þó af nógu að taka." Því spyr ég, byggir þú þetta á eigin rannsóknum, ef ekki, á hverju byggir þú þessa niðurstöðu?

Jónas Kr. (IP-tala skráð) 21.9.2016 kl. 20:53

6 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jónas Kr

Ég byggi það á sterkum rökum fjöldamargra vísindamanna sem hafa talað gegn þessum "trúarbrögðum" vinstri manna og ýmnisa sem hafa haft sterka hagsmuni af því að vera boðberar þessara fræða sem bera sífellt sterkari keim af trúarbrögðum,sem ekki leyfist að mótmæla.Einna sterkust áhrif hafði á mig bók Lars Tvede Det Kreative Samfund, sem styrkti skoðanir mínar enn frekar en einnig fjöldamargir sem tóku til máls til að mótmæla  Power Point sjóvi varaforsetands fyrrverandi og fallista í forsetakosningum.Man ekki í bili hvað hann hét enda má hann alveg gleymast og öll hans þvæla.

Valdimar H Jóhannesson, 21.9.2016 kl. 22:39

7 identicon

Ég held einmitt að við myndum syrgja það mjög á íslandi ef að hitastig hækkaði um 2°. Ef sjávarstaðan hækkaði um 1 meter mun minnst 10% af mannkyninu missa heimili sín og við getum reiknað með að hluti af því fólki leiti til Íslands (ekki að það sé endilega slæmt), þúsundir myndu deyja í hitabylgjum (bara í Evrópu) og þurrkar og vatnsskortur yrðu að gríðarmiklu vandamáli bæði hvað varðar drykkjarvatn og einnig landbúnað í heiminum.

Hér er tæplega þriggja mínútu myndband sem tekur þetta saman. Horfðu bara framhjá ástæðunni ef þú trúir ekki á hana, það eru afleiðingarnar sem eru alvarlegri en þær koma gróflega fram þarna.

https://www.youtube.com/watch?v=9GjrS8QbHmY

Jón Ingi Jónsson (IP-tala skráð) 22.9.2016 kl. 02:31

8 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Hvergi örlar á ummælum um það óhjákvæmilega viðfangsefni að bregðast við því að núverandi orkulindir gangi til þurrðar á þessari öld. Látið er eins og að jarðefnaeldsneyti gefi af sér sjálfbæra og endurnýjanlega orku.  

Ómar Ragnarsson, 22.9.2016 kl. 06:23

9 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Ómar

þú ert ekkert einn meðal umhverfispostulla heimsögunnar að hafa þungar áhyggjur. Þannig efndi Teddy Roposvelt forseti Bandaríkjanna til mikil fundar í Hvíta húsinu 13. maí 1908 til þess að koma því rækilega á framfæri að allar náttúruauðlindir heimsálfunnar væru að ganga sér til þurrðar, ekki aðeins jarðeldsneyti, málmar, skógar heldur einnig nýtilegt akurlendi. Allt gáfaðasta fólk landsins var á landinu og þó að boðskapur hins mikla foryngja umhverfissinna væri grafalvarlegur komst hann varla áfram með ræðuna vegna fagnaðarláta og varð að stöðva klukkustundar ræðu sína 18 sinnum.Teddy er ekki sá eini sem hefur verið með stór varnaðarorð, - sagan er troðfull af slíkum mönnum eins og þér. Ég kemst ekkert lengra með þetta að sinni nema til að fullyrða að orkuskortur ætti ekki að vera ofarlega á lista þínum um plágur heimsins.

Valdimar H Jóhannesson, 22.9.2016 kl. 10:15

10 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jón

allir gera sér grein fyrir því að sjávarborðið gæti hækkað, - já eða lækkað. Gallinn er bara sá að við getum ekkert gert til þess að breyta því heldur verðum við að aðlaga líf mannsins að duttlungum náttúrunnar. Ef þú hefðir hlustað að málflutning Moore sem ég setti streng á hefðir þú heyrt að koltvísýringur hefur ekki áhrif á hitastig jarðar að hans mati.Al Gore sem óð með Power Point skjal sitt um heiminn og rakaði saman peningum á heimsendaspádómum var með gröf sem áttu að sýna samhengi á milli hitastigs jarðar og koltvísýrings. Gallinn við grafið var að hann gerði afleiðinguna að orsök og öfugt. Hækkun á hitasigi kom fyrst en við það jókst koltvísýringur í lofti en ekki eins og hann hélt fram að fyrst hafi koltvísýringur aukist og við það hafi hitastig hækkað. Sem sagt það sem Al Gore hélt fram var tómt bull enda hann ekki vísindamaður heldur stjórnmálamaður.

Valdimar H Jóhannesson, 22.9.2016 kl. 10:24

11 identicon

Þó maður féllist á rök Moore að ekki sé raunveruleg fylgni milli magns koldíoxíðs i andrúmslofti og hlýnunar þá er eftir að bregðast við súrnun heimshafanna vegna aukins koldíoxíðs í þeim.  

   Ég fæ ekki séð að Moore neiti því að maðurinn hafi aukið við magn koldíoxíðs í umhverfinu og það sé meira að segja til bóta, þannig að þá skulum við ætla að maðurinn sé ábyrgur fyrir súrnun hafanna sem ku vera á mörkum þess að t.d. skeldýr nái að vinna kalk úr umhverfinu ef marka má vísindamenn sjá t.d. blogg Haralds eldfjallafræðings. 

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 22.9.2016 kl. 11:49

12 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Bjarni Gunnlaugur

Hefur orðið einhver súrnun hafanna?  Ég kannasat ekki við það enda fullyrt af mér fróðari mönnnum að það sé efnafræði- og eðlisfræðilegur ómöguleiki að það gæti gerst af völdum koltvísýrings. Getur þú eða eihver lagt fram ph tölur úthafanna yfir einhvern tíma sem lýsir þessu? Ef svo er vinsamlegast gerðu það.

Umræðan er full af fullyrðingum sem ekkert stendur á bak við nema viljinn til þess að hræða og drottna í gegnum þá fullyrðingum að viðkomandi einum sé treystandi til þess að halda umhverfi og þar með lífsskilyrðum okkar öruggum. Hræðslan er sterkt vopn og notað ósparlega.

Valdimar H Jóhannesson, 22.9.2016 kl. 13:32

13 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Norðmaðurinn Ivar Giæver   fékk nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 1973 vegna rannsókna í skammtafræði á hálfleiðurum og ofurleiðni. Á samkomu nóbelsverðlaunahafa  1. júlí 2015 hélt hann ræðu sem eftir var tekið.

Ívar lauk prófi í vélaverkfræði frá Þrándheimi árið 1952, fluttist síðan til Kanada og þaðan til Bandaríkjanna þar sem hann lauk doktorsprófi árið 1964.

Enginn ætti að láta þetta fram hjá sér fara og hlusta vel á norðmanninn Ivar Giaever. Hann talar mjög skýrt og útskýrir máls sitt þannig að allir ættu að skilja vel. Hann er greinilega með brjóstvitið og fræðin á hreinu. Þessi heiðursmaður er fæddur árið 1929.

Erindið fjallar um mál málanna, þ.e. hnatthlýnun, hækkun sjávarborðs, óveður og fleira ...

Það er vel þess virði að hlusta á Ívar.

Smella hér til að komast á vefsíðu Nóbels-nefndarinnar þar sem hlusta má á Ivar Giæver:

http://www.mediatheque.lindau-nobel.org/abstracts/34535/ivar-giaever-global-warming-revisited/laureate-giaever

Einnig má smella hér á YouTube:

 

https://www.youtube.com/watch?v=Dk60CUkf3Kw

 

 

Ágúst H Bjarnason, 22.9.2016 kl. 14:14

14 identicon

Súrnun hafsins er auðmælanleg. Ef einhver hefur áhuga á að fá gögn um áhrif hennar þá hlýtur að vera auðvelt að fá þau, t.d. hjá Hafró.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 22.9.2016 kl. 14:22

15 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Ágúst

þakka þér fyrir þetta innlegg í umræðuna. Ég var raunar búinn að hlusta á Ivar áður þannig að ég þekkti til sjónarmiða hans. Það er hinsvegar þarft að hafa þetta hérna ef einhverjir skyldu lesa svo langt í athugasemdum að sjá þetta.  Heldur þú að þetta gæti dugað svona mönnum eins og Ómari Ragnarssyni og fleiri ofsatrúarmönnum?

Valdimar H Jóhannesson, 22.9.2016 kl. 16:58

16 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Hörður

þeir sem halda fram kenningum um súrnum hafanna hafa engan áhuga á slíkum gögnum. Þá myndu þeir missa vopnin úr höndunum!

Valdimar H Jóhannesson, 22.9.2016 kl. 17:02

17 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Hér er annar Nóbel verðlaunahafi Kary Mullis sem fékk verðlaunin 1993 í efnafræði og dregur hugmyndir um hnattræna hlýnun sundur og saman í háði sem hreinræktaðs bulls. Kannski veit Ómar Ragnarsson, Obama og Vinstri grænir og Samfylkingarmenn betur?  Þessir Nóbels verðlaunahafar eru sennilega ekki nærri því eins ábúðamiklir né vandaðir menn eins og vinstri elítan á Íslandi svo ekki sé nú talað um Obama sem fullyrðir fullum fetum að ekkert vandamál heimsins nálgist vandann vegna hnattrænnar hlýnunar. Heimsendir framundan hvorki meira né minna.

https://www.youtube.com/watch?v=vc6CHHrCV7g

Valdimar H Jóhannesson, 22.9.2016 kl. 18:14

18 identicon

Já, víst fékk Mullis Nóbelsverðlaunin, en hann fékk þau ekki fyrir loftslagsvísindi.

Svo ættu þeir sem trúa honum, menn eins og þú, Valdimar Jóhannesson, að svara því hvort þeir trúa því líka að Mullis hafi átt fund með sjálflýsandi grænum þvottabirni í fjallakofa í Kaliforníu á níunda áratugnum, eins og hann hefur haldið fram, og að það sé tóm þvæla að HIV-veiran sé orsök alnæmis. Já, og líka þetta: Tekur þú líka mark á stjörnuspám, Valdimar, eins og Kary Mullis? 

Jóhannes Valdimarsson (IP-tala skráð) 22.9.2016 kl. 18:45

19 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Jóhannes

ég þykist vita að þú sért ekki hinn eini sanni Jóhannes Valdimarsson í mínu lífi, þ.e. sonur minn. En gott og vel. Nú er þetta að verða gaman og alvöru spurningar komnar í gang. Við erum ekki eins nákunnugir ég og Kary Mullis eins og þið virðist vera svo ég treysti mér ekki til að vita hvaða skoððanir hann hefur á öllum málum en í loftlagsmálum treysti ég honum betur en t.d. þér. Ómari Ragnarssyni og Obama til samans.

Valdimar H Jóhannesson, 22.9.2016 kl. 18:59

20 identicon

Er það bara vegna þess að hann Kary er sammála þér Valdimar, er það hin hái staðall sem þú hefur fyrir sannleikan?

Hefuru kannski ekki skoðað feril hans Moore heldur, sem bara vill svo til að starfræki "ráðgjafa" fyrirtæki sem starfar fyrir ógurlega mikið af fyrirtækjum sem hafa hag af því að núverandi ástand haldi áfram. Neib, líklegast engir hagsmunaárekstrar þar.

Mér finnst þetta myndband betra með honum Moore, https://youtu.be/9HzSOrbvNUQ?t=42s

Elfar Aðalsteinn Ingvarsson (IP-tala skráð) 22.9.2016 kl. 19:31

21 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Innlegg mitt hér að ofan varð nokkuð litskrúðugt. Ástæðan er að ég ætlaði að stytta mér leið og afritaði texta af gamalli bloggsíðu minni. Bakgrunnurinn fylgdi með :-)

http://agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/1874005/

Ágúst H Bjarnason, 22.9.2016 kl. 20:00

22 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Erindi Ívars em vísað var á hér fyrir ofan er frá árinu 2015. Hér er annað eldra.

Erindi Ívars Giaever (Giæver á norsku) frá samkomu Nóbelsverðlaunahafa árið 2012 er hér í þrem hlutum. Hann fjallar um loftslagsmálin frá sjónarhóli Nóbelsverðlaunahafa í eðlisfræði.  Mjög fróðlegt:

https://www.youtube.com/watch?v=fYpxBSV8Qqw

https://www.youtube.com/watch?v=yucm9jrswDs

https://www.youtube.com/watch?v=fYpxBSV8Qqw


Ágúst H Bjarnason, 22.9.2016 kl. 20:21

23 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Elfar

æ, æ, viltu að þú sért tekinn alvarlega. Þá verður þú að vanda þig svolítið betur.

Valdimar H Jóhannesson, 22.9.2016 kl. 21:44

24 identicon

Hér er tilvitnun í lifandi vísindi þar sem er vitnað í hina ýmsu vísindamenn varðandi súrnun hafanna: http://www.visindi.is/grein/ognvekjandi-syrubad

Hér er svo íslenskur vinkill á sýrustigsmælingum hafsins: http://www.hafro.is/hafradstefna/jon.ol.syrustig.poster.pdf

Hér er svo blog Haraldar Sigurðssonar:http://vulkan.blog.is/blog/vulkan/entry/1568277/

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 23.9.2016 kl. 00:04

25 identicon

Það skal að vísu nefnt að í athugasemd við blog Haraldar er vísað í þessa grein um að kenningar um súrnun heimshafanna standist ekki: http://joannenova.com.au/2015/01/oceans-not-acidifying-scientists-hid-80-years-of-ph-data/

Hefði verið fróðlegt að sjá Harald svara því sem hann gerði ekki. 

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 23.9.2016 kl. 00:12

26 Smámynd: Ómar Gíslason

Takk fyrir góður pistill. Fyrir árið 1250 voru engir jöklar hér á landi á hvaða forsendum var það? Var það ekki vegna þess að það var heitara og kólnaði síðan. Jörðin sjálf fer á milli kulda og hita.

Ómar Gíslason, 23.9.2016 kl. 09:07

27 Smámynd: Halldór Jónsson

Mér dámaði líka við myndina sem sýnir hvernig aukning framleiðslu lífræns eldsneytis í stað þess að nota olíuna sem nog er af veldur hungursneyð í Afríku. Sá endi er ekki skoðaður þegar við Íslendingar rembumst við að flytja þetta inn okkur til kostnaðarauka við rekstur bílanna en vorkennum svo upphátt í hræsninni  Afríkubúumsem berjast við hungrið af því að verð á maísnum er keyrt upp af þessum heimsendaspámönnm.

Halldór Jónsson, 1.10.2016 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 194868

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband