3.10.2016 | 22:54
RÚV í vörnina fyrir EU að vanda
Það er orðið verulega hallærislegt hvað unnt er orðið að treysta því að RÚV hallar ævinlega réttu máli í öllu hvað varðar óheppilegar fréttir fyrir Evrópusambandið. Þó að það virðist varla geta staðist læðist sá grunur sterklega að mér að starfsmenn fréttastofu RÚV séu að gæta persónulegra hagsmuna þegar Evrópusambandið er annars vegar. Spurningin er þessi: Hvort á RÚV að þjóna hagsmunum íslensks almennings með réttum fréttum eða hagsmunum stjórnmálaflokka sem hafa það á stefnuskrá sinni að koma Íslandi inn í Evrópusambandið?
Síðasta dæmið um fráleitan fréttaflutning RÚV eru fréttir um þjóðaratkvæðagreiðsluna í Ungverjalandi þar sem þjóðin var spurð hvort hún vildi una tilskipun Evrópusambandsins um að taka við ákveðnum kvóta á flóttmönnum. Í nokkrum fréttatímum, sem ég heyrði í dag, var hamrað á því að þjóðaratkvæðagreiðslan væri ógild vegna þess að kjörsókn var innan 50% marksins og úrkoman því ekki bindandi. Í engu var getið að hvorki meira né minna en 98% gildra atkvæða höfnuðu því að Ungverjaland tæki við ákveðnum kvóta flóttamanna að tilskipan Evrópusambandsins. Aðeins 2% þeirra sem skiluðu gildum atkvæðum féllust á að Ungverjum bæri að fara að tilskipun Evrópusambandsins. Þó að fylgjendur tilskipunar EU hefðu að einhverju leyti kosið að sitja heima er einnig ljóst að þeir gerða það vegna þess að niðurstaða í þessum anda lá alveg ljós fyrir þó að þeir hefðu allir mætt á kjörstað. Einnig má að líkum ráða, að margir þessara fylgjenda byggðu afstöðu sína á ótta við að stuða ráðamenn í Brussel og gætu stjórnvöld í Budapest haft verra af. Það er ekki svo langt um liðið síðan Ungverjar höfðu ástæðu til að óttast miðstýrt ofurþjóðlegt vald, sem þá var í Moskvu en nú er í Brussel.
Þó að andstæðingar Viktors Orban, m.a. á fréttastofu RÚV, telji þessa niðurstöðu ekki bindandi fyrir stjórnvöld í Budapest má benda á það að lægra hlutfall kjósandi greiddi atkvæði á sínum tíma um hvort Ungverjaland ætti að gerast aðilar að Evrópusambandinu. Það var ekki aðal frétt RÚV þá að Ungverjar hefðu fellt tillögu um að gerast aðili að sambandinu með því að ná ekki tilskyldu 50% marki svo að þjóðaratkvæðagreiðslan væri bindandi.
Þessi einróma þjóðaratkvæðagreiðsla er áfall fyrir Evrópusambandið m.a. vegna þess að hún vinnur gegn slökum vinnubrögðum sambandsins í flóttamannamálum álfunnar. Þessi niðurstaða mun án nokkurs efa kveikja elda út um alla Evrópu hvort sem RÚV líkar það betur eða ver. Almenningur í öllum Evrópulöndum er að vakna upp við þann vonda draum að mennirnir í fílabeinsturninum í Brussel hefur svikið það í þessu örlagaríka máli. Almenningur mun í vaxandi mæli kjósa þá flokka sem hafa á stefnuskrá sinni að koma á landamæravörslu, stöðva glórulausan innflutning á fólki sem vill ekki eða getur ekki aðlagast og vilja fara út úr sambandinu sem líkist í sífellu meira Sovétríkjunum sálugu enda með sömu tengund af innviðum í meira eða minna mæli.
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir
Athugasemdir
Man ekki betur en fréttastofa RÚV fjallaði iðulega um atkvæðagreiðsluna um nokkur álitamál vegna hugsanlegra stjórarskrárbreytinga og talið þar um merka niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu að ræða þó að einungis þriðjungur íslenskra kjósenda kysu í þeim kosningum.
Svo er nú annað að Fréttastofa RÚV kannar ekkert hvað margir kjósa að jafnaði í hlutfallslega í Ungverjalandi. Til samanburðar má benda á að iðulega kjósa færri en 50% kjósenda í forsetakosningum í Bandaríkjunum og engin véfengir þær niðurstöður.
Vandamál Fréttastofu RÚV er fyrst og fremst hvað hún er léleg í öðru lagi hvað hún er pólitísk blinduð í ákveðnum málum og í þriðja lagi stórbrenglað fréttamat sem flestir sjá sem hlusta þó ekki sé nema á tvo til þrjá fréttatíma. Þess vegna er áhorf líka minnkandi á RÚV fréttir.
Jón Magnússon, 3.10.2016 kl. 23:07
Jón
þó að það sé vaxandi fjöldi manna sem afla sér frétta á erlendum netmiðlum eru það langt frá því meirihlutinn. Flestir byggja á því sem fram kemur í ljósvakamiðlunum og Fréttablaðinu sem er með sama markinu brennt að sía allar fréttir í gegnum sömu síuna og fréttamenn RÚV. Fréttamenn á Íslandi í dag eru því miður afar illa upplýstir og hafa misst sjónir á því hlutverki þeirra að leggja fyrir staðreyndir og leyfa síðan þeim sem njóta þjónustunnar að myndá sér sjálfir skoðanir. 'i þá daga þegar ég var blaðamaður taldi maður ósmæmilegt að setja eigin skoðanir inn í fréttir. Það var til marks um lélega blaðamennsku. Skoðanir áttu heima í leiðurum og skoðanagreinum undir nafni höflundur.
Valdimar H Jóhannesson, 4.10.2016 kl. 00:02
Kostningaþáttaka var 40,41% Sjá: http://valasztas.hu/en/ref2016/481/481_0_index.html
Til samanburðar, þingkosningar 2014 http://valasztas.hu//en/ogyv2014/415/415_0_index.html Kostningaþáttaka: 61,73%
Kosningarnar núna sýna aðallega hversu heimskulegt er að hafa lágmarksþátttöku í kostningum. Þá geta menn kosið með því að mæta ekki á kjörstað. Einnig hlýtur það að vera áfall fyrir Fidesz, sem hefur um 67% fylgi á þingi, að fá ekki fleiri atkvæði.
Jónas Kr. (IP-tala skráð) 4.10.2016 kl. 11:58
Jónas
það er reglan í öllum kosningum sem varða Evrópusambandið að þátttakan er mjög dræm og lýsir auðvitað viðhorfi kjósenda að þeir ráði í raun engu um hvernig mál fara hjá EU enda lýðræðið þar aðeins upp á punt.Glöggir menn ( þ.e. ekki samfó-istar) hafa marg bent á þennan vanda EU enda sé uppbygging þess ótrúlega lík sýsteminu hjá Sovétríkjunum sem engum heilvita manni datt til hugar að líkja við lýðræði af neinu tagi nema auðvitað þeim sem voru í Alþýðubandalaginu og svo einhverjum sem voru í öðrum vinstri flokkum. Nú virðist þessi blinda ráða ríkjum í meirihluta íslenskra stjórnmálaflokka og meira að segja þeim sem þykjast vera hægra meginn eins og Viðreisn þykist vera.
Valdimar H Jóhannesson, 4.10.2016 kl. 14:26
Ég held að við verðum að fá þjóðar kosningar hvort fólk vilji RÚV allmennt en eins og mál standa þá klemmst engin nálægt þeim. Ég er búinn að reyna í um tvö ár að fá starfsmanna símaskrá og mér var sagt fyrst að hún væri í vinnslu og ætti að koma fyrir þessi áramót. Þegar ég athugaði það fyrir stuttu þá var mér tilkynnt að það væri hætt við málið. Sér fólk ekki að þeir vilja ekki að almenningur sé með nefið ofan í þeirra málum
Valdimar Samúelsson, 4.10.2016 kl. 20:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.