4.5.2017 | 22:23
Íslensk lygapressa ræðst á Spencer
Sem gamalreyndum blaðamanni á þeim tímum þegar pólitísku blöðin voru alls ráðandi og allir vændu alla um lygar verð ég að viðurkenna að mér er brugðið yfir því hvað fjölmiðlamenn nútímans eru ótrúlega ósvífnir í beitingu ósanninda. Ósannindi þeirra eru langt umfram það sem ég hef nokkurn tímann áður reynt, en á dögum kalda stríðsins reyndu menn þó ýmislegt til að koma höggi á andstæðinginn.
Í póltískri umræðu undanfarin misseri á erlendum vettvangi hefur glumið í eyrum heldur þreytandi síbylja með ósökunum um fake news og Lügenpresse og það svo mjög að slíkar ásakanir eru hættar að virka og orðinn hluti af þreytandi skarkala pólitísks þras, en ég átti síst von á því að þessi lágmenning yrði einnig hluti af íslenskum veruleika.
En nú bregður svo við að ég verð vitni að ósvífnari lygum íslenskra fjölmiðla en ég trúði að fyrra bragði að ég gæti átt von á. Fimm íslenskir fjölmiðlar hafa gengið svo á svig við sannleikann að í raun ætti að sækja þá til saka fyrir mannskemmandi ósannindi.
Vegna komu Bandaríkjamannsins Roberts Spencer, sérfræðings um málefni íslam, í næstu viku hafa þessir fjölmiðlar einsett sér að breiða út óhróður um hann með ósönnum sökum í þeim tilgangi að hann nái ekki eyrum landsmanna. Þessir fjölmiðlar hafa lýst Robert Spencer sem algjörri ófreskju, neo-nazista, gyðingahatara, manni sem hefur gerst sekur margsinnis um lögbrot. Hann hafi átt að vera sekur um voðaverks Breivik, hatur á múslímum o.s.fr. Ekkert af þessu er satt og þarf ekki að efa að Robert Spencer gæti leikandi unnið meiðyrðamál gegn þessum fjölmiðlum.
Samtök íslamista um heim allan ólmast sem mest þau mega gegn Spencer vegna yfirirburðarþekkingar hans á íslam og hve óhræddur hann hefur verið að segja sannleikann um þessa ógeðfelldu hugmyndafræði sem er fyrst og fremst pólitísk hugmyndafræði um það hvernig eigi að haga allri stjórn á lífi fólks jafnt í opinberu- sem einkalífi og hvernig vinna eigi allan heiminn undir yfirráð íslam með jihad.
Þeir megna ekki að hafa Spencer undir með málefnalegum rökum. Því eru farnar ófrægingarherferðir sem lítið sigldir íslenskir fjölmiðlamenn gleypa við án nokkurrar sjálfstæðrar skoðunar eða hugsunar. Ég hef lesið mikið eftir Spencer eins og marga aðra um íslam og get borið það að hann er málefnalegur fram í fingurgóma, en leggur óhikað fram staðreyndir jafnvel þó að íslamistum líki það ekki enda verður hann að fara huldu höfði til þess að komast hjá líkamsmeiðingum. Það er þó eftirtektarvert að Spencer er að ná til vaxandi fjölda hófsamra múslíma sem vilja gera tilraun til þess að nútímavæða íslam og verður fyrirlestur hans og samstarfskonu hans m.a. um það.
Íslenskir fjölmiðlar eru í raun að höggva í sama knérunn og espa upp brjálæðinga sem gætu leynst hér á landi meðal múslíma eins og víða annars staöar þó að mikill meiri hluti múslíma myndi aldrei vinna slík verk.
Hvort þetta athæfi íslensku fjölmiðlanna ber tilætlaðan árangur eða hvort þessi óskemmtilegu vinnubrögð vekja enn meiri athygli á fyrirlestri Spencer og samstarfskonu hans Christine Willlimas á Grand Hotel næsta fimmudag kl 20 á eftir að koma í ljós. Málefnið sem þau taka fyrir á þó mikið erindi við okkur Íslendinga núna þegar við stöndum frammi fyrir að sama þróun er að verða hérna og öll Evrópa líður undir.
Eldri færslur
- Nóvember 2024
- Júlí 2024
- Maí 2024
- Janúar 2024
- Júní 2023
- Júlí 2022
- Júní 2022
- Mars 2022
- Ágúst 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Júlí 2020
- Desember 2019
- Október 2019
- Ágúst 2019
- Maí 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Júlí 2018
- Maí 2018
- Mars 2018
- Október 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Janúar 2015
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Febrúar 2013
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Mars 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Nóvember 2010
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Ágúst H Bjarnason
- Sigrún Jónsdóttir
- Áslaug Friðriksdóttir
- Ívar Pálsson
- Jón Ríkharðsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Einar Gunnar Birgisson
- Haukur Gunnarsson
- Brjánn Guðjónsson
- Brynjar Jóhannsson
- Carl Jóhann Granz
- Kristinn Ágúst Friðfinnsson
- Inga Sæland Ástvaldsdóttir
- Hrannar Baldursson
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Drífa Kristjánsdóttir
- Bjarni Kjartansson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Elle_
- Einar Björn Bjarnason
- Emil Örn Kristjánsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Finnur Bárðarson
- Jón Kristjánsson
- Frjálshyggjufélagið
- Geir Ágústsson
- Gestur Halldórsson
- Guðrún María Óskarsdóttir.
- Guðmundur Pálsson
- Guðrún Þóra Hjaltadóttir
- Gústaf Níelsson
- Haraldur Baldursson
- Halldór Jónsson
- Hallur Magnússon
- Haraldur Haraldsson
- Birgir Guðjónsson
- Þorkell Sigurjónsson
- Sigurbjörg Eiríksdóttir
- Herdís Sigurjónsdóttir
- Hildur Sif Thorarensen
- Heimir Lárusson Fjeldsted
- Högni Jóhann Sigurjónsson
- Hólmdís Hjartardóttir
- Sigurður Sveinsson
- Hreinn Sigurðsson
- Þráinn Jökull Elísson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Svava frá Strandbergi
- Vilborg Traustadóttir
- Jón Aðalsteinn Jónsson
- Jón Ármann Steinsson
- Jenný Stefanía Jensdóttir
- Jens Guð
- Jóhann Elíasson
- Jónas Egilsson
- Jón Magnússon
- Jón Snæbjörnsson
- Jón Valur Jensson
- Júlíus Björnsson
- Júlíus Valsson
- Kalli Dan.
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolbrún Stefánsdóttir
- Jakobína Ingunn Ólafsdóttir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Karl Tómasson
- K.H.S.
- Steingrímur Helgason
- Lífsréttur
- Magnús Ragnar (Maggi Raggi).
- Alfreð Símonarson
- Marinó G. Njálsson
- Markús frá Djúpalæk
- Marta Guðjónsdóttir
- Már Wolfgang Mixa
- Jóhanna Magnúsdóttir
- Gísli Tryggvason
- Jón Svavarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Ólafur Fr Mixa
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Rafn Gíslason
- Ragnar Þór Ingólfsson
- Ragnhildur Kolka
- Rauða Ljónið
- Árni Gunnarsson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Salvör Kristjana Gissurardóttir
- Sigurður Þórðarson
- Sigurbjörn Sveinsson
- Sigurður Kári Kristjánsson
- Sigurjón Þórðarson
- Sigurður Jónsson
- Óskar Þorkelsson
- Jón Sveinsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Sigþrúður Þorfinnsdóttir
- Sverrir Stormsker
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Svavar Alfreð Jónsson
- Óli Björn Kárason
- ÞJÓÐARHEIÐUR - SAMTÖK GEGN ICESAVE
- Jón Þórhallsson
- Þóra Guðmundsdóttir
- Þórhallur Guðlaugsson
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Gunnar Rögnvaldsson
- Toshiki Toma
- Ómar Valdimarsson
- Úrsúla Jünemann
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Inga G Halldórsdóttir
Athugasemdir
Sæll Valdimar
Fjölmiðlar sem hrópa "Fake News" eru oftast þeir miðlar sem flytja falskar fréttir (fake news). Íslenskir fjölmiðlar eins og bandarískir eru ekki vandaðir að virðingu sinni og flytja falskar fréttir til að koma áróðri pólitískrar rétthugsunar að hlustendum/lesendum sínum.
Það er ekki hægt að taka fréttaflutningi íslenskra "fréttamiðla" alvarlega án gagnrýninnar hugsunar. Hið sorglega er að almenningur lætur þessa miðla mata sig af áróðri og lygum.
Tómas Ibsen Halldórsson, 4.5.2017 kl. 22:38
Eru blaðamenn að þjóna húsbændum sínum?
Ef Sádar eiga, stjórna 80% af Federal Reserve, það er eiga dollarann í Bandaríkjunum, Bandaríkjamenn sjálfir eiga ekkert í dollaranum, er þá ekki líklegt að sömu 0flin eigi stóru fréttastofurnar, og alla fjölmiðlana.
Einnig senda sömu öflin falskar fréttir til að við trúum síður réttu fréttunum.
..insider with House of Saud connections, wrote ..that information he acquired from Saudi bankers cited 80% ownership of the New York Federal Reserve Bank- by far the most powerful Fed branch- by just eight families, four of which reside in the US.
Egilsstaðir, 05.05.2017 Jónas Gunnlaugsson
Jónas Gunnlaugsson, 5.5.2017 kl. 10:36
Sæll Jónas
ekki þori ég að fullyrða neitt slíkt en það vekur óneitanlega athygli að allir þessir fréttamiðlar koma með sömu röngu staðhæfingarnar. Þau beita lygum til að ófrægja Robert Spencer og okkur sem tengjumst komu hans hingað og eru með nánast sömu framsetningu, sem vekur grun um að þessu sé stjórnað að utan. CAIR,samtök múslíma í Bandaríkjunum, sem hafa mikil tengsli við Múslímska Bræðralagið og hryðjuverkasamtökin Hamas, liggja beinust við.
Valdimar H Jóhannesson, 5.5.2017 kl. 11:38
Sæll Tómas Ibsen
þó að koma Roberts Spencer leiði ekkert annað af sér en að sýna hverjir þessir fjölmiðlar eru þá er vissum árangri nað með komu hans hingað. Það verður fróðlegt að sjá það á næstum dögum hverjir eru færir um að standa í fæturna og láta ekki bugast gegn ofstækinu.
Valdimar H Jóhannesson, 5.5.2017 kl. 11:40
Sæll Valdimar og takk fyrir að reyna endalaust
að opna augun fyrir sofandi almúganum varðandi
ISLAM.
Þegar kemur að rökræðum og ábendingum varðandi
ISLAM, þá er alveg merkilegt, að í okkar upplýsta
þjóðfélagi, stekkur til fullt af fólki og er tilbúið
að verja þennan óskaðpnað sem hann er og ekkert annað.
ISLAM er ekket annað en stjórntæki og gert til þess
að stjórna lífi fólks heima og að heiman.
Þegar grannt er skoðað, sem að sjálfsögðu má ekki
samkvæmt rétttrúnaðarpólitík, þá er þessi almáttugi
Allah þeirra, fjöldamorðingi, bananíðingur og eitt það
versta sem hægt er að setja í mannsmynd.
Ef einhverjum dytti í hug, að tilbiðja Hitler, þá
er hann settur í fangelsi. Hans afrek voru nokkrar
milljónir í dauðann, bæði gyðingar og hermenn en
Stalín gerði betur. Hann fjórfaldið það sem Hitler gerði.
Samt sem áður, þá á ISLAM heimsmetið.
Eftir fjórtán hundruð ár, er ennþá fólk tekið af lífi
útaf ISLAM. Bara á hverjum Föstudegi i Jeddah, þá
er fólk afhausað, handahoggið og allt í nafni þessarar
yndislegu trúar. Enginn segir neitt.
Við, rasistarnir, fasistarnir, aumingjarnir, hatararnir,
vitleysingarnir, ég held ég gleymi engvu,
þurfum að upplifa það, að okkar ábendingar og tilraun til þess
að vekja fólk af þessum þyrnirósarsvefni varðandi ISLAM,
fáum í hausunn á okkur allt sem er nefnt hér að ofan.
Ef það kemur einhver frétt varðani ISLAM, og það sem það
stendur fyrir,þá er það "Fake news"., "Zíóniasta áróður" og
það allra besta "Þýðinigarvillur á Kóraninum".
Við höfum og sjáum vandamálin í Skandinavíu sem
standa okkur næst.
Af hverju vill fólk ekki læra af því sem okkar
nágrannar eru að lenda í....?????
Þurfa Íslendingar endalaust að finna upp
hjólið sem endar alltaf ferkantað...????
Sigurður Kristján Hjaltested, 7.5.2017 kl. 03:06
Sæll Valdimar og aðrir sem hér skrifa. Mig langar til að spyrja ykkur, sérstaklega kannski Valdimar en hinir mega líka svara fyrir sig og sína parta ef þeir vilja:
Hvað viljið þið gera varðandi þá múslima sem búa á Íslandi? Mig langar til að þið svarið frá þeim sjónarhóli að þið mættuð ráða nákvæmlega til hvaða ráða væri gripið gagnvart vánni sem að Íslandi steðjar vegna múslima og hugmyndafræði þeirra.
Með von um málefnaleg svör.
Erik (IP-tala skráð) 7.5.2017 kl. 22:27
Sigurður
Ég hef engu við þetta að bæta nema þú nefndir Allah þegar þú ættir að nefna Muhameð. Það er svo miklu þægilegra að vera í liðinu sem flýtur sofandi að feigðarósi heldur í því liðinu sem reynir að róa á móti straumnum. Það freistar allra að fela sig á bak við aðra. Treysta því að aðrir fórni sér og blanda sér í þann hópinn sem minna reynir á. Margir munu seinna halda því fram að þeir hafi alltaf verið í okkar liði. Þetta gildir ekki síst um vinstri mennina sem kannast nú ekki við að þeir hafi nokkurn tímann aðhyllst kommúnisma, hvað þá dýrkið öll ómennin þeirra.
Valdimar H Jóhannesson, 7.5.2017 kl. 23:38
Erik
þetta er allt of stór spurning.Henni má þó svara með því að ég er ekki á mðti neinum manni sakir uppruna hans. Andstaða mín er gegn hugmyndafræðinni íslam. Þeir sem ekki vilja gefa afslátt af þeirri hugmyndafræði hafa ekkert hér að gera enda samrýmist sú hugmyndafræði ekki lögum okkar, siðvenjum eða líferni almennt.Íslam mun rífa í sundur friðinn hérna eins og annars staðar. Því vil ég afstýra.Þeir sem vilja halda í kennisetningar íslam verða aldrei til friðs í íslensku samfélagi.
Valdimar H Jóhannesson, 7.5.2017 kl. 23:43
Valdimar, þú segir þetta of stóra spurningu en segir svo líka að þú viljir afstýra því að Íslam rífi í sundur friðinn hérna eins og annars staðar. Ég spyr þig þá: Hvernig viltu afstýra því? Hvað viltu gera? Hver er lausnin?
Erik (IP-tala skráð) 7.5.2017 kl. 23:51
Erik
Ég ætlaði raunar ekki að svara þér í fyrsta skiptið þar sem ég hef það sem almenna stefnu að svara ekki nafnleysingum. Gerðu grein fyrir þér og þá er kannski smávon að ég fari að fara í langar pælingar með þér. Reyndu ekki að senda mér aftur nafnlausa athugasemd. Svara hvorki nafnleysingum né þeim sem ekki kunna almenna mannasiði. Málefnalegar umræður er ég alltaf til í. Skítkast verða menn að stunda annars staðar en á blogg síðu minni!
Valdimar H Jóhannesson, 8.5.2017 kl. 00:14
Þetta er frekar heimskuleg spurning hjá Erik. Í fyrsta lagi ræður hvorki Valdimar, né neinn einn maður, hver kemur inn í landið. Ef það verður hinsvegar tekið fyrir það, að hver sem er geti labbað inn á íslenska grundu og gerst áskrifandi að himinháum bótum úr tómum ríkissjóð, fyrir utan allan annan fjárhagslegan hliðarkostnað og félagslegu vandamálin sem af því hlýst, þá mun straumurinn sjálfkrafa minnka.
Ég er hinsvegar hlynntur því að Vesturlönd aðstoði vanþróuðu löndin í baráttunni gegn fátækt, en ekki með því að hleypa öllum þriðja heiminum inn í Evrópu og enn síður með dekri við spillta harðstjóra. Þvert á móti á að senda þau skilaboð, að við getum einungis hjálpað þeim sem verða kyrrir í sínum eigin löndum og leitist við að byggja samfélagið upp, í staðinn fyrir að ganga um höggvandi hausinn hver af öðrum. Þá geti fólkið búist við aðstoð, en þeir sem reyni að smygla sér til Vesturlanda, verði reknir til baka sömu leið og þeir komu.
Theódór Norðkvist, 8.5.2017 kl. 15:00
heyr heyr Theódór Norðkvist.
Merry (IP-tala skráð) 9.5.2017 kl. 21:00
Og heyr heyr Sigurður Kristján Hjaltested.
Merry (IP-tala skráð) 9.5.2017 kl. 21:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.