Leita í fréttum mbl.is

Hvað kæmi í staðinn?

Vörslumenn ranglætisins í gjafakvótakerfinu tönnlast endalaust á því að andstæðingar kvótakerfisins bendi ekki á aðra möguleika til fiskveiðistjórnunar. Slíkt er alrangt.  Margar færar leiðir hafa verið ræddar opinberlega. Bent hefur verið á uppboð á kvótum, færeyska kerfið með breytingum, aflagjald á lönduðum afla ( hvetja má eða letja sókn með breytilegu aflagjaldi) og stýringu með takmörkunum á veiðarfærum, veiðitíma, veiðisvæðum o.s.fr. eða sambland af einu eða fleiru af þessu öllu.

Fiskveiðistefna  Valdimars 

1.      Allir sem búsettir eru á Íslandi mega róa til fiskjar með handfæri með hugsanlegri takmörkun á fjölda handfærarúlla á hvern einstakling. Sömuleiðis er hverjum manni heimilt að veiða fisk í gildrur og önnur sértæk veiðarfæri samkvæmt nánari reglum. 

2.      Uppsjávarveiðum skal stjórnað með aflamarksreglum eins og verið hefur en fyrna skal aflaheimildir á 10 árum. Ríkisvaldið skal bjóða út aflaheimildir í síld, loðnu, makríl og kolmunna um leið og þær hverfa frá núverandi vörslumönnum þeirra.  

3.      Breyta skal öllum aflaheimildum togaranna í sóknareiningar, sem fyrndar verða á 10 árum. Ríkisvaldið skal bjóða út sóknareiningarnar eftir því sem þær heimtast inn. 

4.      Netaveiðum, línuveiðum, úthafsrækjuveiðum og veiðum með dragnót verði stjórnað með lokuðu veiðileyfikerfi með óframseljanlegum veiðiréttindum. Allir sem nú ráða yfir bátum sem henta til þessara veiða fái veiðileyfi sem er gefið til persónu og ber að skila því inn þegar það er ekki lengur nýtt. Því verður úthlutað til einstaklings sem áunnið hefur sér rétt til þess með störfum í sjávarútvegi og menntun til þeirra starfa eftir ákveðnum reglum. 

5.      Skilja skal að rekstur í fiskveiðum og fiskvinnslu.  

6.      Allan afla skal selja á fiskmarkaði  

7.      Aflagjald skal innheimt af lönduðum afla.  

8.      Stjórn sértækra veiða svo sem rækjuveiða innfjarða, skel og heimaveiðar verði meðhöndluð í hverjum flokki sérstaklega eftir því sem við á í samráði við aðila á hverjum stað hverjum , sveitarfélög,fiskverkunaraðila, sjómenn og útgerðarmenn  

Greinagerð:Gera verður þær kröfur til kerfisins að leiðin frá núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi sé sæmilega greiðfær en það virðist einmitt vera tilfellið. Einnig verður að meta hversu auðvelt væri að fá almenning og sérstaklega þá sem eiga að búa við kerfið til þess að skilja að hagsmunir þeirra gætu legið í því að taka þetta kerfi upp. Helstu kröfur sem gera verður til kerfisins eru eftirfarandi: 

1. Félagslegt réttlæti 

2. Standist stjórnarskrána 

3. Þjóðhagsleg hagkvæmni 

4. Verndun lífríkis sjávar og fiskstofna 

5. Byggðaþróun 

6. Almenn lífsgæði 

7. Aðlögunarhæfni frá núverandi kerfi 

8. Möguleikar til að breyta í nýtt kerfi ef það reynist ófullkomið 

Hafa verður í huga fyrir hverja fiskveiðistjórnunin er hagkvæm. Arður allra Íslendinga af fiskimiðunum skiptir máli. Tryggja verður að hann dreifist sem best. Jafnvel þó að sýnt yrði fram á að arður fiskveiðifyrirtækjanna væri mestur með lágmarkstengingu við íslenskt efnahags- og atvinnulíf er það í andstöðu við hagsmuni þjóðarinnar, eiganda auðlindarinnar. Eins og horfir í kvótastýrðum fiskveiðum Íslendinga gæti sú staða hæglega komið upp fljótlega að handhafar kvótanna sjái sér mestan hag af því að láta erlent láglaunafólk manna verksmiðjuskipin og að viðhald þeirra færi fram erlendis sem og önnur þjónusta við þau. Aflinn yrði fluttur til vinnslu þar sem vinnuaflið er ódýrast. Veiðiskipin kæmu lítið í íslenska höfn. Þá skiptu heimsins bestu fiskveiðimið þjóðina orðið litlu máli og lífskjörin yrðu að sama skapi verri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Magnússon

Ég er sammála þessu að flestu leyti. En ég hef efasemdir við fyrnignarleiðina eins og hún er útfærð. Með því að gera handfæraveiðar breytist mikið og þörf fyrir leigukvóta dregst mikið saman. Flestir virðast nú sammála um að hægt sé að auka veiðar kvótasettra tegunda verulega núna. Ég er sammála því og tel að við eigum að auka t.d. fiskveiðiheimildir í þorski um 100 þúsund tonn á þessu fiskveiðiári. Fyrningin fælist þá í að aukningin færi á uppboðsmarkað en kæmi inn í heildaraflamark, sem mundi þá hlutfallslega minnka hjá kvótahöfum.  Vilji fólk innkalla allar veiðiheimildir þá held ég að það væri betra að láta aukninguna fara á markað en kvótahafa halda sínu næstu 10 ár en að þeim liðnum færi sá kvóti líka á markað. Það er ekki hægt að segja að það sé óréttlátt þeir sem nú stunda veiðar hafa þá forskot á hina og þeir sem hafa getu eiga að geta notfært sér það. En frjáls markaður og samkeppni yrði þá tekin upp í staðinn fyrir ríkisrekið úthlutunarkerfi.

Jón Magnússon, 2.11.2010 kl. 09:16

2 identicon

Það sem vantar í þessar tillögur er: Hvernig ætlið þið að finna út og stjórna magninu sem veitt er árlega

Hallgrímur H Gísla (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 17:46

3 Smámynd: Valdimar H Jóhannesson

Af hverju þarf að takmarka hvað kemur á land? Ef fiskgengd er mikil veiðirist meira. Ef ástandið í sjónum er slæmt veiðist minna. Unnt væri að þreifa sig áfram með veiðistjórnun með takmörkun á veiðarfærum, veiðisvæðum, veiðitíma og með því að hækka eða lækka aflagjald. Aukið aflagjald takmarkar áhugann á veiðium, minna veiðigjald eykur hann. Við reynum ekki að ákveða með kvótum hvað flutt eru inn mörg pör af skóm eða hvað keyptir eru margir vörubílar til landsins. Það regúlerar sig sjálft.

Valdimar H Jóhannesson, 3.11.2010 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Valdimar H Jóhannesson
Valdimar H Jóhannesson

Höfundur berst gegn gjafakvótanum.

Netfang: vald@centrum.is

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband